Leita í fréttum mbl.is

VEI, VEI, VEI

 

Loksins, loksins er haustið komið.  Ekki samkvæmt sumum, sem vilja halda í sumarið og vonast eftir framlengingu á því.  En smekkurinn er misjafn, eins og gengur.  Sumarið er fínt, en haustið er æðislegt.  Ég var tryllt úr hamingju (sko hljóðlátur tryllingur) í gærkvöldi, í rigningunni og rokinu. 

Ég kveikti á kertum, klæddi mig eins og fífl (já ég veit, erfitt að trúa, ég sem er alltaf fullkomin, heima og að heiman) og óð um allt innvafin í teppi.  Svo er september kominn og það er haustmánuður skv. almanaki. og því leyfilegt að búra sig inni.

Nú þarf ég ekkert að vera með móral yfir því að vera ekki alltaf farandi og gerandi.  Á sumrin eru allir að fara að gera eitthvað stórkostlegt og þá fæ ég oft samviskubit yfir að vilja ekki gera neitt nema tjilla.  Ætli ég sé svona löt?  Nebb, ég er vetrarbarn, fædd í janúar.  Ég þekki minn stað í tilverunni.

Annars ætla ég bara að bjóða góðan daginn, gott fólk og óska ykkur gleðilegs hausts, með mörgum nýslátruðum lömbum, engum innmat (viðbjóður), helling af berjum og góðum nömmum sem fylgja árstíðinni.

Sjáumst á eftir.  Ætla að fara að drekka nokkur köff.

Ójá


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Góðan og blessaðan fyrsta dag á hausti. Lýsti einmitt yfir ánægju minni áðan við Bretann yfir drungalegum himni og trjám sem sveiflast fram og til baka í vindinum. Mmmm... notaleg tilfinning og góð samviska í að hanga á náttbuxunum fram eftir degi eins og reyndar allir í fjölskyldunni. Húsið er vaknað til lífsins, 3 mjálmandi kettir, Gelgjan og Viddi í eltingaleik með bolta og gólandi einhverft barn. Er ekki lífið dásamlegt?

Jóna Á. Gísladóttir, 1.9.2007 kl. 11:45

2 Smámynd: Gísli Hjálmar

Ég ætla að leyfa mér að taka undir með þér og upplýsa það; að í dag finnst mér haustið ekki síðri tími en vorið. Mér finnst æðislegt að geta verið inni á "sjálfsagðan hátt" og notið þess ...

Gísli Hjálmar , 1.9.2007 kl. 11:48

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hreint dásamlegt, það segirðu satt. Híhí!

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.9.2007 kl. 11:48

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sammála Gísli.  Nú erum við með formlegt leyfi frá innipúkafélaginu að vera heima hjá okkur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.9.2007 kl. 11:49

5 Smámynd: Þröstur Unnar

Æi alveg stórfínt að fá haustið sitt og geta klætt sig eins og fífl í myrkrinu og þambað fullt af köffum. Sumarið er einmitt tími áreitis, sérstaklega frá manni sjálfum um að vera einmitt farandi og gerandi tóma steypu.

Sé þig alveg fyrir mér innvafin í mikið áklæði með hendur og andlit standandi útúr til að skipa fyrir um heimilisstörfin og pikka á bloggtölvuna, og ekkislökkvaákertunum svip.

Þröstur Unnar, 1.9.2007 kl. 11:52

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hvað er slóðin inn á Innipúkafélagið? Get ég ekki skráð mig í félagið?

Þröstur góður hehe.. fullt af köffum

Jóna Á. Gísladóttir, 1.9.2007 kl. 12:10

7 identicon

Þú ert nú algjör Emma öfugsnúna.  Allir í kringum mig eru nú þegar að fyllast depurð yfir þessum skammdegisárstíma. Getur þú kannski smitað mig af þessari haustgleði, svona eins og af köngulóarfóbíunni ???

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.9.2007 kl. 13:52

8 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Og hér er bara ekkert haust. Bara ávaxtatínslutími og sól.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 1.9.2007 kl. 16:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985867

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband