Leita í fréttum mbl.is

ILLA FARIÐ MEÐ GÓÐAN DRENG

1

..ég hef þekkt hann Bjarna Sæmundsson, frá blautu barnsbeini.  Hann bjó lengi við Ásvallagötuna og við lékum okkur á Hringbrautarróló og þá einkum í sandkassanum.  Bjarni vildi ekki fara úr hverfinu, ekki nema rétt niður í Ellingsen og Sápuhús til að kaupa jólagjafir.  Ég hélt að strákurinn hefði vaxið upp úr þessum átthagafjötrum, en það er greinilega einhver tregða í honum enn, gagnvart ferðalögum.

Ég frétti fyrir nokkru, að hann væri nýlega giftur hann Bjarni, konan hans er auðvitað frá Akureyri, þar sem hver frekjan rigsar um annarri öflugri og nú hefur hún viljað koma Bjarna til Akureyrar, til fundar við sína tengdafjölskyldu, hvað sem tautaði og raulaði.

Ég sendi Bjarna æskuvini mínum, hugheilar samúðarkveðjur og vona að honum hafi ekki orðið mjög meint af þessari ofbeldisfullu gjörð.  Það hlýtur að kosta heilmikil átök að vera dreginn vestan úr bæ og alla leið til Akureyrar, þrátt fyrir að sá sem dregur sé sá sem maður elskar mest í lífinu.

Ó, þetta er frétt um skipið Bjarna Sæmundsson sem dregið var af skipinu Árna Friðrikssyni til Akureyrar vegna bilunar.

Dem, dem, dem og ég sem var búin að ýta á "vista" eða þannig.

Húhumm


mbl.is Bjarni Sæmundsson dreginn til Akureyrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Anna

hahaha þú ert æði. þessi er allveg krónu virði.

Ólöf Anna , 29.8.2007 kl. 23:37

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er aldrei að mín er í góðum gír, fjúka brandarar út og suður, eða norður. Keep it up  hvað er annars að frétta af Oliver krútti ??

Ásdís Sigurðardóttir, 29.8.2007 kl. 23:46

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég stal henni úr fjölskyldualbúminu á síðunni þinni Dúa mín.  Er hann ekki alveg búfastur á Nýfundnalandi?(ekker nettengdur er það?)

Krónu virð Ólöf Arna, svo mikið meira en það.  Þetta er minni besti vinur.

Allt fínt að frétta af Oliver.  Hann kom í dag og söng fyrir mig ABCD og happy birthday og allskonar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.8.2007 kl. 23:50

4 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir


Ég léti engan draga mig úr 101 til Akureyrar. Það yrði amk að múta mér duglega. Þegar ég tala um að fara út úr bænum er ég að meina að skreppa í kringluna. Baráttukveðjur til Bjarna. Vona að hann meiki til baka

Laufey Ólafsdóttir, 29.8.2007 kl. 23:52

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hahahaha   Þú náðir mér sko..... ég vorkenndi aumingja manninum óheyrilega mikið, lengi vel.  Eða allt þar til hann varð skip.

Anna Einarsdóttir, 29.8.2007 kl. 23:53

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dúa ég er í kasti.  Hahahaha þú drepur mig.  Tilhugsunin um þig og þennan.  OMG

Yndislegt að sjá lífsmark með þér Laufey mín.  Saknísakní.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.8.2007 kl. 23:53

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég vona að þessi maður stelpur, sé EKKI Íslendingur, ég gúgglaði hann.  Er í krampa.  Takk Anna mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.8.2007 kl. 23:54

8 Smámynd: Ólöf Anna

sko þetta er svona fimmaurabrandarahúmor (prófaðu að segja þetta orð hratt og sjáðu hversu oft þú getur án þess að ruglast) semsagt svo rosa góður að hann er krónu virði. Á núverandi gengi japanska yensins er hann mun dýrar i

Ólöf Anna , 30.8.2007 kl. 00:02

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

LOL. Þú ert asni

Jóna Á. Gísladóttir, 30.8.2007 kl. 00:06

10 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Jenný! Ég lífsmarkaði á síðuna mína alveg um leið og þú óskaðir þess Eru einhverjir straumar á milli okkar kona góð?! 

Laufey Ólafsdóttir, 30.8.2007 kl. 00:08

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Greinilega Laufey, muhahahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.8.2007 kl. 00:10

12 identicon

Hvaða frekjur ertaðtalum á Akureyri góan???  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 00:17

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nú vinkonur þínar Anna mín, ekki þig skoþví þú ert alltaf glöð og alltaf góð og alltaf að skiptast á (eins og Jenny nokkur Una) enda þú úr borginni.  Ekkert Akureyrarkvendi, ónei.  Fruuuuuuusss

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.8.2007 kl. 00:21

14 identicon

Sunnlenskt frrruuuuuussss  ... að norðan ...  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 00:27

15 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

LOL, góður, mest var ég hissa á brúðkaupi sveinsins, var komin með fordómafulla ímynd í kollinn af konunni hans....minnti óneitanlega á grýlu hans leppalúða....Ljótt að segja það

Bjarndís Helena Mitchell, 30.8.2007 kl. 01:00

16 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Ha ha ha... heima er best.

Ester Sveinbjarnardóttir, 30.8.2007 kl. 01:48

17 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Var ekki Bjarni Sæmundsson verðmætasta skipið í Útgerðarspilinu í gamla daga? Það minnir mig alla vega (mér fannst ég yrði að tala um skipið fyrst allir hinir voru að tala um mannin). Verð reyndar að segja að Akureyrarkonur eru þær bestu í heimi og enginn má kalla þær frekjur. Og ég held að menn væru heppnir ef þeir væru dregnir til Akureyrar!!!

Kristín M. Jóhannsdóttir, 30.8.2007 kl. 03:50

18 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 30.8.2007 kl. 07:20

19 identicon

Heil og sæl

Illa varð mér nú við er mér var varfærnislega bent á það í morgun er ég mætti til vinnu, að mynd af mér væri á þessari bloggsíðu. Enn meira varð mér við þegar ég sá að hér hefur útlit mitt verið haft að háði og spotti.

Veraldarvefurinn getur verið skaðræðisgripur þegar fólk miðlar efni af honum í rætnum tilgangi.

Vinsamlegast fjarlægðu myndina af mér.

Kveðja,

Guttormur Fannarsson, landbúnaðarráðunautur

Guttormur Fannarsson (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 08:40

20 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

LOL

Jóna Á. Gísladóttir, 30.8.2007 kl. 08:59

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dúa, vertu heima hjá þér.  Ég veit að þú þekkir Guttorm. Og bróður hans líka.  Þið eruð fríður hópur þykir mér

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.8.2007 kl. 09:00

22 identicon

 þið eruð yndisleg

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 11:08

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Iss þessi síðasta er af honum Charles Darwin á Málefnunum.com  En þú ert óborganleg Jenný mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.8.2007 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.