Leita í fréttum mbl.is

AÐ VERA FASTUR Í EIGIN.. HM

 1

Hjá sumum er lífið einfalt.  Það snýst um eiginhagsmuni, eiginhagsmuni og eiginhagsmuni.  Rakst á þessa frægu áskorun til bæjarstjórnar Akureyrar um afsögn, á blogginu og finnst hún einstaklega skemmtileg.

Hvernig ætli áskorun frá sama fólki væri að inntaki ef eitthvað verulega alvarlegt myndi gerast?

 "Við undirrituð, skorum hér með á meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar að sjá sóma sinn í því að segja af sér tafarlaust.

Þessi áskorum, sem við teljum að eigi fullan rétt á sér, er sett fram vegna mjög undarlegrar ákvörðunar meirihlutans í sambandi við nýliðna verslunarmannahelgi, þar sem fólki á aldrinum 18-23.ára var nánast meinaður aðgangur að hátíðinni Ein með öllu.

Við teljum að þetta bann hafið orðið til þess að veitingahús, verslanir og önnur fyrirtæki á Akureyri hafi orðið af verulegum tekjum og hagsmunum.   Einnig er það svo að bæjarbúar á Akureyri eiga erfitt með að sætta sig við að ákveðnum þjóðfélagshópum sé bannað að heimsækja bæinn. 

Í ljósi þessa teljum við fulla ástæðu til þess að bæjarstjórn Akureyrar segi af sér, þar sem við teljum hana ekki vandanum vaxinn.

Þá leggjum við til að varsla tjaldsvæða verði tekin úr höndum skátanna og boðin út með skilyrðum."

Það er ekki hægt að fara fram á minna en tafarlausa afsögn.

Sumir eru fastir...

Úje

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: krossgata

"þar sem við teljum hana ekki vandanum vaxinn."  Á það ekki að vera "þar sem við teljum hana ekki vandanum vaxna."?  Óttalegur skrípaleikur þarna fyrir norðan í sumar annars.  Það svífur einhver móðursýkisandi þar yfir.

krossgata, 13.8.2007 kl. 10:41

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

voðalegt vesen er þetta

Jóna Á. Gísladóttir, 13.8.2007 kl. 11:14

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

hallærislegt allt saman en að heimta að bæjarstjórn segi af sér vegna minni gróða einhverra fataverslana er hlægilegt!

Huld S. Ringsted, 13.8.2007 kl. 11:43

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Myndin er út af fyrir sig flott en óþægilegt að rýna í hana! Mér sýnist þetta snúast um nokkra hagsmunaaðila til að græða á ungdómnum, það er svo gott að græða á þessum fullu!

Kláraðist ekki sumarhýrann hjá mörgum um þessa helgi og gerir enn? Það verður náttla að gera út á það eins og önnur fyrirbæri.

Edda Agnarsdóttir, 13.8.2007 kl. 11:46

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mér finnst einfaldlega ekki í lagi að kalla eftir afsögn bæjarstjórnar, það er svo hrokafullt og sjálfhverft að ég get ekki annað en hlegið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.8.2007 kl. 12:54

6 identicon

Ég dó nánast þegar ég sá þessa mynd með þessu umfjöllunarefni - óborganlegt en um leið svo lýsandi!!!

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 13.8.2007 kl. 18:19

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nákvæmlega Anna, passar eins og flís við hm.. rass

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.8.2007 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 2985884

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.