Leita í fréttum mbl.is

BARA ILMKREM OG SNYRTIVÖRUR EÐA HVAÐ?

Flestar konur á aldur við mig muna örugglega eftir Avon ilmkremunum hérna í denn.  Tópas ilmkremið var flottast, þar var með gervitópassteini á loki dósarinnar og vá hvað lyktin var góð.  Ég átti annað líka sem hét því hástemmda nafni "Here´s my heart" og þessu makaði maður á sig, eftir að vera búin að meika sig með Innox-lituðu dagkremi, skella á sig eye-liner og maka "House-of Westmore" maskara á augnahárin á.  Síðan var bleikum eða hvítum sanséruðum varalit skellt á varirnar.  Guð hvað maður var fagur eða þannig.  Ójá.

Ég hef aldrei sett Avon í samband við góðgerðarstarfsemi.  En nú veit ég betur.  Reese Witherspoon, leikona er að gerast heiðursforseti Avon-stofnunarinnar sem styður konur og fjölskyldur þeirra.

Flott hjá Reese!

Úje


mbl.is Reese Witherspoon gerist Avon-sendiherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég man eftir Topas ilmkreminu, sem var æðislegt og Innox litaða dagkreminu, maður fór nú með nokkrar túbur af því

Huld S. Ringsted, 2.8.2007 kl. 20:47

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson



Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.8.2007 kl. 20:59

3 identicon

Svei mér þá ég held að þessi Avon krem hafi farið fram hjá mér  Ætli þetta hafi verið þegar mér fannst hippar flottir??? Þá hefur líklega ekki passað að maka á sig einhverju svona.

Ég fíla þessa hlið á Reese betur en leikkonuna.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 2.8.2007 kl. 21:02

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna mín þú ert of ung til að muna þetta (blikkíblikk-kall).  Manstu þá ekki eftir Pacholi olíunni sem ætlaði mann lifandi að drepa en maður smurði á sig í "samlede verker"?

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.8.2007 kl. 21:04

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég læt mér nægja innansmurning með lýsi alla morgna.  Það skilar sér svo út í húðina hárið augun og alles  Svo er nýjasta nýtt sem ég ætla að prófa, en það er Epsomsalt eða Magnesii Sulfas sem ku vera algjör hreinsun útvortis.  Leyfi ykkur að fylgjast með.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.8.2007 kl. 21:17

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Æ Jenný hvað þú ert minnug - gaman að þessu - nú gerum við alvöru alvöru úr því að hittast við skessurnar. Ég var búin að gleyma þessum kremum samt var þetta það eina sem ég notaði og var sjúk í!

Edda Agnarsdóttir, 3.8.2007 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband