Leita í fréttum mbl.is

BORG ÓTTANS

 

Það er hætt að vera brandari þegar Reykjavík er kölluð borg óttans.  Það er orðið stórhættulegt að vera úti eftir kvöldmat.  Ef það eru ekki fyllibyttur keyrandi um á ofsahraða, þá eru handrukkarar á sveimi og núna er svo næturlífið toppað með skotárás.

Svei mér þá, ég er svo fegin að vera ekki með unglinga.  Ég væri komin í spennitreyju ef stelpurnar mínar væru á bæjarröltinu.

Sósjokkdandkonfjúsd!


mbl.is Lögregla lýsir eftir vitnum að skotárás í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rebbý

já þeim fer fækkandi skiptunum sem maður fer út úr húsi eftir kvöldmat um helgar sérstaklega

Rebbý, 29.7.2007 kl. 13:19

2 identicon

Þetta átti sér samt stað í hádeginu

Siggster (IP-tala skráð) 29.7.2007 kl. 13:21

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

Jenný mín þú skuldar mér comment elskan.

Heiða Þórðar, 29.7.2007 kl. 13:36

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Í hádeginu já, hm.. ekki er það betra.  Verra ef eitthvað er.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.7.2007 kl. 13:37

5 identicon

Ég sagði aldrei að það væri betra, var bara að benda á að þetta hafi ekki átt sér stað eftir kvöldmat því þið voruð að tönglast eitthvað á þeim tíma. Enginn tími er verri en annar, allt getur gert á hvaða tíma sem er.

Siggster (IP-tala skráð) 29.7.2007 kl. 13:44

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er hárrétt hjá þér Siggstar og asnalega svarað hjá mér.  Ég er þér auðvitað hjartanlega sammála.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.7.2007 kl. 13:47

7 identicon

Já, en annars er þetta allt saman hið versta mál og maðurinn látinn. En sendibílstjórinn sem reyndi að bjarga lífi hans á svo sannarlega hrós skilið fyrir hugrekki.

Siggster (IP-tala skráð) 29.7.2007 kl. 13:51

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég var eimitt að heyra að maðurinn væri látinn.  Hreint skelfilegt.  Ég er orðlaus.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.7.2007 kl. 13:55

9 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Þú ert kannski í sjokki Jenný mín en orðlaus ertu ekki.... í kjölfarið á þessari færslu komu tvær  um þetta mál ;)

Heiða B. Heiðars, 29.7.2007 kl. 16:44

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi Heiða en gott að það skuli vera til bókhaldaratýpur sem fylgjast grannt með færslufjölda og slíku.  Ekki fleirum sem vantar aðstoð?

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.7.2007 kl. 17:54

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Guðmundur Páll ég er ekki að miða við neitt nema það að Reykjavík er tiltölulega breytt á ekki svo mörgum árum.  Vinkonur mínar á landsbyggðinni hafa notað "borg óttans" í gríni um höfuðborgina.  Það liggur sem sagt engin samanburður á bak við þessa nafngift, eru einfaldlega viðbrögð mín við slæmum tíðindum.

Ég er alveg á því að við höfum það alls ekki slæmt miðað við marga aðra, en eitt mannslíf eru einu of mikið, sama hvað allri samanburðarfræði líður. 

Þarf nokkuð að "debattera" um þessa slæmu helgi?  Þökkum fyrir að hún er senn að baki.

Kveðja,

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.7.2007 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2985769

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband