Leita í fréttum mbl.is

PILLAN ÓÞARFA

1

Ég var að tala við kunningjakonu mína fyrir einhverju síðan sem getur ekki sofið án þess að eiga svefntöflur.  Ég kannast sjálf við vandamálið, gat ekki sofnað um nokkra ára skeið án þessarar töfralausnar.  Samt má segja að mitt svefnvandamál hafi fyrst orðið alvarlegt eftir að ég hóf að gúffa í mig þessu vímuefni, sem veitir skammtímalausn og hefur í farteskinu helmingi fleiri vandamál en þú lagðir upp með í byrjun.

Þetta er eiginlega snúrublogg.  Svefntöflunotkun var eitt af mínum neysluefnum.  Ég hef aldrei sofið eins illa og eftir að ég hóf svefntöfluátið.  Svona töflur virka í nokkra daga og þá þarf fólk í raun að auka skammtinn til að ná sömu áhrifum.  Auðvitað er til fullt af fólki sem getur notað svona lyf án þess að misnota þau en það er ótölulegur fjöldi fólks sem getur það ekki.

Kunningjakonan er á leið í meðferð til að fá aðstoð með að losna við svefntöflurnar.  Ég held að það sé hið eina rétta.  Ég hef aldrei sofið betur en eftir að pillunum og bjórnum sleppti, það segi ég satt.  Ég sofan þegar ég legg höfuðið á koddan, mig dreymir eðlilega og ég vakna úthvíld að morgni.  Það er best að sofa á eigin safa.

Einhver sagði einhverntíman að enginn gæti dáið af svefnleysi.  Ég man allavega ekki eftir svohljóðandi dánartilkynningu: 

Hr. soandso lést að heimili sínu soandso vegna svefnleysis.  Blóm og krasar afþakkaðir.

Auðvitað kallar langvarandi svefnleysi á ýmis vandamál.  Í flestum tilfellum er hægt að komast fyrir þau með heilbrigðari aðgerðum en að skutla í sig pillu. 

Þetta datt mér nú svona í hug þar sem ég blakti skráfþurr á snúrunni þenna sólríka sunnudagsmorgun.

Síjúgæs.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég fékk stórhættulega hóstasaft síðast þegar ég varð veik. Það var í febrúar á þessu ári. Ég gat ekki sofið fyrir hósta. Hóstasaft þessi bjargaði málunum og svei mér þá ef ég svaf ekki með hennar hjálp í gegnum verstu fráhvarfseinkennin af sígarettum (þarna hætti ég sem sagt að reykja). En það kom að því að ég varð að viðurkenna fyrir sjálfri mér að nú gæti ég sofið án þessarar hjálparhellu. Ji minn hvað ég hefði getað orðið húkt á þessari töfralausn sem sendi mig svo ljúft inn í draumalandið.

Jóna Á. Gísladóttir, 15.7.2007 kl. 12:35

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já það er æði á meðan það virkar stelpur mínar, en áður en maður veit af er það baggi og hreint helvíti.  Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.7.2007 kl. 12:41

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

úps ég þarf að passa mig!

Edda Agnarsdóttir, 15.7.2007 kl. 15:16

4 identicon

Ég man eftir svefntöflutímabilinu mínu. Það stóð í 17 ár.Svefntöflur geta verið algjör óþverri. Pabbi minn heitinn fékk einu sinni alvarlegt hjartaáfall og var á gjörglæstu í nokkra daga. Fyrst vegna hjartans en svo vegna þess að hann fékk svo hryllilega tremma að hjartað stoppaði  í verstu köstunum. Heimilislæknirinn hafði nefnilega verið svo"góður"að skrifa uppá Halsion svefnlyf fyrir hann í 16 ár og þegar gamli maðurinn fékk ekki skammtinn sinn í 2 daga kom tremminn. Flóuð mjólk og ýmis te eru góð við svefnleysi. Alla vega er það rétt að enginn deyr af svefnleysi,viðkomandi verður í versta falli leiðinlegur af geðvonsku.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 16.7.2007 kl. 10:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband