Leita í fréttum mbl.is

7 BLOGGARAR VORU...

1

...reknir af mínum vináttulista í morgun og gátu ekki hamið sig af eintómri hamingju.  Þeim var mikið í mun að fá að vera með á mynd á þessum stórkostlegu tímamótum en þeir ætluðu síðan að halda duglega upp á það að vera nú lausir við að þurfa að skarta sjálfum sér á minni alræmdu bloggsíðu.  Þau ætluðu beint ofan í bæ á fyllerí um leið og ég sleppti af þeim hendinni.

Ég held áfram að henda út fólki af því það er svo skemmtilegt að fá pláss fyrir nýja vini.  Ég held að ég sé búin að eignast suma bloggvini margoft.  Annars er ég á því að bloggið mitt sé voða mikið stelpublogg af því að það eru ekki mjög margir karlar sem kommenta.  Þeir sem gera það eru samt alveg yndislegir.

Við eitt snúrubloggið mitt fékk ég eftirfarandi athugasemd frá manni sem heitir Sveinn: "Ég-um mig-frá mér-til mín".  Aljgör dúlla,  Sveinki.  Ég svara honum hér með:  Hér er Sveinn leiðinlegi-um Svein leiðinlega-frá Sveini leiðinlega-til Sveins leiðinlega.  Nananabúbú!

Þetta er ekki pistill - þetta er tilkynning og ekki gleyma pistlinum fyrir neðan þennan.  Smjúts!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ji minn. Hvar nærðu í þessar nördamyndir?

Jóna Á. Gísladóttir, 9.6.2007 kl. 13:18

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Gleymi að lýsa yfir áliti mínu á Sveini.

Jóna Á. Gísladóttir, 9.6.2007 kl. 13:18

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er alveg sammála Elísabetu.

Kristín Katla Árnadóttir, 9.6.2007 kl. 13:38

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe hendi bara þessum leiðinlegu

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 13:44

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna og álitið er: Hér er Sveinn pirraði, um Svein pirraða, frá Sveini pirraða til Sveins ógeðslega neikvæða

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 13:46

6 Smámynd: Ragnheiður

sko nú þarft þú að birta lista yfir þá bloggara sem þú skutlar út bara svo maður nái að fylgjast með

Ragnheiður , 9.6.2007 kl. 13:54

7 identicon

Kvitt   En var Sveinn ekki að lýsa sjálfum sér??  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 14:06

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hrossið er ekki nóg að berja þá augum á meðfylgjandi mynd?

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 14:07

9 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Hehe...... þú ert ferleg, og ég sem þori ekki að henda einum einasta út.

Eva Þorsteinsdóttir, 9.6.2007 kl. 15:09

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hef ekki alveg tímt að fleygja mörgum út af mínum lista þótt þeir séu eigi aktívir! Þegar ég er kannski búin að ákveða að fleygja einhverjum út sem er örugglega að safna mér eins og dýrmætu frímerki (hnegg hnegg) þá segir kommenterar hann greindarlega, skemmtilega og af viti og vitneskju. Þekki hreinlega ekki þessa þöglu frá söfnurunum.

Sveini líður greinilega eitthvað illa, þyrfti kannski að komast á snúruna? Það mætti halda af skrifum hans.

Guðríður Haraldsdóttir, 9.6.2007 kl. 15:11

11 Smámynd: Alvy Singer

Skrítið að þú skulir eyða svona mörgum og skulir yfir höfuð leggja svona mikið uppúr bloggvinum, bloggar um þá o.þ.h.

Persónulega er ég mjög tregur að eyða fólki, geri það bara í neyð, þá er bloggleysi þeirra að kenna eða ég hafi yfir höfuð aldrei lesið þá. Ég lít á bloggvini sem bloggrúntinn minn, ef þú ert bloggvinur minn þá þýðir það að ég lesi þig. Ég les ekki þessa síðu þína jenfo að staðaldri en dett inná hana einstaka sinnum og hef gaman af þó við séum ekki bloggvinir, ætli þú myndir ekki bara eyða mér fljótt útaf listanum þínu.... 

Alvy Singer, 9.6.2007 kl. 15:43

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hey Alvy villtu vera bloggvinur minn? Annars er þetta bloggvinadæmi meira til gamans gert en mér finnst arfaleiðinlegt að hafa þessa löngu runu af fólki sem ég heyri aldrei af en finnst samt að ég verði að heimsækja af því að ég er mjög samviskusamur bloggvinur.  Enda á ég úrvals bloggvini.

Takk krakkar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.6.2007 kl. 15:50

13 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Ég hefði tekið mig vel út á þessari mynd en er fegin að vera ekki á henni  Þarf að skoða þennan leiðinlega Svein.

Brynja Hjaltadóttir, 9.6.2007 kl. 19:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985887

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband