Leita í fréttum mbl.is

BÉVÍTANS SUMARSTARFSMAÐURINN...

1

..á Mogganum, þessi illkvittni með framandi íslenskukunnáttu heldur því blákalt fram í stjörnuspá dagsins að ég sé feit.  Rosalega getur fólk verið illa innrætt.  Hann hefur örgla frétt af því að ég er alltaf að telja grömm og sollis og er nú að launa mér fyrir að vera að hnýta í sig reglulega.  Hér er þessi andstyggilega stjörnuspá.  Þarna er nú ekki verið að skafa utan af hlutunum Ha?  Ég tala við Styrmi á þriðjudaginn.  Það er á hreinu.  Arg...

Steingeit: Þú ert ótrúlega úrræðagóður. Fáðu innblástur innan frá í stað þess að biðja um hjálp. Það myndi bara hægja á þínum mikilfenglega skriðþunga.

Boðskapurinn í þessum tveimur línum er alls ekki flókinn er það?  Nebb smá djúpur svona og hefur mikið spádómsgildi.  Ég ætla að leggjast yfir línurnar (bæði kílóawise og öðruwise) og kem til baka þegar spekin hefur skilað sér í minn arma heila.

Síjúgæs!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þið þarna feitabollur, ekki svona viðkvæm!

Ljónið í dag: Mikið lítur þú vel út í dag, elskan. Þú tókst þig líka vel út á SkjáEinum í gær í dökkbleika kjólnum. Dagurinn verður ekki góður, heldur guðdómlegur.  

Guðríður Haraldsdóttir, 26.5.2007 kl. 16:49

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.5.2007 kl. 17:17

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gurrí þú varst voða sæt í gærkvöldi í dökkbleika kjólnum.  Í hvers boði var greiðslan?  Synd að þú skyldir ekki vinna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.5.2007 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 2985875

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband