Leita í fréttum mbl.is

ÆFING FYRIR KOSNINGAR 1. MAÍ

22

Ég verð alltaf svolítið væmin 1. maí, á frídegi verkalýðsins.  Var alin upp við að þetta væri hátíðisdagur okkar alþýðunnar.  Ég er ekki mikið fyrir kröfugöngur en hef gengið oftar en ekki og það er stemming að vera í göngunni.  Nokkurs konar vorjól.  Ég verð smá klökk, finn fyrir samkenndinni með félögunum svona eins og þegar klukkurnar hringja inn jólin.  Yndisleg móment. 

1. maí á kosningaári er sérstaklega hátíðlegur og mikilvægur dagur.  Krafan í dag er að "fátækt verði útrýmt í einu ríkasta landi veraldar". 

Nú eru bara 10 dagar í kosningar.  Það er um að gera að fljóta ekki sofandi að feigðarósi.  Það er kominn tími á breyttar áherslur á Íslandi alsnægtanna.  5000 börn lifa undir fátæktarmörkum og það er ekki náttúrulögmál að það eigi að vera svoleiðis.  Það er heldur ekki náttúrulögmál að aldraðir og öryrkjar lepji dauðann úr skel margir hverjir.  Stjórnarliðar tala um að það sé verið að vinna í málum þessara hópa.  Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft 16 ár til þess og Framsókn 12.  Úff þeir eru bara alveg sveittir við að kippa þessu í liðinn.  Rosalega er þetta erfitt mál að laga.  Bara tugir ára og nú þegar við göngum til kosninga er þetta alveg að bresta á samkvæmt þeim.

Ég vona að hinn almenni maður átti sig á vægi atkvæðisins og noti það skynsamlega.  Það er á fjögura ára fresti sem við getum valið.  Við getum valið viðvarandi ástand sem hentar sumum í þessu þjóðfélagi eða breytt því þannig að forgangsröðunin verði önnur og í þágu stórs meirihluta þjóðarinnar. 

Generalprufan er á morgun.  Eigum við ekki að þramma saman og efla baráttuandann? Sjáumst í göngunni.


mbl.is Krafan 1. maí að fátækt verði útrýmt á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

get ekki ákveðið mig hvað ég á að kjósa....... Hvað finnst þér?

 hehehe

Hrönn Sigurðardóttir, 1.5.2007 kl. 02:02

2 Smámynd: Ragnheiður

Ég þramma með í huganum,verð að flytja á morgun...smútjs

Ragnheiður , 1.5.2007 kl. 02:21

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hrönnsla hm... bíddu hugs...hugs... jú vandræðagrænkuna. Smútsj.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.5.2007 kl. 02:22

4 identicon

Hrönn: Ég las eina tillögu í einhverju kommenti á bloggi - ALLIR (líka xVG, xS, xF og xI) kjósa xD og xB  ...  með því verða þeir skikkaðir til að taka almennilega til eftir sig áður en hinir taka við. Það þýðir svo margar óvinsælar aðgerðir að þegar kemur að nýjum kosningum verða báðir flokkar undir pilsner-fylgi. Mér finnst eiginlega algjör synd að þeir skuli geta messað öllu upp á 12 árum (16 árum) og látið hina flokkana taka skellinn.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 02:37

5 Smámynd: Hlynur Hallsson

Til hamingju með daginn og bestu baráttukveðjur öll!

Hlynur Hallsson, 1.5.2007 kl. 09:47

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já Anna - en heldurðu að þeir gera það? þ.e. taka til? Ég leyfi mér að efast um það.... held þeir stingi bara sínu strútshöfði á dimman stað

Annars er ég búin að ákveða mig

Hrönn Sigurðardóttir, 1.5.2007 kl. 10:11

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með daginn og baráttu kveðjur.

Kristín Katla Árnadóttir, 1.5.2007 kl. 10:59

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hm Hrönnsla las yfir athugasemd hjá þér og sé að þú kýst annanhvorn stjórnarflokkinn (held ég).  Þú hefur geggjaðan og skemmtilegan húmor.  Niðurstaða: Það getur ekki verið Framsókn sem þú ætlar að kjósa! Hehe

Krakkar tökum þetta með vinstri,  já líka þú Dúa!

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.5.2007 kl. 11:16

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú verður læst inni á kjördag.  Auli

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.5.2007 kl. 12:07

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Til hamingju með daginn öll sömul.  Ekkert fengi mig til að setja x við Dé eða Bé í vor.  Ég hef krossað við Déið fyrir lífstíð, og hef aldrei merkt við Béið og ætla að hafa það þannig áfram.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.5.2007 kl. 12:34

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já skamm Ásthildur hvað varstu að hugsa hérna í denn? Smútsj.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.5.2007 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 2985751

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband