Leita í fréttum mbl.is

AF REYK, SVEFNI OG ATKVÆÐAGREIÐSLU

p

Þessi er ein af mínum uppáhalds kerlingum.  Kannski af því ég er enn reykjandi.  Jabb ætlaði að hætta 26. apríl á afmælisdegi húsbandsins en við gleymdum því bæði.  Nú verðum við að hætta sama dag að ári. Hehe.  Það er samt merkilegur fjári að kona skuli geta gleymt því að hún ætli að hætta að reykja.  Eins gott að ég gleymdi ekki að fara í meðferðina í fyrra.  Þá hefði ég nefnilega ekki fengið tækifæri til að drepa í ég væri dauð.Halo

Ég bloggaði í dag um að ég hafi sofið yfir mig.  Til klukkan 13,00 hvoki meira né minna.  Dagurinn hefur verið dálítið í merki kerlingarinnar á myndinni.  Smá öfugsnúinn og pirringslegur.  Þegar ég vaknaði þarna seint og síðarmeir rifaði rétt svo í augun á mér og það var hægt að lesa aldurinn upp á dag í árhringjunum sem höfðu myndast undir augunum.  Ég átti erfitt með að hreyfa mig og gera það sem ég þurfti að gera.  Ég er með Jenny Unu Errrriksdótturrr og hana Ástrósu skádóttur mína til gistingar en það er hún Ástrós sem hendist með mér um allt blogg á myndinni minni.  Núna í kvöldkyrrðinni þegar miðnættið nálgast er ég að vakna.  ´

Ég fer og kýs utankjörstaðar á morgun.  Svo ætla ég á kosningaskrifstofu VG við Grensásveg líka en þar er skemmtileg uppákoma sem kallast Sprotatorg á milli 1-5.  Fullt af skemmtilegu fólki, vöfflur, músik, ljóð og fleira dúndur.  Nú á að gíra sig upp fyrir kosningar.  Ég tek Jenny með mér en hún fær ekki barmmerki og verður ekki heilaþvegin. 

SíjúgæsWizard


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er svo fegin að vera hætt að hætta að reykja. Hætti síðast fyrir 16

Ásdís Sigurðardóttir, 27.4.2007 kl. 23:59

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta heitir sko að geta sofið út! Góða skemmtun á morgun og kjóstu nú rétt! Svona eins og ég!

Guðríður Haraldsdóttir, 28.4.2007 kl. 00:01

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

þetta blott hefur nú stundum sjálfstætt líf, framhaldið átti að vera svona...... og lofaði sjálfi mér þá að byrja aftur þegar ég yrði komin á ellilaun, stór gulrót sem er nokkuð langt í fyrir 16 árum voru það alveg 34 ár sem var bara rosalega mikið, nú eru bara 18 þangað til ég byrja aftur, rosa held ég að það verði góður smókur.  Góða skemmtun á morgun.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.4.2007 kl. 00:01

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

15. sæti????

How long can you go??? Go Girl!!!! Fer alltaf um mig hrollur þegar ég hef rétt fyrir mér.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.4.2007 kl. 00:07

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vein Katrín er ég í 15. sæti.  Úlalala

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.4.2007 kl. 00:08

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert laus úr viðjum vanans Ásthildur og ég verð hissa ef þú byrjar aftur!

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.4.2007 kl. 00:25

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert laus úr viðjum vanans Ásthildur og ég verð hissa ef þú byrjar aftur!

Hm meinti Ásdís.  Það er ofsvefninn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.4.2007 kl. 00:26

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm ég hætti nefnilega fyrir meira en 20 árum.  Svo ég byrja ekki aftur hehehe... það sem hjartanu er kærast er tungunni tamast, veit ekki með puttana það var ekki komið á dagskrá þegar þessi frasi varð til

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.4.2007 kl. 10:30

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásdís Ásthildur hehe þið eruð báðar svo yndislegar að þið rennið stundum saman í eitt

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.4.2007 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 2985778

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.