Leita í fréttum mbl.is

AUSTURLAND AÐ GLETTINGI

385

Hvar er Glettingur?  Hann er fyrir austan.  Ég veit ekki meir.  Landafræðikunnátta mín er lítil og ekki til að flagga á mannamótum.  Frá unga aldri hlustaði ég á veðurfregnir yfir kvöldmatnum og "Austurland að Glettingi" var eitt af því sem mér fannst hljóma svo undarlega, framandi og forvitnilega.  Merkilegt þó að ég skyldi aldrei spyrja.  Fyrir einhverjum árum síðan barst þetta í tal milli vinkvenna og við vorum allar jafn blánkar yfir "Austurlandi að Glettingi" nema ein að austan sem vissi að Glettingur var fjall þaðan sem hún kom.  Ég sá strax fyrir mér að þetta hlyti að vera merkilegt fjall þar sem þarna var veðurmæling (hm).  Viss um að við Gletting er ekki nokkur kjaftur, brimið skellur þarna á fjallinu og þegar dimmir á vetrum er umhverfið verulega draugalegt. Muhahahaha.  Kann einhver nánari deili á þessari títtnefndu mælingastöð?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Júlía

Hér játa ég vankunnáttu mína á landafræði . Hef ekki guðmund um hvar þetta Glettningi er.  .  Ábyggilega hæsti punkturinn á stóru svæði,  ógeðslega kalt þar og brjálæðislegt rok brrrrrrrr. Pant ekki fara þangað .   

Ester Júlía, 9.4.2007 kl. 11:23

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jú Ester mín við drífum okkur með Gletting þegar hann er orðinn ferðafær, förum í sól og sumaryl, grillum rjúpur á fæti () og drekkum sódavatn.  That´s live

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.4.2007 kl. 11:40

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hehe.... þegar ég var lítil hélt ég alltaf að það væri Austurland að Grettingi. 

Heiða B. Heiðars, 9.4.2007 kl. 11:44

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

ÉG VARÐ SVO FORVITIN AÐ É G HRINGDI Í SJÓMANNINN BRÓÐUR MINNN KJARTAN OG SPURÐI HANN SPJÖRUNUM ÚR.

það var til hljómsveit sem hét/heitir Austurland að Glettingi sem varð til í Menntaskólanum á Egilsstöðum fyrir nokkrum árum. En Glettingur er norðan við Loðmundafjörð eða milli hans og Borgarfjarðar Eystra. Þar var einu sinni viti og er kannski enn í gangi sjálvvirkt, veit ekki en þar var vitavörður og húsin standa þar ennþá, þetta er náttúrulega argasta einangrun. Þetta er líklega með austustu oddum landsins en þá er Gerpur eða kannski á maður að segja Gerpir austastur allra og liggur einhversstaðr rétt utan við Norðfjörð. Gaman að þessu!

Edda Agnarsdóttir, 9.4.2007 kl. 12:46

5 Smámynd: Ester Júlía

Ég beygði þetta meira að segja vitlaust .... Glettingi! 

YES Jenný, drífum okkur að Glettingi í sumar ..grillum rjúpur..hm.... og tökum nafnlausa hundinn með!

Ester Júlía, 9.4.2007 kl. 13:12

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Edda gott að eiga gangandi alfræðiorðabók að bróður.  Já við höldum bloggvinkonumót við Gletting í sumar með "nafnlausa" hundinum líka Ester mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.4.2007 kl. 14:41

7 Smámynd: halkatla

gaman að svona fjallapælingum

Gerpir er milli Vöðlavíkur og Sandvíkur held ég... ég á að hafa séð hann, en ekki Gletting - annars veit ég ekkert um innlenda landafræði, það er hrikalegt

halkatla, 9.4.2007 kl. 17:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2985877

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband