Leita í fréttum mbl.is

KLÓSETTRAUNIR

qq

Ég er ein af þeim sem myndi vilja hafa húsþjóna í klósettþrifin.  Er alltaf með æluna í hálsinum þegar ég stend í sollis stórþrifum enda almenn klígjugirni landlæg í föðurfjölskyldunni.  Ég ætla ekkert að fara að lýsa því hér út í hörgul.

En... ég get ekki orða bundist yfir hreinum ofsóknum í auglýsingatíma sjónvarpanna.  Ekki bara á íslenskum stöðvum heldur einnig á BBC, FOX og CNN.  Í hvert sinn sem klósettauglýsing sú sem hér er til umræðu, birtist, án fyrirvara (það ætti einhver að birtast á skjánum og aðvara fólk, segja ekki fyrir viðkvæma) verður mér óglatt og ég er vissum að það er ekki bara ég sem slíkt er ástatt um.  Dammdaddaramm. Ég kem mér að efninu.

Cilit Bang auglýsingin þar sem maðurinn birtist með hnausþykku kjarnorkuvörðu gúmmíhanskana og sýnd er nærmynd af hm.. dökkbrúnu klósetti, lengi og aftur og aftur er sú sem eltir mig uppi.  Ég hef aldrei orðið fyrir öðrum eins ofsóknum af hendi auglýsenda eins og í þessu tilfelli.  Auglýsingin er bresk.  Eru bretar svona rosalegir sóðar að það þurfi að "mála klósettþrif eða skorti á þeim svo brúnum litum?"  Auglýsingin er sem sagt sýnd glóbalt núna, ekki nokkur friður.

Ég mun aldrei kaupa Cilit Bang til klósettþrifa, það er tóm ávísun á ælupest.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hehe.. Klósettþrif, eða ekki þrif, eru greinilega ofarlega í hugum okkar beggja

Heiða B. Heiðars, 16.3.2007 kl. 18:13

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Híhí Heiða mín við erum klósettkerlingar

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.3.2007 kl. 18:30

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dúa mín ég kom þér í bloggið á lævísan hátt. Dettur þér í hug að ég ætli að hjálpa þér úr því

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.3.2007 kl. 19:31

4 Smámynd: Jón Þór Bjarnason

Þetta er allt spurning um rétta hugarfarið. Þegar ég var um 10 ára byrjaði ég að taka að alvöru þátt í jólahreingerningum. Eftir að hafa þrifið klósettið einu sinni hrósaði mamma mér svo rosalega og hélt síðan uppteknum hætti næstu ár: Að það væri enginn sem ynni þetta verk jafn vel og ég. Hvatningin virkaði svo vel að ég tók stoltur þetta verk að mér næstu ár og það mátti yfirleitt spegla sig í keramikinu á eftir. Reyndar geri ég þetta enn og finnst ekki leiðinlegt. Svona getur rétt mótivasjón virkað ævilangt :)

Jón Þór Bjarnason, 17.3.2007 kl. 12:03

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jón Þór mamma þín hefur verið brilljant! Af hverju datt mér þetta ekki í hug í uppeldi dætra minna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.3.2007 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985867

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.