Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

HILLARY FER ÚR HÁRUM..

 

..og lætur gott af sér leiða í góðgerðarskyni við Pantene Beutiful Lengths, sem lætur gera hárkollur og gefur þær krabbameinssjúkum konum.  Flott framtak hjá stelpunni.

Ég hef aldrei geta safnað neinu nema bókum og hári.  Ég spurði mig þeirrar samviskuspurningar þegar ég las fréttina, hvort ég myndi fórna hárinu til svona starfsemi, væri ég beðin um það.  Svei mér þá, þar kom vel á vondan.  Ég ætti asskoti erfitt með það.  Erfitt að vera heiðarlegur stundum.  Ég óttast bara að minn litli haus kæmi hroðalega út hárlaus.  Að ég yrði arfaljótur skalli.  Sumar konur eru þannig að þær geta verið hárlausar, með hár út um allt og meira segja farið með blautt, olíuborið hár á mannamót og alltaf verið ómótstæðilega fagrar og sjarmerandi.  Ég er ekki ein af þeim.  Hillary Swank er örugglega svoleiðis kona.  Brittney Spears er EKKI þannig kona, en það á ekki heima hér.

Annars keypti ég klippiskæri um daginn sem eru beitt og flott og húsbandið á flotta rakvél.  Ætti ég?  Nebb en ég get læðst að húsbandinu í skjóli nætur og látið hann dónera sínu.  Verst að hann er nýlega búinn að klippa svo mikið af haddinum.

Þetta var svona hugleiðing með frétt.

Súmí.


mbl.is Swank lætur allt fjúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HRÆÐILEGUR RAUNVERULEIKI

 

Það er vont að byrja daginn á því að lesa meðfylgjandi frétt.  Það er heldur ekkert sérlega huggulegt af mér að skella henni á bloggið mitt en þetta er eitthvað sem allir verða að lesa og kynna sér.  Talið er að um 10 milljónum fóstra hafi verið eytt á Indlandi síðustu tvo áratugina þegar í ljós hefur komið að mæðurnar gengu með stúlkur.

"Margar indverskar fjölskyldur telja fæðingu stúlkubarns af hinu slæma vegna þeirrar hefðar að fjölskyldur þurfa að greiða heimamund með þeim er þær ganga í hjónaband."

Nú hafa á annan tug plastpoka fundist í austurhluta Indlands.  Lögreglan telur að um sé að ræða fóstur eða nýfædd stúlkubörn.  Lýsingar á aðferðum við að drepa stúlkurnar fylgja fréttinni, því miður.

Það er náttúrulögmál að fátækt bitnar verst á konum og börnum.  Í þessu tilfelli stúlkubörnum.

Umhugsunarvert.

 


mbl.is Fjöldi barnslíka finnast á Indlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AF DRAUMUM OG HINDURVITNUM

1

Mig dreymir mikið börn þessa dagana.  Allt löðrandi í krúttum hjá mér á nóttunni.  Ekki skrýtið þar sem ég er upptekin af barnabörnunum og svo er eitt á leiðinni í desember.  Þannig að ég er gætandi barna á nóttunni, alveg út í eitt.

Barn er fyrir böli nema drengur sé og sjálfur eigi, sagði amma mín um túlkanir á draumum um börn.  Gat nú verið.  Ómögulegt að dreyma stúlkubörn og annarra manna börn.  Ég blæs á svona kjaftæði.  Kommon fyrir utan Oliverinn minn í London og Jökul Bjarka stóra barnabarnið mitt þá er allt löðrandi í kvenfólki í kringum mig.

Dæmi:

Sex systur, ég sú sjöunda sko.

Þrjár dætur.

Eitt hundrað stykki vinkonur (ég að ýkja, nei, nei, híhí)

Jenny Una Errriksdóttirrrr (hefur tífalt vægi í kvenkostum)

Væri ekki undarlegt ef meybörn þvældust ekki inn í drauma mína og þá auðvitað bara til góðs?

Ég held áfram að láta mig dreyma.

Hindurvitni, hindurvitni.

Góðan daginn annars.

Eintlæfbjútifúl?


ENGINN ENDIR ENN

Árni Matt skrifar ritdóm um síðustu bókina um Harry Potter í Moggnanum í dag.

Þar kemur fram að þetta sé skemmtilegasta HP-bókin.

Endir: Margir munu deyja

ARG


mbl.is Uppgjör góðs og ills
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ SAGÐI ÉG EKKI HÉRNA ÁÐAN

 

..í flugdólgsfærslunni minni?  Er það nema von að maður sé hræddur?  Stjarnfræðilegar líkur á að eitthvað komi fyrir,  minn afturendi.

Ég er farin á námskeið bara strax eftir helgi til að takast á við flughræðsluna.  Spurning hvort það gagnast að vera ekki flughræddur því ef eitthvað kemur svo fyrir í alvörunni verður maður auðvitað skíthræddur hvort sem er. Ég sleppi námskeiðinu og geng brött á vit örlaga minna.

Vandlifað...

Þeinkpósitívlí.


mbl.is Eldingu laust í þotu Iceland Express
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á EKKI AÐ TAKA ÓLAF BARA...

 

..og slá honum utan í vegg fyrir að taka 20 flóttamenn frá Líbýu og flytja fólkið til Möltu?  Nú er búið að gefa út handtökuskipun á Ólaf Ragnarsson skipstjóra en hann er staddur á Möltu.  Um að gera að skella honum í járn fyrir glæpi gegn mannkyninu, sko mannkyninu sem við forréttindafólkið tilheyrum.

Algjör ósvífni að vera að koma flóttamönnum til hjálpar.  Í greininn stendur m.a.

"Flóttamennirnir voru frá Líbýu og kröfðust þarlend yfirvöld að farið yrði með fólkið aftur þangað og undir þá kröfu tóku yfirvöld á Möltu. Útgerð Eyborgar harðneitaði þessu og á því byggist handtökuskipunin, samkvæmt vef RÚV."

Getið þið ímyndað ykkur hvað bíður þessa fólks ef það verður flutt nauðungarflutningum til heimalandsins?

Ég tek ofan fyrir skipstjóranum á Eyborgu og útgerðinni líka.

Súmíifjúder.


mbl.is Handtökuskipun gefin út á hendur skipstjóra Eyborgar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FLUGDÓLGUR Á FERÐ OG FLUGI

Ég er flughrædd kona.  Ég hef ekki alltaf verið það en eftir að stelpurnar mínar fæddust byrjaði ég að reikna út líkur á hinu og þessu, stórbiluð eins og ég er, og varð hræddari og hræddari með hverju árinu sem leið.  Sem betur fer hafa dætur mínar ekki orðið fyrir yfirfærslu á þessari fóbíu minni svo ég get andað léttar yfir því.

Ég held að hluti að minni flughræðslu eigi að einhverju leyti, uppruna sinn að rekja til innilokunarkenndar sem ég státa af líka.  Ég verð svo meðvituð um það þegar ég flýg, að ég er lokuð inni í vindlahylkinu, kemst hvorki lönd né strönd og þegar flugfreyjurnar fylla út í ganginn á milli sæta með stálvagninum ógurlega, þrengist að hálsinum á mér og mig langar að öskra.

Ég hef haft martraðir um flugdólga.  Hef reyndar aldrei lent í einum, enda sæti ég þá varla hér og skrifaði um flughræðslu.  Ég hef hins vegar lesið um þá og ég veit hvernig ofurölvi fólk með attitjúd getur verið gjörsamlega óþolandi, dómgreindarlaust og bilað.  Afleiðingarnar geta orðið skelfilegar. Talandi um hryðjuverk!

Af hverju er fólki undir áhrifum hleypt um borð í vélar?  Nú eru takmörk fyrir því hversu mikið áfengi má selja um borð, en það dugir tæpast ef viðkomandi er kominn á skallann áður en farið er í loftið.  Ég er á leið til London innan skamms.  Plís geriði eitthvað í þessu.

Öpptædandvörríd.


mbl.is Lét ófriðlega í flugi og veittist að lögreglumönnum við handtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SORGLEGT EN SATT..

 

..að það er allt fullt af fíflum úti í umferðinni, sem setja almenning í stórhættu, ógna bæði lífi og limum.  Þeir eru ekki allir ungir.  Þessi ökumaður, karl á fertugsaldri var tekinn á tæplega 200 km. hraða á Reykjanesbrautinni í dag.

Hann var sviptur á staðnum til bráðabirgða!  Til bráðabirgða, halló?  Er ekki mælirinn fullur þegar fólk keyrir svona hratt?

Ég hefði haldið það.  Burt með skírteinið. 

Súmí.


mbl.is Tekinn á tæplega 200 km hraða á Reykjanesbrautinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÚN FRÆNKA MÍN....

..utan að landi, auðvitað, stendur fyrir stóru búi og er með milljón hesta og eitthvað af meme.  Hún á engan mann og á ekki heimangengt frá búskapnum til að krækja sér í einn.  Hún frétti af einkamálum.is og þar væru margir mætir menn á sveimi og vel brúklegir til undaneldis.  Hún setti in auglýsingu þar sem hún tíundaði kosti sína, eignir og útlit.  Það gekk ekki nógu vel, allir voru giftir, nýlega fráskildir eða öðruvísi uppteknir.  Frænkan úr sveitinni gafst ekki upp, hún fattaði að í einkamálum gildir öfugmæla aðferðin.  Eftirfarandi auglýsing var sett inn og nú fær hún ekki frið fyrir eðlilegum mönnum.

Kyn: Kvenkyns
Aldur: 39 ára
Landshluti: Landið og miðin
Kynhneigð: Gagnkynhneigð(ur)
Flokkur: Vinátta / Spjall
 
Hæð: 171 cm.
Þyngd: 65-70 kg.
Augnlitur: Óuppgefið
Hárlitur: Óuppgefið
 
Auglýsing skoðuð: 1534 sinnum
 
Síðast tengd: 22. júlí 2007
Klukkan: 14:47
 
 Óska eftir að kynnast ófríðum, subbulegum, giftum mönnum í verulegri yfirþyngd sem standa í forræðisdeilum (við konu nr. 2 en eru núna með konu nr. 4)) og eru óheiðarlegir, heimskir, gjaldþrota og með fullt af beinagrindum inni í skáp. Best væri svo ef þú ert líka á vondum stað í lífinu.



Til að senda þessum notanda skilaboð þarftu að skrá þig inn hér til hliðar eða nýskrá þig.

 

Þessu vildi ég deila með ykkur elskurnar mínar.

Æmsósjokkd.


ÉG VAR ALVEG VISS

 

..um að fréttin væri um Búska forseta Bandaríkjanna, og þurfti að lesa hana tvisvar til að ná því að hún væri um Yves Leterme, sem þykir líklegur sem næsti forsætisráðherra Belga.  Hann kunni ekki textann við þjóðsönginn og vissi ekki af hverju Belgar fögnuðu þennan dag.

Það er nú kannski óþarfi að vera með svona kröfur á fólk.  Búski hefur t.d. sýnt að það þarf ekki einhvern svaka heila til að verða forseti í einu af valdamestu ríkjum veraldar.  Það þarf bara að hafa páfagauksminni og geta lært allan andskotann utanbókar.

Yves getur það örgla líka. 

Kröfur, kröfur, kröfur.


mbl.is Kunni ekki textann og þekkti ekki söguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.