Leita í fréttum mbl.is

FLUGDÓLGUR Á FERÐ OG FLUGI

Ég er flughrædd kona.  Ég hef ekki alltaf verið það en eftir að stelpurnar mínar fæddust byrjaði ég að reikna út líkur á hinu og þessu, stórbiluð eins og ég er, og varð hræddari og hræddari með hverju árinu sem leið.  Sem betur fer hafa dætur mínar ekki orðið fyrir yfirfærslu á þessari fóbíu minni svo ég get andað léttar yfir því.

Ég held að hluti að minni flughræðslu eigi að einhverju leyti, uppruna sinn að rekja til innilokunarkenndar sem ég státa af líka.  Ég verð svo meðvituð um það þegar ég flýg, að ég er lokuð inni í vindlahylkinu, kemst hvorki lönd né strönd og þegar flugfreyjurnar fylla út í ganginn á milli sæta með stálvagninum ógurlega, þrengist að hálsinum á mér og mig langar að öskra.

Ég hef haft martraðir um flugdólga.  Hef reyndar aldrei lent í einum, enda sæti ég þá varla hér og skrifaði um flughræðslu.  Ég hef hins vegar lesið um þá og ég veit hvernig ofurölvi fólk með attitjúd getur verið gjörsamlega óþolandi, dómgreindarlaust og bilað.  Afleiðingarnar geta orðið skelfilegar. Talandi um hryðjuverk!

Af hverju er fólki undir áhrifum hleypt um borð í vélar?  Nú eru takmörk fyrir því hversu mikið áfengi má selja um borð, en það dugir tæpast ef viðkomandi er kominn á skallann áður en farið er í loftið.  Ég er á leið til London innan skamms.  Plís geriði eitthvað í þessu.

Öpptædandvörríd.


mbl.is Lét ófriðlega í flugi og veittist að lögreglumönnum við handtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Það eru björgunarbátar undir öllum sætum í stærri vélunum.

Þröstur Unnar, 22.7.2007 kl. 21:55

2 Smámynd: Garún

Vá hvað ég skil þig vel mín kæra.  Ég er flughrædd í meira lagi.  Ætla að blögga um það á morgun.  Ég drekk aldrei í flugi, vil vera alsgáð ef eitthvað kemur fyrir.  Ég flaug í fyrra með vinkonu minni til Portugals og var alveg við það að hætta við - hún sagði við mig að mér væri alveg áhætt þar sem spákona hefði sagt henni að hún yrði allra kvenna elst og myndi ekki deyja í slysi.  Þetta róaði mig ekkert niður, ég benti henni á hugsanlega fyrirsögn í mogganum daginn eftir flugslysið.  "kona bjargast með því að fljóta á líki vinkonu sinnar eftir hrap!."  En vinur minn er flugmaður og hann er sko búin að segja mér að þetta sé ekkert mál, þetta er hugsanlega tengt innilokunarkenndinni og aðgerðarleysinu sem þú finnur fyrir þegar þú flýgur.  I am with you sister in spirit.....fly on the wings of love....

Garún, 22.7.2007 kl. 22:02

3 identicon

Ég elska að fljúga og er ekkert flughrædd..... myndi vilja gera meira af því.

Díta (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 22:12

4 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Blessuð hafðu ekki áhyggjur. Stjarnfræðilega litlar líkur á að lenda í flugslysi...Meiri von um að vinna í lottóinu..kauptu miða og njóttu þess að fljúga kona.

Brynja Hjaltadóttir, 22.7.2007 kl. 22:35

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég flýg sjaldan og hef aldrei hitt dóna, kannski það yrði tilbreyting og ég hefði þá ekki tíma til að vera hrædd. 

Ásdís Sigurðardóttir, 22.7.2007 kl. 22:37

6 identicon

Hafðu ekki áhyggjur. Þú ert mikið öruggari í flugi en í bíl. Góða ferð. 

Guðrún B. (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 22:51

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hún Garún er sú eina sem skilur mig.  Og ekki taka frá mér fóbíuna mína.  Ég gæti sofnað á verðinum. Muhahahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2007 kl. 22:58

8 identicon

Jenný, ég þekki eina sem "var" ofboðslega flughrædd, og þá sérstaklega í flugtaki og lendingu. Einhvernveginn tókst henni að vinna á þessu með því að tala nógu mikið við sessunaut sinn og/eða ráða krossgátur á meðan.  Hún svo vandist þessu, og í dag er henni ekki sama, en hún höndlar þetta miklu betur.

Ég var nú oft með henni á þessum tíma og ég veit alveg að þetta er ekkert grín, en ég veit líka að það er hægt að vinna sig út úr þessu eins og öllu öðru.  Knús á þig bara og ég vona að þetta leysist. Það er svo vont að vera bundin svona við jörðina, því þá kemst maður ekkert.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 23:02

9 identicon

Vá, hvað ég kannast við þessa tilfinningu þegar "þrengist að hálsinum"..
Ég var haldin ofsakvíða þegar ég var unglingur og þá leið mér akkurat svona í flugi.
Þú lýsir þessu nákvæmlega eins og þetta var hjá mér, en því miður veit ég nákvæmlega ekkert hvað varð til þess að þetta hætti. Kannski var það eftir að ég fór að sigla..

Maja Solla (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 23:12

10 identicon

Ég er mjög flughrædd en um daginn þegar ég fór út þá var kona við hliðina á mér sem var obbvíusslí flughrædd svo að ég skemmti mér í hljóð yfir eymd hennar. Svínvirkaði. Verst er að fljúga innanlands. Flaug einu sinni með einhverri dós sem tók svona 7-8 manns frá Höfn til Egilsstaða og MILLILENTI í einhverri afdalabyggð. Vélin hristist og skalf og útsýnið var svona eins og í flugslysamyndum, fjöll á alla vegu með snjó á toppnum. Skerí.

Var að spá á leiðinni heim í síðustu viku þegar ég horfði á Rocky vin minn í vélinni, af hverju flugstjórinn hefði ekki smá húmor og sýndi frekar einhverja flugslysamynd

Í mínu fyrsta innanlandsflugi til Vestmannaeyja þá keyrði bróðir minn mig út á flugvöll og rétti mér svo bók svo ég hefði eitthvað að lesa í vélinni til að dreifa huganum frá flughræðslunni. Ég tók hana og leit á forsíðuna : "Skýrsla flugslysanefndar". Furðulegur húmor í þessari familíu

Dúa (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 23:17

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

ROF þið eru æðisleg.

Auðvitað læt ég ekki hræðsluna hamla mér að því marki að ég hætti að ferðast.  Áður dílaði ég við þetta með því að taka róandi og fá mér í glas og fannst ógisla gaman að fljúga auðvitað.  En núna þarf ég að fara á eigin safa sem er fínt en það er í mér smá skjálfti.  Dúa þú kemur meðmér og saman lesum við skýrslu flugslysanefndar krípið þitt addna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2007 kl. 23:26

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég er í kasti. Gvöð hvað þetta fólk er fyndið. Með meiri ábyrgð (börnum og Breta) fór að bæra á flughræðslu hjá mér sem ég hafði aldrei fundið fyrir. Í hver skipti sem ég flýg núna finnst mér alltaf fáránlegra og fáránlegra að vera að taka á loft í einhverri blikkdós og fljúga upp fyrir skýin. Ég er ekki skyld Wright-brothers, það er á hreinu.

Jóna Á. Gísladóttir, 23.7.2007 kl. 00:18

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Eins og ég sagði Jóna mín þetta kemur með "bretum" og börnum. Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.7.2007 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 2985806

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband