Leita í fréttum mbl.is

HVAÐ SAGÐI ÉG EKKI HÉRNA ÁÐAN

 

..í flugdólgsfærslunni minni?  Er það nema von að maður sé hræddur?  Stjarnfræðilegar líkur á að eitthvað komi fyrir,  minn afturendi.

Ég er farin á námskeið bara strax eftir helgi til að takast á við flughræðsluna.  Spurning hvort það gagnast að vera ekki flughræddur því ef eitthvað kemur svo fyrir í alvörunni verður maður auðvitað skíthræddur hvort sem er. Ég sleppi námskeiðinu og geng brött á vit örlaga minna.

Vandlifað...

Þeinkpósitívlí.


mbl.is Eldingu laust í þotu Iceland Express
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er mjög mikilvægt að vera ekki í háhæluðum skóm þegar maður rennir sér út úr flugvélinni á gúmmírennibrautinni ofan í sjó. Fluffan sem bendir voða fínt á allar dyr og blæs í þykjó í björgunarvesti segir það!

Dúa (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 01:01

2 identicon

Mig er farið að vanta hann J

Dúa (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 01:03

3 identicon

Sko fólk sem setur þurrkara ofan í tösku á ekki að fá að fljúga

Dúa (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 01:13

4 identicon

Ussusssuss svona má ekki segja. Alveg veit ég núna að ormurinn minn fékk rétt uppeldi. Manstu þegar hann múnaði framan í þig og félaga á Cafe Bleu í Kringlunni fyrir svona 2 árum?

Dúa (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 01:23

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

hahaha

Heiða Þórðar, 23.7.2007 kl. 01:25

6 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Þekki ekki flughræðslu (nema meðan börnin voru lítil) en er hins vegar afskaplega bílhrædd, einkum hjá sjálfi mér og mínum nánustu, sem eru bestu ökumenn sem ég þekki. Brjálaðir leigubílsstjórnar í New York hagga mér hins vegar lítið og við lá að mér yrði sparkað úr félagi íslenskra bílahræðslupúka um páskana síðastliðna. Ég á mér einfalda kenningu, svona hræðsla lýtur engum skynsamlegum lögmálum, en mér er sagt að flughræðsla sé auðlæknanleg. Þannig að bara að skella sér á flughræðslunámskeið og vinsamlegast agítera fyrir bílahræðslunámskeiði í leiðinni. Ég mæti á það.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.7.2007 kl. 01:38

7 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Æjá, og eitt enn. Ég hef bæði verið í flugvél sem fékk í sig eldingu (á leið til New York fyrir ca. 16 árum) og eins var flugdólgi vísað úr flugvél sem ég var í í fyrra, ásamt eiginkonu sinni. Get staðfest að hvorugt er ýkja ógnvekjandi. Veit ekki hvernig mér þætti að vera í bíl með bíldólgi eða að fá eldingu í bil, maður heyrir svo lítið um svoleiðis ;-)

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.7.2007 kl. 01:41

8 Smámynd: Kolgrima

Mmmmm.... meðan flugmaðurinn sér...Blindur maður flaug  Annars fór ég í dáleiðslu og það virkaði ágætlega!

Kolgrima, 23.7.2007 kl. 02:06

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe er í kasti.  Ég er fegin að Birta fær með sér spjarir en ekki bara skófatnað Beta mín.

Kaffi Bleu var ég þar stelpur (man ekki var full eða eitthvað fyrir 2 árum)?

Mér er sagt að þeir spari súrefnið í flugvélunum og þess vegna verði dólgarnir til ásamt góðum slatta af eldvatni.

Anna þú verður að blogga um flugdólginn og frú við tækifæri.  Svona verður maður bara að fá að læra af.  Sko fyrirfram aðvaraður, fyrirfram vopnaður.

Farin í dáleiðslu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.7.2007 kl. 02:15

10 Smámynd: Garún

Eina ráð mitt við flughræðslu er það sem virkar best á mig.   Ég segi við sjálfan mig, (rétt eftir að ég hef urrað á flugfreyjuna sem segir að turbulancið sé ekki svo slæmt) "jæjja Garún þá deyrðu bara, það verður alla veganna töff dauðdagi".  

Garún, 23.7.2007 kl. 02:15

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Prufa þetta til sjálfsefjunar Garún systir mín í kvölinni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.7.2007 kl. 02:17

12 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Taktu sénsinn..... það er þess virði!

Frá mér til þín ;)

Eva Þorsteinsdóttir, 23.7.2007 kl. 03:14

13 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Og Nota Bene........ ég er flughrædd, fannst það bara ekki þess virði að vera föst á skerinu að eilífu út af því :)

Eva Þorsteinsdóttir, 23.7.2007 kl. 03:16

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég veit Eva mín, man alveg eftir þinni færslu um flughræðslu.  Hef aldrei látið þetta stoppa mig en mikið anskoti er það óþægilegt.  Er meira fyrir skip júnó.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.7.2007 kl. 08:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 2985829

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.