Leita í fréttum mbl.is

HÚN FRÆNKA MÍN....

..utan að landi, auðvitað, stendur fyrir stóru búi og er með milljón hesta og eitthvað af meme.  Hún á engan mann og á ekki heimangengt frá búskapnum til að krækja sér í einn.  Hún frétti af einkamálum.is og þar væru margir mætir menn á sveimi og vel brúklegir til undaneldis.  Hún setti in auglýsingu þar sem hún tíundaði kosti sína, eignir og útlit.  Það gekk ekki nógu vel, allir voru giftir, nýlega fráskildir eða öðruvísi uppteknir.  Frænkan úr sveitinni gafst ekki upp, hún fattaði að í einkamálum gildir öfugmæla aðferðin.  Eftirfarandi auglýsing var sett inn og nú fær hún ekki frið fyrir eðlilegum mönnum.

Kyn: Kvenkyns
Aldur: 39 ára
Landshluti: Landið og miðin
Kynhneigð: Gagnkynhneigð(ur)
Flokkur: Vinátta / Spjall
 
Hæð: 171 cm.
Þyngd: 65-70 kg.
Augnlitur: Óuppgefið
Hárlitur: Óuppgefið
 
Auglýsing skoðuð: 1534 sinnum
 
Síðast tengd: 22. júlí 2007
Klukkan: 14:47
 
 Óska eftir að kynnast ófríðum, subbulegum, giftum mönnum í verulegri yfirþyngd sem standa í forræðisdeilum (við konu nr. 2 en eru núna með konu nr. 4)) og eru óheiðarlegir, heimskir, gjaldþrota og með fullt af beinagrindum inni í skáp. Best væri svo ef þú ert líka á vondum stað í lífinu.



Til að senda þessum notanda skilaboð þarftu að skrá þig inn hér til hliðar eða nýskrá þig.

 

Þessu vildi ég deila með ykkur elskurnar mínar.

Æmsósjokkd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Garún

Hvar færðu allar þessar skemmtilegu myndir...

Garún, 22.7.2007 kl. 16:50

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Heyrðu góða. Get ekki skráð mig á listann, virkar ekki. Þú verður að koma skilaboðum til hennar frá mér. Ég passa alveg í starfið. Kæri ef einhver annar viðvaningur er tekinn fram yfir mig.

Þröstur Unnar, 22.7.2007 kl. 16:53

3 Smámynd: mongoqueen

Gargggg nó dó ég nánast úr hlátri.....

En mér skilst að þetta sé svona, hef heyrt frá nokkrum að þetta séu bara nánast allt giftir karlmenn og kvenmenn þarna inni að leita sér að viðhaldi

mongoqueen, 22.7.2007 kl. 16:59

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú skalt stinga upp á því við hana að bjóða upp á bændaþjónustu fyrir einhleypa ljóta og feita kalla, þá getur hún skipt út reglulega. Láta þá vinna smá, svo pínu dodo og svo bara "helgin eða vikan liðin" 

Ásdís Sigurðardóttir, 22.7.2007 kl. 17:08

5 Smámynd: Þröstur Unnar

Garún Garún, hægrismelltu á myndina og gerðu properties, þá sérðu hvaðan myndin kemur.

Kína drottning, hvert eigum við hinir þá að leita annað en á Moggablogg?

Sorrý Jennsla mín fyrir að nota kerfið þitt við að reyna að koma mér út.

Þröstur Unnar, 22.7.2007 kl. 17:12

6 identicon

 Þú ert yndisleg,og frábær bloggari

En þetta er svo mikið rétt með einkamál.is

Alveg vonlaust dæmi......bara dj..drulluspaðar þarna inni

Guðrún (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 17:23

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Garún ég hef töluvert fyrir því að finna viðeigandi myndir og nota nú bara google og yahoo. Um að gera að vera sniðugur með leitarorðin.

Annars gott.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2007 kl. 17:27

8 Smámynd: Garún

Ég er nefnilega alltaf að reyna að finna mynd af látbragðsleikurum, æi þið vitið í röndóttum bol.  Veit bara ekki hvað þeir heita á ensku og ekkert kemur upp á íslensku

Garún, 22.7.2007 kl. 17:32

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Húsbandið með húmorinn í lagi....

...sagðist eiga einn aðdáanda og hefði hann heima

Hrönn Sigurðardóttir, 22.7.2007 kl. 17:41

10 Smámynd: Kolgrima

Kolgrima, 22.7.2007 kl. 18:01

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Fann eina á google sem heitir miming with rope (svartröndóttur bolur) en ég leitaði ekki lengra.  Finnur undir "miming"

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2007 kl. 18:02

12 Smámynd: Garún

Takk mín kæra, einmitt það sem mig vantaði.

Garún, 22.7.2007 kl. 18:04

13 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Innlitskvitt...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 22.7.2007 kl. 19:09

14 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi þú ert svo fyndin Jenný mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 22.7.2007 kl. 19:37

15 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Jenný ekki varst þú á úti að borða á vissum matsölustað um hálf 6 í kvöld ?????

Kristín Katla Árnadóttir, 22.7.2007 kl. 20:00

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nei Kristín Katla mín, borðaði hér heima í kvöld.  Ég á hinsvegar 6 systur og einhver þeirra gætu hafa verið úti að borða, sumar eru smá líkar mér, hver veit.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2007 kl. 20:26

17 Smámynd: Rebbý

Takk fyrir þessa ábendinu Jenný
Ég hefði þurft að vita af þessu fyrr, áður en ég eyddi öllum þessum tíma í að sortera í gegnum lofuðu mennina, geðsjúklingana og klámhundana.
Prufa þetta ef ég kíki inn á em aftur

Rebbý, 22.7.2007 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985717

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband