Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

HUGTAKIÐ AÐ BÚA VIÐ SKERT FERÐAFRELSI..

22

..fær nýja merkingu eftir að ég horfði á Kastljósið í kvöld.  Ég varð döpur þegar rakið var í smáatriðum á hvaða forsendum tengdadóttir umhverfisráðherra fékk sinn ríkisborgararétt.  Enn sorglegra er að verða vitni að því að nefndarmennir þrír sem höfðu með málið að gera neituðu að svara fyrir gjörðir sínar.  Er fólk algjörlega búið að gleyma hvers vegna það situr þarna?  Að við kjósendur höfum treyst þeim til verka?  Samkvæmt þessu þá er rétt það sem Kastljósið benti á að það er auðveldara að fá ríkisborgararétt en dvalarleyfi.  Ég ráðlegg þeim sem hafa verið í stöðugum vandræðum vegna dvalarleyfa, að sækja bara um ríkisborgararétt.  Það ætti að skotganga.

Skert ferðafrelsi er nöturlegur raunveruleiki  margra miljóna manna um allan heim.  Það kemur til vegna pólitískra ofsókna, fátæktar og fleiri vondra og ómanneskjulegra hluta í heiminum.  Að þurfa að sækja um dvalarleyfi milli anna í námi og kalla það að búa við skert ferðafrelsi er misnotkun á hugtakinu og hreint skammarlegt að í skjóli samtryggingar skuli gerast svona hlutir eins og virðist klárlega vera raunin samkvæmt ítarlegri umfjöllun Kastjóssins í kvöld. 

Öllum getur orðið á,  líka góðum stjórnmálamönnum.  Að viðurkenna mistök er merki um þroska.  Væri það ekki bara sniðug hugmynd?


MEIRA UM STÖRNUMERKI

22

Ég er að mörgu leyti jarðbundin kona verandi steingeit (hm) en ég hef í mér svona vingulselement sem gerir það að verkum að ég pæli líka í andlegum málefnum án þess að ég sé að flíka því eitthvað sérstaklega.  Stjörnuspeki hefur mér hins vegar alltaf fundist frekar leim.  Litgreiningar og augnalestur líka.  Vinur minn sem var blaðamaður á gamla DV sagði mér að þeir blaðamenn sem hefðu haft fá verkefni þann daginn hefðu fengið stjörnuspá blaðsins sem verkefni.  Það er að skálda hana frá degi til dags.  Ég veit ekki hvort þetta er satt en miðað við stjörnuspár í blöðum þá kæmi mér ekki á óvart að mjög hugmyndasnauðir menn væru í því að búa hana til svo þeir ættu fyrir salti í grautinn.

Ég man aldrei hvað ég er með rísandi (Blush sko merki).  Ég veit þó að það er allt löðrandi í sporðdreka í merkinu mínu.  Minnst af steingeit. 

En hvað um það.  Einu sinni lét ég draga mig á stelpukvöld hjá þekktum snyrti hér í borg (veit ekki afhverju ég lét til leiðast.  Er algjörlega á móti svona fyrirsjáanlegum skemmtiatriðum).  Það var mikið hlegið.  Mér var sagt að ég væri með Davíðs Oddssonar element (hann og ISG bæði steingeitur).  Hvað varð þá um Sollu-elementið?  Ég hefði amk. flaggað því. Snyrtirinn klikkti út með að segja yfir allan hópinn að honum fyndist steingeitur erfiðar (hann vildi ekki endurgreiða mér kvöldið), þær væru svo óþægilegar í tilsvörum, sjáfsuppteknar (moi?) og vissar í sinni sök.  Hm.. það hefði ég nú getað sagt mér alveg sjálf.  Svon nefndi hann dæmi um náinn ættingja sinn sem dæmi um leiðindi steingeitarinnar og útlistaði með orðum og æði fyrirkomulag þessarar manneskju.  Ef Gulli Stjarna hefði ekki gert kort fyrir mig einhverju seinna er ég hrædd um að lítil trú mín á stjörnuappíratinu hefði endanlega dáið drottni sínum.

Þetta skrifar steingeit, með sporðdreka í tungli og bogamann rísandi.

p.s. Er bloggóð í dag vegna þess að ég nenni ekki að þrífa.  Enda lítið drasl hér á bæ.  Ætli það séu stjörnurnar að stríða mér?

OMGW00t


MOGGINN SAGÐI ..

22

..við mig, beint upp í opið fésið á mér, að ég ætti að smæla framan í heiminn.  Ætli þeim finnist ég of alvörugefin?  Rosalega finnst mér það leiðinlegt.  Ég varð smá fúl svona fyrst en svo hugsaði ég að þetta væri sennilega vel meint. 

Þetta er sko mín persónulega stjörnuspá á Mogganum, steingeitin.  Ég veit að hún er skrifuð sérstaklega fyrir mig.

Æi ég gleymdi að þeir sögðu líka að mér hætti til að taka hlutum of persónulega.  Hvernig ætli þeir fái það út?


OG BOMBU DAGSINS Á....

zx

..( og hún er illalyktandi skuluð þið vita) hið "mannvæna" fyrirtæki Impregilo sem hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem mótmælt er harðlega vinnubrögðum yfirlæknis við Kárahnjúkavirkjun og þeim ásökunum sem hann hafi haft í frammi.  Nú þykir mér týra.  Kunna þeir ekki að skammast sín þessir menn?  Bölvuð frekja í lækninum að vera að ætlast til að borin sé virðing fyrir trúnaðarupplýsingum milli sjúklinga og læknis.  Ekki er ósvífinin minni í þessum heilsugæslulækni þegar hann viðrar áhyggjur sínar af starfsfólki því sem hann ber heilsufarslega ábyrgð á sem fær matareitranir og mengunarsjúkdóma á færibandi.  Pólisía fyrirtækisins er greinilega sú að við fíbblin eigum að láta þá í friði með sín mannréttindabrot.

Nú hefur talsmaður fyrirtækisins lokað á athugasemdir hjá sér á blogginu.  Talsmaðurinn er svo skemmtileg myndbirting þessa bófafyrirtækis sem Impregilo er.  Þeim er illa við að fólk tjái sig, talsmanninum greinilega líka.

Fyskam!


mbl.is Impregilo mótmælir vinnubrögðum og ásökunum læknis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KYNLÍF - KYNLÍF, ENN OG AFTUR KYNLÍF

22

Kynlíf selur og telur á blogginu sem og annars staðar.   Ellý Ármanns er að sprengja teljarann á vinsældarlistanum með sínum kvenlegu Bósasögum.  Í Mogganum í dag er grein um að steinaldarmenn hafi lifað fjörugu kynlífi.  Hm.. þurfti að rannsaka það?  Bölvaðir frummennirnir héldu kynlífsþræla og það segir mér að heimurinn hefur lítið breyst.  Það er einnig talað um að það hafi verið af praktískri þörf að einkvæni komst á. 

Annars hélt ég að skrif um kynlíf væru ekki svona rosalega biggdíl á þessum upplýstu tímum.  Það er einhver Tígulgosastemming í gangi.  Allir voða spenntir ef einhver laumar smá sexi í færslunar.  Þess blautari sem textinn er þess meiri áhugi. 

Ætla ekki að gerast kynlífstextahöfundur.  Ég læt aðra um það.

Súmí!


SIÐMENNTUÐ AFSTAÐA

22

Siðmennt vill að trúfélög fái heimild til að gefa saman samkynhneigð pör.  Þeir hafa gefið út fréttatilkynningu þar sem þeir ítreka þá afstöðu sína.  Mér finnst þetta ofur flott hjá þeim en ég sé ekki alveg hverju þetta breytir varðandi hjónaband samkynhneigðra innan þjóðkirkjunnar.

Annars er það sama við hvern maður talar þessa dagana, allir eru æfir yfir niðurstöðu kirkjuþings. Það er sorglegt þegar kirkjan sem við fæðumst inn í er á skjön við vilja stórs hluta þjóðarinnar.

Það er ekki til neins að skrifa og tala meira um þennan ógjörning á s.l. kirkjuþingi.  Það eina sem við getum gert til að lýsa vanþóknun okkar á þessum mannréttindabrotum er að ganga úr kirkjunni og þeir sem vilja heyra til einhvers staðar geta auðvitað látið skrá sig í Siðmennt.  Eða Fríkirkjuna, eða Ásatrúarfélagið, eða Krossinn (segi sonna).

 

 


mbl.is Trúfélög fái heimild til að gefa saman samkynhneigð pör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LISTI II EITUR Í BEINUM VIÐAUKI

 22

Ég fann það út þegar ég skrifaði eiturbeinalistann í gær að ég væri smásmuguleg kona sem gæti látið ótrúlegustu hluti fara í taugarnar á sér.  Ég fékk svo skemmtileg viðbrögð frá gestum þessa fjölmiðils að ég sætti mig við vankantana og hugsaði með mér að ég gæti játað það fyrir sjálfri mér og öðrum að þetta væri bara rétt yfirborðið af pirrandi þáttum í lífi mínu.   Það eru alveg ótrúlega margir hlutir sem geta gert mig ergilega þegar grannt er skoðað án þess þó að þvælast mikið fyrir mér svona dags daglega.  Hér koma nokkur atriði í viðbót.

1. Þegar fólk kallar flokka eftir listabókstöfum með x-i fyrir framan.  Segir að XD og XF séu sí og svo en XS, XV eða XF séu svona eða hinsegin.  Maður setur X fyrir framan listabókstafinn.  Flokkarnir heita ekki X-eitthvað.  Arggghhhhh

2.  Þegar sumir karlmenn (oft eldri menn núorðið) eru í svörtum dralonsokkum með hnökri og þegar buxurnar kippast upp þegar þeir setjast má  sjá í náföla leggi með löngum svörtum hárum.  Þá langar mig að.... segekkimeir.

3. Þegar síminn er búinn að þegja allan daginn og maður ákveður að fara í bað.  Kveikir á reykelsi og kertum og hendir sér ofan í baðið.  Liggur marflatur í góðum fíling og síminn hringir!  Ég verð að svara í símann.  Ég gæti annars misst af einhverju.

 4. Þegar maður er að horfa á geðveikt góða bíómynd og er alveg inni í myndinni og allt í einu tekur maður eftir því að atriðið úti á götu er bara leikið án statista og allir eru að glápa á leikarana.  Algjört turnoff.

5. Fólk sem veður að manni í rúminu (vonandi alltaf einhverjir sem eiga fullan rétt á að vera á svæðinu) þar sem maður sefur værum svefni og gargar í umhyggjusömum tón: "Ertu sofandi?"

6. Þegar maður er að máta föt inni í klefa í fatabúð og er búin að strippa niður í næstum ekki neitt og þá sviptir afgreiðslustúlka á prósentum tjaldinu frá þannig að ALLIR sem nálægir eru sjá mann náið og spyr vingjarnlega:  "Ætlarðu ekki að máta"?

7. Og talandi um mátunarklefa.  Ég hef ekki enn komið inn í þann mátunarklefa (og er þó CV-ið í fatakaupum mínum orðið æði umfangsmikið) þar sem það vantar ekki amk. 5 cm upp á að tjaldið passi fyrir klefann báðum megin.  Sko skekkja upp á 10 cm. alveg pottþétt.

8. Stofnanir sem tíma ekki að uppdeita símsvarann og það er sama hvort þú hringir á mánudegi þegar allt er opið eða um helgar til að athuga með opnunartíma eða eitthvað að sagt er á símsvaranum í mjög sannfærandi tón: "Allir þjónustufulltrúar eru uppteknir í augnablikinu þú ert nr. 10 í röðinni.  Jafnvel þótt ekki sé kjaftur í vinnunni, allir upp í bústað eða eitthvað og er skítsama þótt þú bíðir vongóður eftir að það komi að þér.

9. Þegar maður rekst á draumaflíkina á herðatrénu í fatabúðinni mátar hana og fellur í trans af hamingju, þrælar sér með blóðbragðið í munninum upp að afgreiðsluborðinu stynur "éætlafáetta" á innsoginu og færð svarið: "Því miður þetta er sýniseintak og er ekki til sölu, varan er uppseld í bili".

10. Þegar maður situr í tómum strætó og inn kemur einhver deli, illa lyktandi kannski, jafnvel fullur eða eitthvað og hlammar sér niður við hliðina á manni í þröngt tveggja manna sætið þar sem nándin við viðkomandi verður gargandi óþægileg og allir halda að þetta sé maðurinn manns eða eitthvað.  Sko allir sem eru nottla alltaf að fylgjast með fáum hræðunum í strætó.  Mikið af sollis fólki.

Nú kemur www.betaer.blog.is  til með að segja að ég sé pirruð.  Iss nei Beta mín það er svo gott fyrir óvirka alka að hella pirringnum út á cypertómið og viðurkenna um leið vanmátt sinn til að hafa stjórn á pirringi vegna smámuna.

SíjúgæsHeart


VG ENN Á BLÚSSI

 22

Vistri-grænir bæta við sig þingmönnum í nýrri skoðanakönnun Capacent sem gerð er fyrir RUV og Moggann.  Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig líka. 

VG mælast með 23,9%, Sjálfstæðisflokkur með 28% báðir flokkar bæta við sig manni. Samfylking fær 19,7% og heldur samkvæmt könnuninni sínum tveimur mönnum.  Framsókn mælist með 21,9%.

Framsókn tapar hins vegar tveimur mönnum miðað við síðustu kosningar.  Ég er ekki hissa á því að Framsókn sé að tapa eftir miður skemmtilegar uppákomur hjá flokknum undanfarið.  Þegar ég horfði á Kastljósið í kvöld með Jóni Sigurðssyni sem kemur nú yfirleitt ágætlega fyrir af Framsóknarmanni að vera, fannst mér leiðinlegt að heyra hvað hann varð snöggpirraður þegar spurningarnar voru honum ekki að skapi.  Hvernig Framsókn getur varið allar gjörðir sínar eftir þessa tólf ára þrásetu í ríkisstjórn er mér fyrirmunað að skilja.  Jón sagði reyndar að þeir gætu ekki farið í stjórn ef þeir kæmu illa út úr kosningunum.  Ég vona að hann meini það.

Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki gjalda fyrir sína sextán ára valdasetu við kjötkatlana.  Það er með ólíkindum að þeir skuli sleppa, amk. í skoðanakönnunum.  Furðulegt fyrirbæri þetta og fróðlegt væri að heyra hvers vegna.

Við VG erum í gírnum.  Eftir því sem kosningadagurinn nálgast verð ég meðvitaðri um það með hverjum deginum sem líður hvurs lags stórslys það yrði að fá sömu ríkisstjórn enn og aftur til næstu fjögura ára.

Úff..


mbl.is Sjálfstæðismenn og VG bæta við sig mönnum í Norðausturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SVO LEIÐINLEGT..

22

..að þetta skuli hafa komið fyrir sagði Valgerður Sverrisdóttir í Silfri Egils í dag þegar verið var að ræða Impregilo málið og aðstæðurnar á Kárahnjúkum.  Mér finnst Valgerður reyndar töff kona og ég held ekki að hún hafi ekki ætlað sér að láta þetta álit sitt hljóma eins og um einangrað "slysatilfelli" hafi verið að ræða.  En þetta sagði hún samt.

Það hafa allir sem hafa kært sig um, vitað lengi að þarna fer fram ill meðferð á verkafólki og þar hafa verið margbrotin lög á því, bæði í launamálum, almennnum aðbúnaði og fleiru.  Þetta er eins og Ögmundur sagði réttilega í þættinum "svartur blettur á ríkisstjórninni".  Impregilo eru sökudólgarnir, þeir eru bófarnir í atvinnulífinu og fara ekki eftir þeim lögum og reglum sem hér gilda varðandi verkafólk.  Meira að segja stjórnendur fyrirtækissins hafa dregið í land með "rétt" sinn að fá prívat sjúkraskýrslur í hendurnar og gerðu hinum íslenska talsmanni Impregilo skömm til. Líklegast hafa þeir áttað sig á að frekari hroki væri fyrirtækinu ekki til framdráttar.

Allir fulltrúar stjórnmálaflokkanna sem þarna sátu hörmuðu að sjálfsögðu þennan hroða sem þarna gerðist.  Slysatíðnin hefur verið óeðlilega há þarna, matareitranir, eiturgufurnar í göngunum og Guð má vita hvað fleira þetta alræmda fyrirtæki er ábyrgt fyrir.

Annars var það staðfest enn og aftur þarna í Silfrinu í dag að það kemst ekki hnífurinn á milli stjórnarflokkanna.  Það litla sem ég sá af Guðlaugi Þór var þegar hann var að mæla upp vitleysuna í Framsókn.

Vinstri græn hafa farið fram á opinbera rannsókn á öllum málefnum Impregilo hér á landi.  Í ljósi þess sem gerst hefur er það sjálfsögð og eðlileg krafa.  Ég er viss um að íslendingar vilja ekki láta koma svona fram við fólk.

P.s. Myndin sem fylgir pistlinum er af eitruðu kvikindi.  Mér fannst það svo passandi eitthvað.


LISTI I - EITUR Í MÍNUM BEINUM

45

Ég er alltaf að sjá lista út um allt yfir alls konar hluti sem fólk elskar og hatar og hatar að elska.  Þetta er kannski ekki svo vitlaust að búa til lista yfir gott og vont.  Ég ætla að reyna og byrja á því sem er eitur í mínum beinum.

1. Köngulær í öllum stærðum, gerðum og útliti megi þær vera eitraðar eður ei.  Ég missi mig einfaldlega þegar ég sé þær, verð eins og fíbbl og haga mér eins og örviti.

2. Borðtuskur sem hafa verið notaðar lengi, lengi án þvottar.  Ég hef hvergi rekist á þessar illjaþefjandi bakteríunýlendur í tugi ára en ég átti tvær vinkonur þegar ég var stelpa og heima hjá þeim voru tuskurnar notaðar í tilfallandi verkefni frá gólfi til lofts í öllum vistarverum.  Ég berst við að muna ekki eftir lyktinni en hún er í sýsteminu og komin til að vera. Vitið þið hvernig mjólk í bómull lyktar eftir að hafa legið í sólbaði á eldhúsborðinu skamma hríð?

3. Fólk sem situr og talar við tvær manneskjur samtímis, horfir bara á aðra þeirra en hin situr vandræðaleg, reynir að vera áhugasöm og hluti af samræðufyrirkomulaginu en sá sem talar sér bara þann sem hann byrjaði að negla augun í.  Dæmi um þetta: Ómar Ragnarsson í viðtali við formenn flokkana og hann startaði á föstudagskvöldið.  Sigmar og Brynja töluðu við hann en Ómar hafði neglt sig á Simma og þar tókst honum að ríghalda augnkontakt nánast frá byrjun til enda.

4. Karlkyns fæðingarlæknar sem beygja sig niður að konu í barnsnauð þegar hún veinar af sársauka og segir óþolinmóður: "Svona kona, þetta er ekki svona sárt".  Hann nottla búinn að fæða sjálfur heila örbirgð svona prívat og persónulega og talar af reynslu.  Fæðingar hans hafa farið fram í gegnum lestur bóka í læknanáminu.

5. Fólk sem grípur inn í ef maður er að bisa við eitthvað og segir "ég skal gera þetta" og týnir eða skemmir það sem maður var að reyna að laga/breyta/skrúfa/negla/bora/hræra/skrifa osfrv.

6. Vörur í Stórmarkaðnum sem eru í efstu og næstefstu hillu og enginn stigi á staðnum.  Er ætlast til að maður kaupi þær eða eru þær til skrauts?

7. Jólalög sem voru einu sinni sumarlög í útlöndum (Bjöggi með ítölsku lögin t.d.).  Andstyggilegasta dæmið er "litla jólabarn" eða "lille sommerfugl".

8. Fólk sem er rosa pirrað en heldur því í sér og spyr mann bjánaspurningar.  Maður finnur geðveikina sem ólgar í viðkomandi fer í dálitla vörn, röddin hækkar smá og maður flýtir sér rosalega að svara og þá segir sá pirraði með ýkt trylltri röddu "af hverju ertu svona ROSALEGA pirruð?". ARG

9. Þegar maður missir eitthvað úti í roki, það fýkur og maður hleypur og er að ná því og alltaf á því stigi, alltaf sko, þá fýkur dótið lengra.  Getur tekið tímana tíu.

10. Þegar fólk horfir á mann skera af sér puttann við salatgerðina, blóðið fossar og skvettist upp um alla veggi og beinir orðum sínum til manns þar sem maður liggur nær dauða en lífi úr sársauka  "meiddirðu þig?".

Klóraði smá í yfirborðið.  Soldið gaman svona sérstaklega að kvöldi til þegar maður á að fara að sofa að rifja upp svona skemmtilegheit.  Blóðþrýstingur og sykur upp úr öllu valdi.  Hjartað í yfirvinnu og slagæðin á hálsinum hamast eins og stórfljót og hún sést utanfrá sem btw er eitt af því sem er eitur í mínum beinum.

Gúddnæt!


Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985742

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband