Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007
Miðvikudagur, 4. júlí 2007
ÞÚSUNDIR MANNA Í KÓPAVOG..
..til að mótmæla því að Goldfinger verði opinn áfram. Mikill hugur er í fólki þar sem það streymir gegnum Fossvogsdalinn, með mótmælaspjöld, allir sameinaðir í markmiðinu, Íslendingar, útlendingar, konur og menn. Loksins náðist samstaða.
Óviðeigandi tenging við frétt? Ó nei, þetta er óskalisti sem ég er að birta hérna í von um að samvinna náist á Stór-Reykjavíkursvæðinu að leggjast á eitt, gegn vændi, mansali og súludönsum. Hvar sem þá er að finna. Þá verður gott að búa í Kópavogi og Reykjavík (segi svona).
Annars verður mikið um dýrðir í Kópavoginum annað kvöld því þá fagnar Ungmennafélag Íslands 100 ára afmæli sínu með stærsta landsmóti sem haldið hefur verið hér á landi.
Úje!
![]() |
Þúsundir manna á leið í Kópavoginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 4. júlí 2007
AÐ LIFA MÝTUNA
Mér er illa við goðsagnir. Sérstaklega þær sem lúta að samskiptum kynjanna. Arg hvað þær fara í taugarnar á mér og vó hvað þær eiga sjaldan rétt á sér. Mýtur eins og t.d.
Konur elda af nauðsyn, karlar elda af ástríðu.
Tengdamæður eru ömurlega við tengdadætur/tengdasyni.
Karlmenn kunna ekki á þvottavélar konur geta ekki skipt um dekk.
Konur kunna ekki að keyra.
Konur eru kaupóðar karlar hata stórmarkaði. Hm.. þessi situr svolítið í mér. Í mínu tilfelli og húsbandsins er klisjan nefnilega sönn. Ca. einu sinni í mánuði dreg ég hann með mér í Kringluna og kaupi það sem ég nenni ekki að kaupa dags daglega. Í dag vorum við að versla í matinn, húsbandið var að kaupa sér skó, ég þurfti í snyrtivörubúð og svona annað smálegt og gott bara. Húsbandið segir að ég fái "hillusvip" í búðum. Að ég verði dreymin á svip og til alls líkleg þegar ég stend frammi fyrir miklu hilluplássi fullu af góssi. Þannig að einu sinni í mánuði lifi ég bölvaða mýtuna og ég hata það. Ég reyni að lokka húsband með að benda honum á tónlistardeildina, kaffihúsin, græjudeildina og sjónvarpsdeildina en hann víkur ekki frá mér. Svo illa lifir hann sig inn í mýtuna um kaupóðu konuna að þegar við komum að kassanum, visakortið er rifið upp, þá stendur hann eins og dauðadæmdur maður þangað til upphæðin er nefnd. Í hvert skipti færis svipur óheyrilegs léttis yfir andlitið og hann lítur á mig þakklátum augum, svona líka glaður með að ég hafi ekki sett okkur á vákortalista kortafyrirtækisins. Alltaf svo hissa. Einu sinni í mánuði alveg standandi hissa.
Ég get svarið það. Ég vil ekki vera klisja. Ég fer með vinkonum mínum eða dætrum næst.
Síjúgæs
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 4. júlí 2007
BÚHÚFÆRSLUJÖFNUN
Hér má sjá hetju dagsins hann Oliver við ýmis tilefni. Nú er sérfræðingur búinn að skoða fótinn og gifsið (eða gipsið) nær nú bara upp að hné og hann hendist um allt, alveg rosa glaður. Mamman og pabbinn fara með kvöldfluginu til Spánar þannig að þetta fór nú betur en á horfðist.
Ég talaði við Oliver í símann áðan hann sagði "noine" (9) fyrir Granny-J svo hún gæti fengið sitt daglega krúttukast og sagði líka "love you amma". KRÚTTMUNDUR DJÓNS.!Þannig að nú eru allir glaðir, enginn rosalegur skaði skeður, börn gróa fljótt. Nú mætti bara bévítans hryðjuverkaógninni létta af London og helst auðvitað öllum heiminum svo amman geti slappað af.
Síjúgæs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 4. júlí 2007
HILARY HVAÐA?
Hillary á heljarþröm er yfirskrift viðtengdar fréttar með þessari færslu. Ég er aðdáandi Hillary Clinton og brá nokkuð þegar ég las þessa mögnuðu setningu. Hvað hafði komið fyrir? Var karlinn búinn að hoppa upp á framhjáhaldsvagninn einn ganginn enn? Var hún að dala í skoðanakönnunum? Var hún komin á barm taugaáfalls af álaginu.
Ég las fréttina og vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða gráta. Þarna var bara verið að fjalla um unglingsstúlku sem heitir Hillary og ég vissi ekki einu sinni að væri til, hvað þá heldur að hún væri fræg. Ég hlýt að hafa misst af miklu því það stendur að hún sé "gríðarlega fræg stórstjarna". Ég er greinilega ekki eins mikið með á nótunum og ég hélt.
Bítsmí!
![]() |
Hilary á heljarþröm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 4. júlí 2007
Á HLIÐARLÍNUNNI
Læknirinn í Svíþjóð sem er að bjóða ódýrari lyf á heimasíðu sinni, gæti gert góðan bissness. Það er öllu nær að hafa lyf á eðlilegu verði hér á landi svo fólk þurfi ekki panta sér þau á netinu í sparnaðarskyni.
Læknirinn hlýtur að eiga að vera einhversstaðar að lækna hrjáða.
![]() |
Býður ódýrari lyf á netinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Miðvikudagur, 4. júlí 2007
ÞAÐ ER EINHVER...
..ekki með alveg fulla fimm í fréttaskrifum Moggans þessa dagana. Fyrr má nú vera skortur á vinnuafli. Ég var búin að rýna í þessa margoft og var að reyna að átta mig á hvað yfirskriftin þýddi og loksins kviknaði ljós.
Ætli það sé átt við hjálparstörf? Ef svo er þá er bara að taka ofan fyrir Sólveigu Þorsteinsdóttir og hugsa hlýlega til höfundar fyrirsagnarinnar.
Gúddnætgæs!
![]() |
Sólveig Þorvaldsdóttir til neyðarstarfa í Pakistan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 4. júlí 2007
FLOTT DAGSETNING
Það telst nú varla til frétta að einhver ætli að gifta sig 070707, svo fyrirsjáanlegt eitthvað. Eins og ég hef áður sagt þekki ég til götumanns sem ætlar að verða edrú á þessum degi. Það eru fréttir.
Ætli þessi dagur verði öðruvísi en aðrir dagar? Svo flott að skrifa dagsetninguna. Ég kaupi mér kvittanahefti.
Úje
![]() |
Eva Longoria og Tony Parker gifta sig 07.07.07 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 4. júlí 2007
ALVÖRU BÚHÚ BLOGG
Barnið að springa úr hamingju í gær eftir að amma-Brynja mætti á svæðið
Í dag varð hann Oliver fyrir smá slysi. Smá er kannski ekki rétta orðið en hann brákaðist á fæti þegar hann var að leika sér í kvöld. Mamman og pabbinn voru á leiðinni til Spánar á morgun og amma-Brynja og Gunnur stórafrænka komnar út til að passa og svo gerist þetta. Nú er Oliver í gifsi og á morgunn þarf að fara með hann til sérfræðings til að skoða fótinn betur. Hvers lags óheppni er þetta eiginlega? Í mars þegar litla fjölskyldan ætlaði að koma til landsins í heimsókn fékk elsku dúllan hlaupabólu og þau frestuðu ferðinni. Æi hvað ömmunni finnst vont að litla krúttið hafi meitt sig. En svo getur maður tekið Pollýönnu á dæmið og þakkað fyrir að hann brákaðist bara.
Elsku Mays, Robbi, Brynja Gunnur og Oliver. Bítið á jaxlinn, þetta reddast.
Meðfylgjandi myndir eru frá í dag. M.a. þegar gifsið var sett á Oliverinn. Amma-Brynja nottla á ömmuvaktinni.
Gunnur stórafrænka og A-Brynja Gunnur og Maysan Robbinn og Oliver á spítalanum í kvöld
Og Jesúsminn þarna er verið að setja á mann gifsið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Þriðjudagur, 3. júlí 2007
FANTALEG FIMMHUNDRUÐ FERLÍKJA FRAMKOMA, VAR Í ÆSKUÁSTINNI ÞEGAR ÉG HITTI HANN Í DAG," ÝLFRAÐI FORTÍÐARFÍKIN VINKONA MÍN, SEM MÉR FINNST EKKI SKEMMTILEG OG SEM ALLTAF LEITAR AFTURÁBAK EFTIR ELSKHUGUM
Úff hugsaði ég, hvaða fortíðardraug hefur hún nú elt uppi að,vitandi að hún lætur ekkert tækifæri fram hjá sér fara til að upplifa á ný löngu liðnar unaðsstundir. "Jenny ég sá hann fyrir utan bankann og hann var jafnfallegur og í denn bara sköllóttur og ég gekk að honum og spurði hvort hann héti ekki Mávur Sílason. Sko hann mældi mig út, ferlega skrýtinn á svipinn, eins og hann vildi ekki þekkja mig og sagði; nei en ég er statívið fyrir hárkolluna hans".
Þorrí vinkonur mínar eru bilaðar, ég er hins vegar fullkomin.
Er eiginlega alveg að hætta að mótefnisblogga.
Kannski bara einusinni enn.
Síjúgæs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Þriðjudagur, 3. júlí 2007
LYKTAROFSKYNJANIR FRÚ JENNYAR
Eftir að ég varð edrú og flott hefur lífið leikið við mig. Slæmu dagarnir heyra til undantekninga og eru ekkert, bókstaflega nada, í samanburði við það helvíti sem fylgir virkum alkahólisma. Nóg um það í bili.
Þegar ég verð þreytt hins vegar, trassa svefninn minn og máltíðirnar, sem stundum kemur fyrir (okokok ég veit að þið bloggvinir mínir eru sannfærðir um að ég sé fullkomin) fæ ég stundum "flashback" í formi lyktar. Þetta er oft "lyktarminni" frá erfiðum tímum, eins og þegar ég var lögð inn á spítala á Spáni, lyktin af olíunni, matnum og dauðhreinsuðu umhverfi, skellur fyrir vit mér af öllu afli. Þetta gerðist síðast í morgun. Ég fæ líka stundum lykt í nefið sem er eins og lykt á bar, svona súr rauðvínslykt, rykug, klístruð með úldnu nikótínívafi. Ákaflega yndisleg nostalgia eins og fólk getur ímyndað sér.
En stundum sigrar maður í ofskynjunardeildinni. Þar sem ég sat hérna áðan úti á svölum þá fann ég allt í einu sterka rjúpulykt. Lynglyktina sem kemur þegar ég sýð rjúpur, alveg jóla sko. Ég leið nánast út af af hamingju, þefaði út í loftið eins og perrinn í "parfume" og lyktin varð bara sterkari og sterkari. Jesús ég er komin í jólaskap og það í byrjun júlí þegar lyktin á að vera af nýslegnu grasi, óhollum grillmat og sætri blómaangan.
Mig langar svo í rjúpu.
Sorry Anna Karen
Síjúgæs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr