Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

FÓTBOLTI OG HEITAR TILFINNINGAR

1

Ég veit minna en ekki neitt um fótbolta og hef raunar engan áhuga á að kynna mér hann heldur.  Ég veit hins vegar að hann kallar á heitar tilfinningar í umræðunni, eins og t.d.  núna, þar sem fram fer blótsyrða- og ærumeiðingarmót inni á bloggi greifans (held ég að hann kalli sig) þar sem karlmenn aðallega spúa galli í kommentakerfinu eftir vægast sagt ómerkilega færslu hjá bloggaranum sjálfum um Bjarna Guðjónsson (sem ég veit ekkert um), að hann sé jafn ömurlegur og pabbi hans (sem ég veit ekkert um heldur).

Hvernig getur boltaíþrótt orðið að eldheitum trúarbrögðum?  Hvernig getur íþrótt kallað fram alls konar neikvæða hegðun hjá fólki (lesist karlmönnum) og í verstu tilfellunum orsakað óreiðir og vitfirringu sem allir þekkja afleiðingar að.

Ég á ekki orð.  Maðurinn þurfti lögreglufylgd heim. 

Gróöppgæs!


mbl.is Bjarni þurfti lögreglufylgd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KYNSJÚKDÓMAVÖRNINA MEÐ Í BÍLINN, BÁTINN, FLUGVÉLINA, TJALDIÐ, FELLIHÝSIÐ OG BEÐJUNA AUÐVITAÐ

1

Í fyrra greindust 1729 klamydíutilfelli á landinu.  Ég var mjög hissa þegar ég las hversu margir eru að koma sér upp kynsjúkdómum í upplýstu þjóðfélagi.

Einu sinni var læknir nokkur sem var með ráðleggingardálk í blöðunum, hann var með sérfræðingskunnáttu á allt sem kemur upp í lífinu eins og td. að setja upp gluggatjöld, kaupa nýjan bíl, kaupa gamlan bíl, að bóna gólf, að vera kona, að vera með túrverki, að kaupa sumarbústað, að mála húsið, að fara í megrun og fleira slíkt sem við gerum í lífinu. 

Ég man hins vegar ekki til að þessi sami maður hafi vitað eitthvað um kynsjúkdóma.  Ég er hins vegar með lausn á þessu fyrir bráðláta Íslendinga sem hoppa upp í án þess að biðja um kennitölu og skóstærð liggiflélagans.  Landlæknisembættið verður að útbúa "kitt" fyrir almennan markað þar sem hægt er að taka "instant" kynsjúkdómatest á viðkomandi, áður en fólk hendir sér í leikinn, ekki bara fyrir klamydíu heldur líka fyrir lekanda.  Því hann grasserar ennþá.

Ég hef boðið mig fram til starfa á fjölmiðlum landsins, var rétt í þessu að senda þeim bréf þar sem ég mun selja mig hæstbjóðanda  og verð þá með ráðleggingardálk sem mun heita því hnitmiðaða nafni "spyrjið Jenny um hvaðeina".

Það er ekki grín gerandi að kynsjúkdómum.  Það vitið þið auðvitað.


mbl.is 1729 klamydíutilfelli á síðasta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÉG ER AÐ MISSA ÞAÐ - GJÖRSAMLEGA AÐ TAPA MÉR

 

Í gær var ég sjálfri mér og öðrum til skemmtunar í Kringlunni.  Mér til skemmtunar af því ég gekk á milli búða.  Gestum og gangandi til ómældrar ánægju þar sem ég gekk hnarreist um með gleraugun á nefinu og sólgeraugun á hausnum. 

Það snérust hálsar.  Ég hélt að það væri vegna óumræðilegs glæsileika mín.

Læfsökks!


AUMINGJA TAKERU GREYIÐ

2

Takeru "flóðbylgja" tapaði í pylsukeppninni fyrir Joey Chestnut í pylsuátskeppninni í New York í gær.  Ég er dálítið leið vegna Takeru.  Hann er búinn að vera lengi í æfingabúðum, var vel trimmaður, sterkur og bardagaglaður þegar hann mætti til leiks að þessu sinni, tilbúin í enn einn sigurinn í þessari erfiðu íþrótt, þar sem snerpa, greind og hungur í bikarinn skiptir öllu máli.  Sálfræðilegt ástand Takeru var hins vegar ekki alveg nógu gott og hann missti einbeitinguna á fyrstu mínútunum.

Arg, hann vinnur næst, það er ég viss um. 

Minn maður flóðbylgjan.


mbl.is Nýr pylsuátsmeistari krýndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MÓTEFNABLOGG LIGGUR NIÐRI...

1

.. þar til á föstudaginn vegna efnisskorts.  Allar mínar leiðinlegu vinkonur eru svo fágaðar þessa dagana, hanga bara á kaffihúsum eða við baðstaði borgarinnar (alla 500) og njóta lífsins. Ég talaði við nokkrar þeirra og fyrir utan að vera sármóðgaðar yfir því að ég opinberaði þessar slöku hliðar á þeim, þá voru þær ekki glaðar með að ég skyldi upplýsa lesendur bloggsins um að mér fyndist þær leiðinlegar, taktlausar og þul.  Ég sagði þeim reyndar að það væri alls ekki kvenfyrirlitning fólgin í því að gera lítið úr konum. Ósei,sei nei. Það hefur upplýsingagildi og þegar best lætur hvetur það til opnari umræðu, tam um kynlíf.  Merkilegt en satt. Að níða skóinn af konum hefur því afspyrnu jákvæða merkingu.  Sérstaklega þegar það er gert af kynsystrum þeirra.

Ég var að velta því fyrir mér hvort sólin hafi ekki jákvæð áhrifa á fólk í þá veru að það þoli sjálft sig aðeins betur.  Þurfi ekki að hlaupa um allt til að leita að fólki til að spegla sig í.  Þessar konur eru amk. ákaflega sáttar við sjálfa sig en á meðan er ég efnislaus sem er auðvitað slæmt því "the show must go on".

En þar sem allt fer í hringi, líka við stelpurnar, þá bíð ég róleg eftir að næsta fár gangi yfir og þá neyðist ég líka til að blogga um það en það geri ég bara sem innlegg í kvennabaráttuna.

Muhahahahaha!


NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST

 

Sko ef hún Laufey bloggvinkona og einn af nágrönnum heimilisins fyrir heimilislausa við Njálsgötu, væri ekki í London og ég í öruggu skjóli, þá þyrði ég ekki að skrifa um þetta mál eitt einasta orð.  Sko ég skil ekki þessi læti sem verða oftast, hvar sem er í borginni ef opna á einhvers konar heimili fyrir illa statt fólk.  Auðvitað er þetta ákveðið álag á nágranna, en oftar en ekki rætist úr svona starfsemi og fyrr en varir eru allir ánægðir.

Það sem mér finnst hallærisleg málamiðlun hjá borginni að fækka vistmönnum niður í 8 í stað 10 sem upphaflega var áætlað að byggju þarna.  Ég held að það skipti varla miklu máli.  Allavega opnar heimilið eigi síðar en 1. október nk.

Ég held að nú verði allt vitlaust út af þessu máli.

En hvernig er það; eru heimilislausir ekki hættir að vera það þegar þeir flytja þarna inn?

Laufey súmíHeart


mbl.is Ákveðið að hefja rekstur heimilis fyrir heimilislausa í haust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÓTAMDAR ÁSTRÍÐUR, LÍKAMSVESSAR, DÓP OG DJÖFULGANGUR, DRYKKJULÆTI OG DJÚSÍ FRÉTTIR!!!

 

1

Þið eruð nú meir perrarnir kæru vinir.  Ráðist hingað inn alveg að drepast úr forvitni og haldið að hér sé einhver vímuefnaorgía í gangi.  Sjáið Ellý og Jónínu Ben!  Er einhver innistæða fyrir þeirra fyrirsögnum?

Frusssssssss

Hér erum við að biðja bænir sko.

AMEN


BLOGGVINAFOK

Þrjár afskaplega óhamingjusamar manneskjur fuku út af bloggvinalistanum í dag. Hvers vegna?  Jú vegna þess að bloggvinatiltekt er fastur liður hjá mér og ég verð að geta skrifað eitthvað um tiltektina í hverri viku.  Annars voru þessir þrír hættir að blogga.  Minnir mig (hehe).  Það er svo gaman að skrifa um bloggvinatiltektir, þá verður svo mikil þátttaka í kommentakerfinu. 

Annars fuku ljót orð, mikið var grátið þegar við fórum á kaffihús í dag og gerðum upp okkar mál, ég og þessar þrjár ólukkulegu mannverur.  Við skildum ekki sátt en ætlum að láta þetta malla og endurnýja kunningsskapinn í haust.

Þetta vildi ég láta ykkur vita elskurnar.

Síjúinalittulvæl.


HVERNIG HEFÐUM VIÐ FARIÐ AÐ..

 

..hefði ekki París Hilton sagt okkur að akstur og áfengisneysla eigi ekki saman?  Hérna erum við búin að vaða í villu en spekingurinn mikli frá Beverly Hills deilir með okkur af rausnarskap sínum.

Ég er komin með króniskt ofnæmi fyrir PH.  Tekur þetta aldrei enda? 


mbl.is Akstur og áfengisneysla eiga ekki samleið að sögn Parisar Hilton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SUMARIÐ HENNAR JENNYAR UNU

Hér kemur sumarsyrpa af henni Jenny Unu Errriksdótturrrrr, fólki til yndisauka.

Gjörsvovel!

001003006

Jenny og Sara "binkona"            Ef þú smælar framan í heiminn þá mun..           ég fæ franskar hjá ömmu og Einarrrri

0040050002

Jenny hugleiðir                  og skellihlær                  og blæs sápukúlur með Isabellu

Sumarið er svo dásamlegt þegar maður er tveggja árrrrrrra.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 2987946

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband