Leita í fréttum mbl.is

ALVÖRU BÚHÚ BLOGG

23

Barnið að springa úr hamingju í gær eftir að amma-Brynja mætti á svæðið

Í dag varð hann Oliver fyrir smá slysi.  Smá er kannski ekki rétta orðið en hann brákaðist á fæti þegar hann var að leika sér í kvöld.  Mamman og pabbinn voru á leiðinni til Spánar á morgun og amma-Brynja og Gunnur stórafrænka komnar út til að passa og svo gerist þetta.  Nú er Oliver í gifsi og á morgunn þarf að fara með hann til sérfræðings til að skoða fótinn betur.  Hvers lags óheppni er þetta eiginlega?  Í mars þegar litla fjölskyldan ætlaði að koma til landsins í heimsókn fékk elsku dúllan hlaupabólu og þau frestuðu ferðinni.  Æi hvað ömmunni finnst vont að litla krúttið hafi meitt sig.  En svo getur maður tekið Pollýönnu á dæmið og þakkað fyrir að hann brákaðist bara.

Elsku Mays, Robbi, Brynja Gunnur og Oliver.  Bítið á jaxlinn, þetta reddast.

Meðfylgjandi myndir eru frá í dag.  M.a. þegar gifsið var sett á Oliverinn.  Amma-Brynja nottla á ömmuvaktinni.

456

Gunnur stórafrænka og A-Brynja      Gunnur og Maysan               Robbinn og Oliver á spítalanum í kvöld

7

Og Jesúsminn þarna er verið að setja á mann gifsið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

je dúdda mía. æi. En hvað það var leiðinlegt að heyra þetta. Bata- og baráttukveðjur til UK

Jóna Á. Gísladóttir, 4.7.2007 kl. 01:02

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

allamalla mú. Erfitt að vera langt í burtu þegar eitthvað svona gerist. var nú ekki alveg að fatta nýju myndina. En stelpan stendur undir væntingum. Knús og kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 4.7.2007 kl. 01:03

3 identicon

Elsku litli kallinn þessi, hvað ég vorkenni honum. En Pollíanna segir að svona sé undurfljótt að gróa þegar maður er svona ungur. Knús frá mér til allra  

PTW - ég hélt ég væri komin með nýja bloggvinkonu - þessi mynd er svo falleg - fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá hana stækkaða var ... róleg og yfirveguð kona ... passar það ekki?

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 4.7.2007 kl. 01:04

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Róleg og yfirveguð?  Hm.. ég er þekkt fyrir að villa á mér heimildir.  Ætli ég sé ekki bæði róleg og óróleg, yfirveguð og óbalanseruð, glöð oftast en stundum (eins og núna t.d. smá döpur).  Iss takk fyrir elsku stelpur mínar. Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.7.2007 kl. 01:07

5 Smámynd: Ester Júlía

Æ elsku kúturinn.  Hvurslags óheppni var þetta.  En... fall er fararheill.  Verður sem nýr á eftir. Það er ótrúlegt hvað þessi kríli eru fljót að jafna sig.  Knús á þig

Ester Júlía, 4.7.2007 kl. 01:11

6 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Æi, litla skinnið. Hann verður fljótur að jafna sig, flottur og kraftmikill strákur af myndunum að dæma.

Björg K. Sigurðardóttir, 4.7.2007 kl. 01:46

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hvernig fór henn eiginlega að því að bráka fótinn sinn hann Oliver???

Greyið..og ætla þá foreldrarnir að fresta ferðinni eða verður amman góða hún Brynja bara hjá honum?

Krakkar eru svo fljótir að jafna sig..það verður allt í fína með hann Oliver ömmustrák.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.7.2007 kl. 09:28

8 identicon

hæ Jenný mín og bloggvinir.... Oliver var á hlaupum heima hjá sér og datt framfyrir sig. Hann er hjá lækni núna og vonandi er þetta ekki eins alvarlegt og haldið var.. Nóttin var erfið og svefn

lítil hjá þessari elsku...og ömmunni ;-) Hann er mjög hress núna og segir "amma kaka af" Kveðja frá London... Brynja - Amma

Brynja Nordquist (IP-tala skráð) 4.7.2007 kl. 09:53

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þarna fenguð þið nýjustu fréttir af Oliver og eins og þú sérð Katrín mín þá er hann í góðum málum.  Þetta með spánarferðina er ekki enn komið í ljós en þau áttu að fljúga fyrir rúmum klukkutíma síðan.

Takk fyrir elsku Brynja, við heyrumst á eftir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.7.2007 kl. 11:46

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ó. Amma leiðinleg að kaka ekki af

Jóna Á. Gísladóttir, 4.7.2007 kl. 12:12

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ussus..svona atburðir eiga þa til að gerast þegar það er mikið um að vera á öllum vígstöðvum...vonandi að það erði bara allt í góðu með strákinn..mamman og pabbinn komast til spánar og amma Brynja sem nú bloggar nýjustu fréttunum Á BLOGGINU HJÁ ÖMMU JENNÝ plummar sig vel í Lundúnum.

Brynja mín..ekki samt lesa allt sem Jennsla bloggar upphátt fyrir strákinn. Það er bara of dónalegt fyrir fólk undir 18.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.7.2007 kl. 12:14

12 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Svona er nú tæknin skemmtileg. Ein ammann bloggar frá Íslandi á meðan hin amman sendir nýjustu fréttir af barninu í beinni frá London. 

Björg K. Sigurðardóttir, 4.7.2007 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985762

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30