Leita í fréttum mbl.is

LYKTAROFSKYNJANIR FRÚ JENNYAR

1

Eftir ađ ég varđ edrú og flott hefur lífiđ leikiđ viđ mig.  Slćmu dagarnir heyra til undantekninga og eru ekkert, bókstaflega nada, í samanburđi viđ ţađ helvíti sem fylgir virkum alkahólisma.  Nóg um ţađ í bili.

Ţegar ég verđ ţreytt hins vegar, trassa svefninn minn og máltíđirnar, sem stundum kemur fyrir (okokok ég veit ađ ţiđ bloggvinir mínir eru sannfćrđir um ađ ég sé fullkomin) fć ég stundum "flashback" í formi lyktar.  Ţetta er oft "lyktarminni" frá erfiđum tímum, eins og ţegar ég var lögđ inn á spítala á Spáni, lyktin af olíunni, matnum og dauđhreinsuđu umhverfi, skellur fyrir vit mér af öllu afli.  Ţetta gerđist síđast í morgun.  Ég fć líka stundum lykt í nefiđ sem er eins og lykt á bar, svona súr rauđvínslykt, rykug, klístruđ međ úldnu nikótínívafi.  Ákaflega yndisleg nostalgia eins og fólk getur ímyndađ sér.

En stundum sigrar mađur í ofskynjunardeildinni.  Ţar sem ég sat hérna áđan úti á svölum ţá fann ég allt í einu sterka rjúpulykt.  Lynglyktina sem kemur ţegar ég sýđ rjúpur, alveg jóla sko.  Ég leiđ nánast út af af hamingju, ţefađi út í loftiđ eins og perrinn í "parfume" og lyktin varđ bara sterkari og sterkari.  Jesús ég er komin í jólaskap og ţađ í byrjun júlí ţegar lyktin á ađ vera af nýslegnu grasi, óhollum grillmat og sćtri blómaangan.

Mig langar svo í rjúpu.

Sorry Anna Karen

Síjúgćs


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Á međan ţađ fylgja ekki ofskynjanir ţessari jólafílingu hjá ţér ţá er ég tiltölulega róleg. Annars langar mig í laptop tölvu í jólagjöf.

Jóna Á. Gísladóttir, 3.7.2007 kl. 19:24

2 Smámynd: Guđríđur Haraldsdóttir

Vá, skrýtiđ ađ fá svona flassbakk! Gott ţó í ţessu tilfelli međ rjúpulyktina. Hef bara tvisvar smakkađ rjúpu ... alveg skömm ađ ţessu. Fer bara út og skýt kjúklinga mér til matar og stöku kótilettu. Ţyrfti ađ eiga jeppa til ađ komast í rjúpuna. 

Guđríđur Haraldsdóttir, 3.7.2007 kl. 19:32

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Oh Jenný mamma hafđi alltaf rjúpur á jólunum en mér finnst ţćr vondar .

Kristín Katla Árnadóttir, 3.7.2007 kl. 20:32

4 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

Hć skvís.  Skil svona lyktarflassbökk. Fć oft svona og stundum finn ég lykt af einhverju eins og t.d. ilmvatn sem einhver notađi viđ kistulagningu eđa eitthvađ svoleiđis. Verđ bara brjál.

Ásdís Sigurđardóttir, 3.7.2007 kl. 20:38

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Haldiđ ţiđ ađ ţađ sé einhver sćla ađ líđa eins og Ţorláksmessu á björtum nóttumţađ er kvöl og pína. Híhí

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.7.2007 kl. 20:39

6 identicon

Getum viđ ekki veriđ á sama elliheimilinu? Ég sé okkur einhver veginn fyrir mér međ nefin oní rjúpupottinum, rífast um hvort ţađ á ađ vera gráđostur eđa ekki í sósunni og hvort viđ eigum ađ nota rifsberja- eđa hrútaberjahlaup í hana. Ţađ ERU komin jól! Af hverju er svona bjart úti?

BTW Youve got meil bakk :)

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráđ) 3.7.2007 kl. 20:54

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna ég persónulega vill gráđost í sósuna ásamt rifsberjahlaupi.  Ef ţú getur lifađ međ ţví ţá er ég game.  Hvađ er í gangi af hverju er svona bjart?

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.7.2007 kl. 21:01

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985889

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.