Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

FRÁ LANDI SKOTVOPNANNA

1

Það líður vart sá dagur núorðið að ekki séu fréttir af ótímabærum dauða fólks í USA sem fellur fyrir hendi morðingja með byssur.  Skemmst er þó að minnast fjöldamorðanna í Virginíu.  Í þetta sinn hefur karlmaður á sjötugsaldri verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta fimmtán ára nágranna sinn til bana. Sá ungi gerðist svo djarfur að stytta sér leið í tíma og ótíma yfir grasið hjá þeim með byssuna og þar sem þeim gamla þótti undurvænt um grasið sitt þá skaut hann piltinn.  Virðingin fyrir eignarétti ögn meiri en fyrir mannslífinu þarna á bæ.

Ég held að Bandaríkjamenn ættu að fara að endurskoða byssulögin hjá sér.  Tugir barna, t.d. deyja vegna voðaskota í landinu á ári hverju þar sem þau komast í byssur foreldrana,  bara svo eitt dæmi sé tekið. 

Iss...


mbl.is Skaut nágrannann til bana fyrir að ganga á grasinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐ LÆSA FÓLK ÚTI!

1

Ég setti mér ákveðnar reglur um hverjir mættu kommentera hjá mér eftir að hafa þurft að loka á einn sem skráði hjá mér athugasemd með yfirgengilegu orðbragði.  Þetta var ekki flókið.  Andlits- og nafnlausir dónar eða leiðindapúkar fjúka út. Ómar R. Valdimarsson, fyrrverandi ofurbloggari og talsmaður þess "mæta" fyrirtækis Impreglio, lokaði t.d. á mig fyrir að vera ekki að hans skapi.  Það var áður en hann hætti að leyfa komment hjá sér.  Mér fannst það ekkert voðalega leiðinlegt, varð dálítið upp með mér reyndar, að fá ekki að vera með í hans geimi.

Í morgun fékk ég færslu um mig frá Svampi (samviska þín) sem er felukarakter með attitjúd.  Ég hef samt lesið hann af og til og stundum hefur honum með skrifum sínum tekist að fá mig til að brosa.  Hann gerir mig að umtalsefni vegna þess að ég lokaði á hann fyrir að setja broskarla inn í athugasemdakerfið mitt.  Það heldur hann sko. Svampur minn það voru ekki broskarlarnir heldur sú staðreynd að þú kemur ekki fram undir nafni.  Þeir sem kommentera reglulega hjá mér eru ekki hræddir við að skrá sig fyrir því sem þeir hafa að segja.  Ég á meira að segja nokkra bloggvini sem ekki skrifa undir nafni en þá þekki ég og veit að þeir hafa góða ástæðu til.

Merkilegt að það skuli sífellt verða fólki tilefni til hneykslunar ef konur (já konur) leyfa sér að loka á ákveðna aðila.  Þetta gerir margir karlar en það sér enginn ástæðu til að blása það út. Þar sem þessi bloggsíða er minn einkafjölmiðill þá loka ég miskunnarlaust á þá sem fara yfir þau mörk sem ég og ritstjórnin höfum sett okkur.

Ég vil þó taka fram að ég hef lokað á þrjár IP-tölur það eru nú öll ósköpin.

Þetta flökraði svona að mér í morgunsárið.


NAUÐGUNARÞJÁLFUN Á ÍSLENSKU VEFSVÆÐI!

 

Hægt er að nálgast tölvuleikinn RapeLay í gegnum íslenska vefsvæðið torrent.is.  Leikurinn gengur út á það aðalmarkmið þátttakenda er að þjálfa sig í nauðgunum.  Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Viðbjóðurinn er með ólíkindum. 

Í lýsingu á leiknum á vefsvæði torrent.is segir: "Leikmaðurinn bregður sér í hlutverk chikan [sem á japönsku þýðir öfuguggi] sem hefur það að sið að káfa á konum í yfirfullum neðanjarðarlestum. Framhaldsskólastúlka að nafni Aoi lætur handtaka chikan fyrir að misbjóða sér. Í framhaldinu hyggur chikan á hefndir með því nauðga öllum fjölskyldumeðlimum Aoi. Fyrsta fórnarlamb hans er Manaka, yngri systir Aoi, sem hann nauðgar á almenningssalerni. Næsta fórnarlamb hans er Yuuko, móðir Aoi, sem hann nauðgar í almenningsgarði. Þriðja fórnarlamb persónunnar er Aoi, þ.e. konan sem kærði hann til lögreglunnar. Hann nauðgar henni á hóteli eftir að hafa bundið hana niður. Þegar leikmaðurinn hefur fullkomnað þessi verkefni sín fær hann að nauðga þeim hvenær og hvar sem hann lystir. [...] Þetta stig nefnist þjálfun, en í því getur leikmaðurinn brotið konurnar þrjár á bak aftur á níu mismunandi vegu. Þetta merkir að þær munu ekki veita neina mótspyrnu gegn óskum leikmannsins um tilteknar kynlífsathafnir."

Ekkert hefur verið gefið upp hverjir standa að torrent.is.  Börn og unglingar eru mikið á netinu.  Þarna er íslenskt vefsvæði á ferðinni sem dreifir nauðgunarfræðslunni.  Netlögga eða ekki netlögga, er ekki kominn tími til að taka í taumana?


mbl.is Nauðgunarþjálfun á Netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RAPPORT ÚR ÞVOTTAHÚSI

Jæja ég verð að láta ykkur vita kæru vinir að enn ein þvottahúsferðin er að baki.  Í þvottahúsinu hitti ég konu eina sem var að rulla þvott (heitir það ekki að rulla?) æi svona stór maskína sem maður setur lök í og sollis, mikið notað um miðja síðustu öld og eitt slíkt apparat frá Þjóðminjasafninu er í mínu þvottahúsi.  Konan var svolítið snúin svona þegar hún sá mig, bauð mér samt góðan dag með nefið upp í heila.  Ég fór í klessu og spurði hvort það væri ekki allt gott að frétta?  Nei ég skyldi nú ekki ætla það, taldi hún,  þar sem það væru fleiri þúsundir manna (með þungri áherslu á fleiri þúsundir) sem teldu nú að þvottahúsið HENNAR (og mitt) væri gróðastía fyrir ryk og annan viðbjóð þar sem ég væri síljúgandi á kogginu.  Ég greip í maskínuna til að verja mig falli, þar sem mér brá svo svakalega.  Ég sagði henni að þetta hafi nú verið allt í gríni gert og allir vissu það, hún þyrfti nú ekki að taka það alvarlega.  Fuss og svei og konan sló sér á lær.  Þetta kogg væri nú eins og það væri.  Hæfileikalaust fólk með sýnisýki væri glennandi sig þar alla daga. Með það reif hún lakið upp með rótum úr rullunni, það slóst í fésið á mér og skellti mér til veggjar.  Hún strunsaði út og fór mikinn.

Æi var ég búin að segja ykkur að í þvottahúsinu voru 4 ógeðslegar rykrottur, 14 mýs (vegna óþrifa) og einhver slatti af eðlum.  Ég var mjög ánægð með dýralíf þvottahússins í dag því þar var ekki ein einasta könguló!  Óje!

Gúddnætgæs!


ÉG VAR AÐ VELTA ÞESSU FYRIR MÉR...

22

..með Norðmenn, hvort þeir séu álitnir vingjarnlegir en óáhugaverðir eða ríkir og hrokafullir.  Hm..þeir Norðmenn sem ég hef hitt eru svo sem af öllum stærðum og gerðum en þeir eiga allir eitt sameiginlegt.  Það er leiðinlegi "MATPAKKINN" með bragðlausu og óspennandi samlokunum.  Bókstaflega allir með tölu troða í sig úr þessum plebbalega matpakka í hádeginu.  OMG!

Jebb så var det med den saken!


mbl.is Eru Norðmenn ríkir og hrokafullir eða vingjarnlegir og óáhugaverðir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SMÁ SKILABOÐ!

Ég setti inn hérna þrjátíu og fimm ára gamalt lag með húsbandinu og Jónasi R. Jónssyni, sem tekið var upp í Tokyo þegar þeir félagar tóku þátt í Yamaha söngkeppninni.  Þar var fleira merkilegt fólk eins og tam. Abba.  Strákarnir fengu plötusamning og þetta var tekið upp með 60 manna strengjasveit og alles.  Húsbandið týndi sínu eintaki og þetta lag hefur aldrei hljómað hér á landi.  Segi ferðasöguna seinna en með ótrúlegum hætti komust við yfir eintak af plötunni.  Gjörið svo vel.


SNILLDARPAKKINN Í ÞINGHOLTUNUM..

...er farinn að fara all ískyggilega í taugarnar á mér.  Hversu lengi ætla þeir hjá BYR að halda áfram að auglýsa á bloggforsíðunni?  Nú er kominn tími á að hætta, ég krullast orðið upp þegar þetta kemur á móti mér og ég kann þetta utanað.

Siggi says:  Er búinn að kaupa mína fyrstu íbúð.  SNILLDARPAKKI Í ÞINGHOLTUNUM

Og ladídadída....ARG!


HVER ER PERSÓNAN HRÓLFUR??

Hrólfur Guðmundsson

Brjálaði bloggarinn hann Hrólfur Guðmundsson sem sennilega er ekki til í alvörunni ætlar að gefa út einhverja yfirlýsingu í kvöld.  Okkur grunar að hann ætli að skýra frá því hver hann er.  Hrólfur er merkilega samsettur karakter.  Hann er flottur á pennanum, fyndinn, skemmtilegur, asnalegur, ruddalegur, alki, vondur við mömmu sína, klámfenginn og allt það sem fólk getur verið þegar það er ekki í alvöru.  Ef hann er í alvöru hins vegar, þá ráðlegg ég honum að fara í meðferð (heyrirðu það skömmin þín hehe).  Fyrirbærið segist eiga heima í Fljótaselinu og búa hjá mömmu sinni sem er kennari.  Ef einhver veit deili á Hrólfi, þe hver hann er í raun og veru, vinsamlegast komið skilaboðum til mín hérna á bloggið. Ég ætla að nefnilega að flytja ef svo undarlega vill til að hann sé í persóna af holdi og blóði (segi sonna).

Hrólfur bloggar á www.hrolfur.blog.is


JÁ, JÁ ÞIÐ HARMIÐ OG HARMIÐ!

Ný ríkisstjórn HARMAR stríðsreksturinn í Írak.  Það er varla nýtt er það?  Ég persónulega er búin að harma það frá fyrsta degi.  Ennfremur hef ég skammast mín niður í hrúgu fyrir að íslendingar væru á smánarlista hinna vígfúsu þjóða.  Þetta hélt ég að ég ætti sameiginlegt með Samfylkingunni.

"Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði á blaðamannafundi þar sem stjórnarsáttmálinn var kynntur, að það væri skýr yfirlýsing ríkisstjórnarinnar að hún harmaði þennan stríðsrekstur. Væntanlega yrði plaggið þýtt yfir á önnur tungumál þannig að það færi ekki á milli mála hver afstaða íslenskra stjórnvalda væri."

Skýr yfirlýsing ríkisstjórnar um að hún harmi þennan stríðsrekstur.  Plaggið verður þýtt yfir á önnur tungumál þannig að það verði ekki lengur leyndarmál hvað okkur finnst stríðið vera mikill bömmer.

EN VIÐ ERUM ENNÞÁ Á LISTA HINNA VÍGFÚSU!  Ekki góð byrjun, alls ekki góð byrjun.


mbl.is Ný ríkisstjórn harmar stríðsreksturinn í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MÉR ER SVO SAMA...

Hive braut gegn fjarskiptalögum.

 

 

...þótt Hive hafi brotið gegn fjarskiptalögum þegar fyrirtækið hringdi ítrekað í bannmerkt símanúmer í símaskrá í þeim tilgangi að kynna vörur sínar og þjónustu.

Mér er hins vegar ekki sama um að Hive sem hýsir símann minn skuli ekki vera búið að laga græjuna eftir sólarhrings bilun.  Halló, halló krakkar... hringja minna í fólk í símaskrá...gera við síma hjá Jenny Önnu í staðinn.  ARG....


mbl.is Hive braut gegn fjarskiptalögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.12.): 17
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 2987148

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband