Leita í fréttum mbl.is

MÉR ER SVO SAMA...

Hive braut gegn fjarskiptalögum.

 

 

...þótt Hive hafi brotið gegn fjarskiptalögum þegar fyrirtækið hringdi ítrekað í bannmerkt símanúmer í símaskrá í þeim tilgangi að kynna vörur sínar og þjónustu.

Mér er hins vegar ekki sama um að Hive sem hýsir símann minn skuli ekki vera búið að laga græjuna eftir sólarhrings bilun.  Halló, halló krakkar... hringja minna í fólk í símaskrá...gera við síma hjá Jenny Önnu í staðinn.  ARG....


mbl.is Hive braut gegn fjarskiptalögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Mér er ekki sama þegar hringt er í mig,ég er með bannmerki. Fólk hringir samt yfirleitt ekki tvisvar

Ragnheiður , 23.5.2007 kl. 12:56

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég hef alltaf haldið mig við símann, ekki látið glepjast af gylliboðum og ég er vandamálafrí.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.5.2007 kl. 13:26

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

En hafið þið stelpur enga samúð með mér sem fæ ekki innhringingar. Hvað um ef ég ynni í Happdrætti Háskólans (dem á ekki miða en samt)?  Eða ef einhver ætlaði að bjóða mér hlutverk í bíómynd í Hollý!

Iss hvað þið eruð sjálfhverfar.

Ásdís mín ég lagði kallt mat á málið.  Engin gylliboð en ókeypis innanlandssímtöl. Það var minn stærsti kostnaðarliður.  Símareikningurinn hefur hrapað ógeðismikið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.5.2007 kl. 13:52

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Engin samúð! Enginn hringir í mig og ekki væli ég.........

hehehehehehhehe

Hrönn Sigurðardóttir, 23.5.2007 kl. 14:48

5 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Sammála þér Jenný um að símakostnaður snarhrapaði við að skipta í Hive. Ég er að borga svona helmingi minna núna fyrir síma og net en ég var að borga bara fyrir heimasímann hjá Símanum, samt er ég að hringja til útlanda og í gemsa alveg eins og ég gerði áður.

...en á móti þarf maður að díla við þessar árans bilanir sem koma upp öðru hvoru og eru afar hvimleiðar. Reyndar gerist það hjá Símanum líka... bara öðru vísi og ekki jafnoft. 

Laufey Ólafsdóttir, 23.5.2007 kl. 15:02

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Laufey við erum í góðum málum.  Ég hringi bæði í Gsm og í útlönd en þegar ég var hjá símanum var ég með læst í gsm en samt með himinháa reikninga miðað við núna.

Annars ligg ég í hlátri.  Bilunin fólst í því að við stungum inpúttinu á símanum í vitlaust gat á nýja rowderinn sem við btw fengum í fyrradag.  þannig að enginn hefur getað hringt í mig síðan þá.  Er það nema von að ég hafi sterka höfnunartilfiningu.  ROFL.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.5.2007 kl. 15:27

7 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

gott það er komið í lag!!! hahahaha!!!

Laufey Ólafsdóttir, 23.5.2007 kl. 15:33

8 Smámynd: E.Ólafsson

Þar sem ég kærði Hive stóð mér ekki á sama.  Spurning hvort þú væri með sömu skoðun ef fyrirtæki hringir í þig tvisvar sinnum í viku og auglýsir þjónustu sína aftur og aftur.  Síðan bregst það ekki við þegar ég bendi þeim á að hætta þessu. Skipti engu máli við hvern ég talaði

E.Ólafsson, 23.5.2007 kl. 23:04

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nei auðvitað skil ég þig Eiríkur.  Þetta var meira til gamans gert.  Það er náttúrulega alveg ferlegt ef þeir virða ekki merkingarnar í símaskránni. Þú átt alla mína samúð hvað það varðar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.5.2007 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2985743

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.