Leita í fréttum mbl.is

SMÁ SKILABOÐ!

Ég setti inn hérna þrjátíu og fimm ára gamalt lag með húsbandinu og Jónasi R. Jónssyni, sem tekið var upp í Tokyo þegar þeir félagar tóku þátt í Yamaha söngkeppninni.  Þar var fleira merkilegt fólk eins og tam. Abba.  Strákarnir fengu plötusamning og þetta var tekið upp með 60 manna strengjasveit og alles.  Húsbandið týndi sínu eintaki og þetta lag hefur aldrei hljómað hér á landi.  Segi ferðasöguna seinna en með ótrúlegum hætti komust við yfir eintak af plötunni.  Gjörið svo vel.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Nú langar mig að vita hver húsbandið er. Þú varst að skrifa eitthvað neikvætt um Byr í síðasta bloggi, verður að passa þig ef við eigum að komast á samning

Ásdís Sigurðardóttir, 23.5.2007 kl. 20:53

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Húsbandið heitir Einar Vilberg Hjartarson.  Hehe það verður ekki hægt að ásaka mig um að ég sé að sleikja mig upp við þá.  En vér bíðum þolinmóðar eftir samning.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.5.2007 kl. 20:57

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Yndislegt lag! Man sko vel eftir Jónasi og Einari ... alla vega þessum nöfnum saman. Kom ekki plata með þeim hér á Íslandi? Gott að vita að Einar er vel giftur (trúlofaður, í sambúð).

Guðríður Haraldsdóttir, 23.5.2007 kl. 21:25

4 identicon

Þetta er GERSEMI!!!!  Og auðvitað þekkir sú sem þetta skrifar t.d. Jónas þennan R + það að hafa unnið með Helgu konu hans tvö sumur hér um árið (vá það er svo langt síðan) í fluginu. Víða liggja þræðir.  En hvar er lagið hans Einars sem varð algjör hittari. Það var svo mikið mitt uppáhald. Man ekkert hvað það hét en það var ekki þetta lag 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 21:25

5 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Lítill heimur, takk fyrir að setja þetta lag á bloggið. Stemmningin mín með laginu minnir einhver falleg þjóðlagakvöld í Tónabæ. Þetta er bara fallegt. 

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 23.5.2007 kl. 21:49

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ertu að meina "Love you for a reason"? Audda ertu að því.  Kemur inn á morgun Anna mín.

Jú Gurrí mín kom plata með þeim.  Einar er vel giftur get ég lofað þér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.5.2007 kl. 21:50

7 Smámynd: Ester Júlía

Hm...Vilberg?  Er það ættarnafn eða bara millinafn? Veit það er til sem hvorttveggja.  Áttu ekki almennilega mynd af húsbandinu án sólgleraugna?

Ester Júlía, 24.5.2007 kl. 00:00

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jú ég á að sjálfsögðu aðra mynd Ester mín. Hún kemur seinna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.5.2007 kl. 00:02

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Millinafn mín kæra, millinafn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.5.2007 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.