Færsluflokkur: Vísindi og fræði
Miðvikudagur, 29. ágúst 2007
ALDREI HEYRT AF KVENNABARÁTTU...
..né af sjálfsákvörðunarrétti kvenna hún Jennifer Lopez, en hún trúir því að hún verði barnshafandi þegar Guð vill að hún eignist barn. Ef ég hefði látið þetta í hendurnar á Guði, ætti ég heilt kvennahandboltalið á báða vallarhelminga.
Það er auðvitað ekki grín gerandi að þessu en kona eins og Jennifer er fyrirmynd svo margra ungra stúlkna og þær kaþólsku mega í raun ekki við meiri kreddum og afturhaldi en fyrir er, nóg er nú samt.
En Jennifer bíður sem sagt eftir að Guð geri hana ólétta. Þau segja það ekki þeirra að ákveða hvenær barnið verður til. Er þetta Jesúkomplex?
Ævonder!
Úhúbúhúje
![]() |
Barneignum stýrt af Guði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 28. ágúst 2007
ISS-PISS
Ofboðslega er mikill þvagáhugi í þessu landi. Það er ekki bara Löggan á Selfossi sem leggur á sig til að ná í þennan gula vökva, ónei.
Ef mér dytti nú í hug að heimsækja Álverið á Reyðarfirði, einhvertímann á næsta ári, gæti ég lent í því að þurfa að afhenda þvagprufu. Ég tek þó fram að það voru ekki miklar líkur á að ég færi í heimsókn á þennan vinnustað. Líkurnar á því núna eru auðvitað orðnar núll. En þeir sem hyggjast heimsækja álskrímslið á fallega Reyðarfirði, geta sum sé átt von á því að þurfa að pissa í hliðinu.
Ég er alveg viss um að það eru réttlætingar fyrir þessu, tilbúnar hjá Alcoa, alveg eins og hjá Löggunni á Selfossi og hjá öllum hinum, sem ganga lengra og lengra í að brjóta á mannréttindindum fólks.
Þvílíkt og annað eins.
Úje
![]() |
Gestir geta þurft að afhenda þvagsýni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Þriðjudagur, 28. ágúst 2007
FYLLERÍ Í DRAUMI
Þetta er snúra, gott fólk.
Í nótt dreymdi mig að ég væri dottin í það. Ég var ekki að gera það endasleppt, heldur teygaði ég vodka beint úr flöskunni bara. Það er hreint ótrúlega vond upplifun fyrir alka að dreyma að hann sé fallinn. Marga óvirka alka eins og mig, dreymir svona og ég held að það sé vegna þess að við hræðumst svo að falla, að úrvinnslan kemur í gegnum drauminn. Þar sem ég teygaði bölvaðan óþverrann af stút, í minni martröð (því þetta var ekkert annað en argasta martröð), upplifði ég þvílíka angist og skelfingu. Alveg eins og ég myndi gera í raunveruleikanum, ímynda ég mér.
Ég ætla ekki að lýsa léttinum sem gagntók mig, þegar ég vaknaði, bláedrú og með góða samvisku.
En á meðan mig dreymdi, hrundi lífið innan í mér og allt var sem fyrr.
Svona draumur er á við góðan AA-fund, svei mér þá.
Ég óska mér þó ekki fleiri martraða af þessari tegund.
Bötæmklínandsóber.
Újebb
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Mánudagur, 27. ágúst 2007
NÚ HLÓ ÉG UPPHÁTT..
..þrátt fyrir að vera nýlega vöknuð og með annan fótinn í draumheimum. Sala á sígarettum jókst um 6,3% frá því í fyrra, í júní og júlí. Reykingabannið á skemmtistöðunum gekk í gildi 1. júní. Bannið virðist hvetja fólk enn frekar til reykinga.
Ég er auðvitað ekki að hlægja að því að fólk skuli reykja, yfirhöfuð, heldur vegna vantrúar minnar á þessum reykingafasisma og að einhver skuli í alvörunni halda að þetta bann muni skila einhverju. Vissulega er ekki lengur reykt á kaffihúsum og skemmtistöðum, en því meira er reykt utandyra, með öllum þeim sóðaskap og ónæði sem því fylgir.
Heimildarmaðurinn í hringiðunni ásamt fleirum sem ég hef talað við, segja að ekki sé þverfótað fyrir fólki á gangstéttunum, með glös, þjónarnir hanga líka úti í smók og skemmtistaðirnir eru núna reknir fyrir utan lögheimili sitt.
Hjá Bretunum drógust reykingar saman um 7% í júlí, en það tók bannið í upphafi þess mánaðar. En auðvitað vitum við að þar hefur ringt syndaflóði, þannig að mér finnst það ekki marktækt.
Vonandi verður þetta endurskoðað, veitingamenn fái að koma sér upp reykherbergi og svo hættir fólk að reykja svona smátt og smátt. Alveg eins og ég, sem ætla að drepa í á ársedrúafmælinu mínu, í október.
Bætmí!
Úje
![]() |
Sala á tóbaki jókst í júní og júlí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 08:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Sunnudagur, 26. ágúst 2007
GEITUNGASLAGURINN MIKLI
Þessi kolbrjálaði geitungur kom inn um eldhúsgluggann í morgunn. Hann var viðskotaillur og tók ekki áskorun um að flytja sjálfan sig út fyrir.
Viðbrögð: Mikill eltingarleikur og slagsmál brutust út. Húsband og geitungur tókust á upp á líf og dauða. Viðureign tók kortér.
Niðurstaða: 3 glös brotin, húsband marið á kinn, hurð að eldhúsi löskuð.
Einn geitungur látinn.
Ójá
Laugardagur, 25. ágúst 2007
SAVING PRIVATE HUBBARD
Að þessu sinni er ekki um bíómynd að ræða heldur ískaldan raunveruleikann. "Hermaður Hubbard" fær að fara heim frá Írak vegna þess að stríðið hefur tekið báða bræður hans og engin systkini því eftir nema hann.
"Bandarískur hermaður fær að fara heim frá Írak í samræmi við reglu, sem gerir ráð fyrir að hermenn fái lausn frá herþjónustu ef systkini hans láta lífið og þeir eru einir eftir úr systkinahópnum. Tvær bræður mannsins hafa látið lífið í Írak."
Ég skil ekki stríð. Mun aldrei gera og það heldur svo sem ekki fyrir mér vöku. Hins vegar er hvert mannslíf svo dýrmætt og í stríði er bara sóun á þeim, og það gerir mig svo dapra.
Þeir hafa mikið á samviskunni stríðsherrar heimsins.
Hvort sem er í Whasington, Darfur eða Ísrael.
ARG
![]() |
Fær að fara heim frá Írak eftir að bræður hans féllu þar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Föstudagur, 24. ágúst 2007
DAUÐI OG DUSILMENNI
ARG, ég hendi mér í vegg, loft, gólf og brýt niður brýr. Ætlaði að setjast niður með mínum verri helmingi og horfa á bíómynd og hvað...............
BORMAÐURINN FÓR Á KREIK, einn ganginn enn. Nú leikur allt á reiðiskjálfi. Viljið þið bloggvinir mínar koma hérna upp í Sóandsógötu númer sóandsó? Þið getið hjálpað mér að flytja manninn á brott, með borinn, í annað bæjarfélag, fyrir norðan eða vestan. Ha?
Æmgonnasúðefokker!
Úje
P.s. Þessi mynd var tekin af mér í gærkvöldi, reyndar, þegar ég var að lesa einn trúarbloggarann, ég greip til vopna, ég get svarið það.
Föstudagur, 24. ágúst 2007
ÞVAGLEGGSSINNAR
..flott orð hjá Mogganum. Hér eftir munu þeir sem réttlæta ofbeldi og telja það aðferð til að ná fram "réttlæti" í einhverri mynd, verða kallaðir þvagleggssinnar. Bæði á þessari bloggsíðu og annars staðar þar sem umræður um slíkar manneskjur fara fram.
Mogginn góður í nýyrðasmíðinni stundum.
Og formaður þvagleggssinna er auðvitað, Ólafur Helgi Kjartansson.
Þessu vildi ég koma á framfæri.
Ójá
![]() |
Miklar umræður um þvagleggsmálið á bloggvef mbl.is |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Föstudagur, 24. ágúst 2007
NEOPHOBIA - JABB- ÞEKKI HANA
Matvendni er arfgeng. Það stendur í Mogganum. Nú er ég farin að kveikja á einu og öðru hjá mínu fólki.
Annars er ég ekki matvönd. Alls ekki. Ég er bara smekkmanneskja á mat. Það er allt annað mál.
Ég borða bara flott stöff.
Ekki innmat. Ekkert úldið. Ekkert sem skríður, Ekkert ófrítt. Ekkert sem brosir til mín af disknum og biður mig um að ættleiða sig með augunum.
Ég er sem sagt "civiliseruð" í matarinntökum.
Dætur mínar líka.
Ítmíæmklín.
Úje
![]() |
Matvendni er arfgeng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 24. ágúst 2007
OG ENN ÞRÁAST SELFOSSLÖGGAN VIÐ
Það er alltaf að verða æ ljósara, hversu alvarleg og jafnframt óþörf framganga löggunnar á Selfossi var í "þvagleggsmálinu", alræmda.
Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, telur að nóg hefði verið fyrir lögregluna á Selfossi að ákæra konu þar í stað þess að þvinga þvaglegg upp í blöðru hennar, án samþykkis. Sveinn Andri segir að valdbeitingin hafi verið fullkomlega óþörf en í 102. grein umferðarlaga stendur, að neiti einstaklingar að veita sýni leiði það til ökuleyfissviptingar.
Þetta mál sækir stöðugt á huga minn. Mér finnst svo erfitt að trúa því að svona eigi sér stað, hér á litla Íslandi, þar sem ég hef alltaf haldið að mannréttindi væru í heiðri höfð af yfirvöldum.
En Selfosslögreglan þráast við.
Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Selfossi, segir :Það er alvarlegt mál að aka fullur og ber lögreglu að rannsaka málið með tilliti til þess að leiða í ljós hvað átti sér stað. Það hefur margoft gerst hjá okkur að settur hafi verið upp þvagleggur hjá karlmönnum. Ég minnist þess hins vegar ekki að áður hafi þurft að setja upp þvaglegg hjá kvenmanni. Ég kannast ekki við það að nokkur karlmannanna hafi talið að um kynferðislega áreitni hafi verið að ræða."
Ef þetta er satt og rétt hjá Ólafi Helga, að margoft hafi karlmenn verið teknir með valdi og settur í þá þvagleggur, þá er kominn tími á að kíkja aðeins nánar á vinnubrögð þessa lögregluumdæmis. Hversu oft er þessi lögregla að taka fólk með valdi og gera á þeim þetta inngrip? Ég vil fá svör og svo er ábyggilega um fleiri. Þessir karlar þarna á Selfossi virðast skv. þessu vera ríki í ríkinu með allt önnur vinnubrögð en viðhöfð eru í öðrum lögregluumdæmum.
Hreiðar Eiríksson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður á Akureyri, segir að á sínum tuttugu ára starfsferli hafi hann aldrei áður heyrt af því að þvagleggur hafi verið settur upp með valdi.
Ég get staðfest að það var óvanalega langt gengið og tíðkast ekki í öðrum lögregluumdæmum. Í þeim tilvikum sem ég veit af þá er talað um fyrir fólki og síðan er náttúrlega beðið eftir því að viðkomandi þurfi að losa þvag. Ég hef aldrei heyrt um að nokkrum manni hafi dottið í hug að framkvæma svona."
Mér finnst eftir því sem málið hefur orðið ljósara og nú þegar sú vitneskja liggur fyrir, að það er ekki óalgengt að settur sé upp þvagleggur, með valdi, í fórnarlömb löggunnar á Selfossi, að málið verði skoðað ofan í kjölinn.
Ekki seinna en á mánudaginn.
![]() |
Valdbeitingin var fullkomlega óþörf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 07:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 2987761
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr