Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vísindi og fræði

Fréttatilkynning frá Svandísi Svavarsdóttur!

Fréttatilkynning frá Svandísi Svavarsdóttur, borgarfulltrúa og fulltrúa VG í stjórn Orkuveitunnar:

Sátt um hvað?

Ljóst er að sáttaniðurstaða Sjáfstæðismanna er sátt um áframhaldandi völd í Ráðhúsinu í Reykjavík. Hún er ekki sátt um vinnubrögð, ekki sátt um heiðarleika, ekki sátt um skilning á lýðræði og ekki sátt um samráð. Hún er sátt um að selja fyrirtækið hið fyrsta án þess að lykilspurningum hafi verið svarað. Jafnframt er hún sátt um að viðhalda völdum Framsóknarflokksins í borginni.

Hvað er Reykjavik Energy Invest? Hvað á þetta fyrirtæki? Enn hefur ekki verið lagður fram listi yfir eignir þess. Á að einkavæða hlut fyrirtækisins í Hitaveitu Suðurnesja? Á að einkavæða sérþekkingu Orkuveitu Reykjavíkur? Á að einkavæða fyrirtækið á grundvelli verðmats Hannesar og Bjarna? Hverjir munu kaupa aðrir en þeir sem þegar hafa eignast umtalsverðan hlut í fyrirtækinu? Var samruni fyrirtækjanna löglegur yfir höfuð? Þessum spurningum hefur ekki verið svarað.

Ljóst er að borgarstjóri hefur telft mjög alvarlega af sér í þessu máli. Hann hefur farið á bak við borgarbúa, samflokksmenn sína innan og utan borgarstjórnar sem og aðra kjörna fulltrúa í borgarstjórn. Hann hefur farið á svig við lög og tekið þátt í ósiðlegu atferli sem ofbýður fólki um allt land. Fólk vill ekki slíka stjórnendur. Borgarbúar treysta ekki slíkum borgarstjóra þótt borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins virðist greinilega ekki gera sömu kröfur.


Ofeldisdómur V - Skilorðsbundinn

Áfram höldum við á dómaravaktinni.  Frá því ég byrjaði að fylgjast með skilorðsbundnum dómum er komið að hneykslisdómi númer fimm.  Að þessu sinni er skandallinn í boði Héraðsdóms Vestjarða og kunnum við honum litlar sem engar þakkir fyrir.

19 ára karlmaður var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyir tvær líkamsárásir, á saman manninn með mánaðar millibili.  Árásarmaðurinn var einnig dæmdur til að greiða þolanda sínum heilar 365 þúsund krónur, í bætur.

Enn eitt klapp á kollinn og skilaboðin eru skýr: Það má lemja mann og annan án þess að það komi til með að fokka eitthvað upp lífi þínu, eða kenna þér að ofbeldi hefur afleiðingar, elsku karlinn minn.

Fjandinn sjálfur myndi ég segja ef ég væri ekki of vel upp alin til þess að blóta á almannafæri.

Iss!


mbl.is Skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárásir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misskilið umburðarlyndi

Ég vissi fyrir að Hæstiréttur nýtir ekki refsivald sitt í kynferðisafbrotamálum, en það er sláandi að sjá það svona svart á hvítu, eins og í þessari umfjöllun. 

Hér er enginn sem segir við afbrotamanninn: Heyrðu góði, þú hefur gerst sekur um þann ljótasta glæp sem hægt er að fremja.  Þú hefur brotið á saklausu barni og þú mátt vita að við ætlum að senda þér og öðrum "kollegum" þínum skýr skilaboð um að þetta verði ekki liðið.

Af hverju er þolþröskuldur dómsvaldsins svona hár þegar kemur að alvarlegum brotum gegn konum og börnum?

"Refsiramminn fyrir kynferðisbrot gegn börnum er jafnhár og fyrir brot gegn fíkniefnalöggjöfinni. Hæstiréttur hefur hins vegar nýtt rammann mun betur í fíkniefnamálunum en í málum þar sem börn hafa þurft að þola nær daglegt kynferðislegt ofbeldi af hendi gerenda sinna, mörg þeirra svo árum skiptir. Innflytjendur fíkniefna hafa nefnilega verið dæmdir til þriðjungi lengri fangelsisvistar að jafnaði en þeir sem beita börn kynferðisofbeldi. Sömuleiðis er þyngsti dómurinn í fíkniefnamáli næstum helmingi lengri en sá þyngsti fyrir kynferðisbrot."

Skýring óskast, þetta er gjörsamlega ofvaxið mínum skilningi.


mbl.is Hæstiréttur nýtir ekki refsivaldið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kryddsprengja í London

 

Mér þykir chili gott, alveg svakalega gott en samt finnst mér það í leiðinni alveg viðbjóðslega vont.  Ég er í ástar-haturssambandi við helvítis vöxtinn.  Það er með chili eins og sumt skemmtilegt fólk, þegar það fer yfir mörkin (mætir t.d. með hjólhýsið í heimsókn og parkerar sér í garðinum, til dvalar) eða mætir í kvöldmatinn hjá manni upp á dag í mánuð, þá hættir það að vera skemmtilegt.  Það verður einfaldlega viðbjóðslega leiðinlegt.

Chilisulta er frábær.  Ég elska hana.

Chilióðir kokkar geta drepið í manni bragðlaukana og lífslöngunina ef út í það er farið.

Þess vegna legg ég til að þeir í London ásamt okkur hér, seljum bara ákveðið magn af þessari jurt, á mann.

Nú fríka frelsisdýrkendurnir út.  Það er mannréttindabrot að skammta grænmeti/lkryddvexti.

En þess ber að geta að stundum læt ég einfaldlega eins og fíbbbbl.

Úje


mbl.is Eiturefnaárásin reyndist chili-pottur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja stelpan..

..sem fær ekki einu sinni séns á að verða edrú í meðferðinni.  Allir í meðferðinni að keppast um að vera vinir hennar, bjóðast til að smygla vodka í vatnsflösku inn á AA-fundi fyrir hana, svo eru örgla einhverjir að redda henni kókaíninu sem fannst í blóðinu hennar.  Hvernig á stúlkan að verða edrú við þessar aðstæður?  Jú þetta heitir kaldhæðni.  Ég er að grínast.  Já, já og nú fær hún ekki að útskrifast úr meðferðinni en hún fær samt að fara í ferðalag upp í fjöll með pabbasín í nokkra daga.  Meira fórnarlambið stelpan.  Heimurinn bara sameinast í að halda henni í neyslu.  Það er spurning hvað konan er að hanga þarna nema hún hafi farið í meðferðina til að redda sér fyrir horn, vegna annarlegs ástands við akstur.

Ég sæi þetta gerast á Vogi eða hitt þó heldur.  Þeir þurfa að fara að senda starfsfólkið á kúrsa til Þórarins og kó, þarna í Ameríkunni.  Hjá SÁÁ er boðið upp á meðferð, ekki búllsjitt.

Úje

 


mbl.is Lindsay Lohan féll á lyfjaprófi í meðferðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mergjuð sjúkrasaga

 1

Þar sem ég er á annað borð farin að blogga um sjúkdóma og mergsýnatökur, þá er best að missa sig algjörlega í sjúkdómatalinu og ræða um hægðir og þvag.  Nei, ég er að grínast.  En ég lenti í "skemmtilegri" lífsreynslu fyrir tveimur árum úti á Spáni, þegar ég var flutt fársjúk á sjúkrahús, þar sem ég eyddi sumarfríinu, nánast öllu og það var lífsreynslaW00t.  Sólin skein og útsýnið úr sjúkrahúsglugganum var nokkuð fallegt.  Ólívulundir og svoleiðis.

Hvað um það, ég ætla ekki að fara tíunda ævintýri mín á þessu sjúkrahúsi, enda vart til frásagnar um þau þar sem ég var veik á meðan ég dvaldi þar (merkilegt hvað ég er öðruvísi en annað fólk, bara veik á spítala, hm..).  Það sem hinsvegar var eftirtektarvert og minnistætt eru læknar þessa eðla spítala.

Þá daga sem ég var á röltinu, fór ég niður í kaffiteríuna og fékk mér sígó.  Þar sátu læknarnir, hver um annan reykjandi og með bjór.  Á miðjum degi.  Þar í hóp var læknir sem fór með mig í CT-skann og hann þekkti mig og kom vaðandi að borðinu mínu og bað mig á sinni takmörkuðu ensku, um sígó, hvort ég gæti lánað sér eina.  Svo var hann svo uppveðraður yfir þessum hálfa pakka sem ég rétti að honum, að hann vildi endilega gefa mér bjór í staðinn, Cervesa Grande, ekkert fingurbjargarglas.

Þar sem ég lá þarna vegna bólgu í brisi, tilkomnu vegna drykkju, þá finnst mér þetta smá stílbrot svona eftir á að hyggja, en ég sagði nei takk, því jafnvel harðsvíruðum alkanum mér, fannst full langt gengið að vera sjúklingur á spítala, þambandi bjór, með lækninum sem átti að bjarga lífi mínu, svo ég taki nú smá Lúkas á málið.

Ef þið eigið eftir að lenda á sjúkrahúsi á Spáni (Mallorca), þá get ég lofað að þar er standandi lifnaður, nánast allan sólarhringinn og læknarnir eru vel mildir, með sígópakkann í brjóstvasanum.

Þorgrímur Þráinsson, hættu að skrifa um samskipti kynjanna, sem þú hefur ekki hundsvit á og drífðu þig til Spánar.  Þar bíða verðug verkefni.

Bráðum ætla ég að blogga um fjöldasönginn á sjúkraherbergjunum.  Það er saga út af fyrir sig.

Bætmí.

Úje


Innilokun!

Enginn manneskja vill láta loka sig inni.  Það er okkur eiginlegt að reyna að brjóta af okkur fjötrana þegar við lendum í þeim aðstæðum að vera svipt frelsinu.  Annars væru fangelsi varla læst, er það? 

Ég lét mér detta í hug þegar ég las nýlega um nýja AA-deild á vegum fangelsanna, þar sem talsmaður fanga sagði að föngum væri treyst t.d. til að fara á fundi í bænum, að það væri sennilega tímaspursmál hvenær það hlypi strok í einhvern. 

Nú eru tveir á flótta, eftir að hafa stungið af eftir AA-fund.  Ég vona að þetta séu ekki hættulegir menn og að þeir finnist fljótlega.

Svo er líka vonandi að þetta skemmi ekki fundarfrjálsræðið hjá hinum sem reynst hafa traustsins verðir.

Ætli það sé útópía að hægt sé að gefa föngum þetta frelsi?

Ædóntnó.


mbl.is Leitað árangurslaust að strokuföngum í alla nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

S.k. nauðgunarlyf verður ekki tekið af markaði.

Grunur um misnotkun lyfja til að sljóvga fórnarlömb í nauðgunarmálum hefur ekki verið staðfestur hér á landi.  Þetta má lesa á vef landlæknisembættisins.  Flunitrazepam hefur aldrei fundist í sýnum frá fórnarlömbum nauðgana hér á landi.

"Umræður hafa skapast í fjölmiðlum á síðustu mánuðum, þar sem talið er að eftirritunarskylda svefnlyfið flunitrazepam sé misnotað af nauðgurum og öðrum ofbeldismönnum til þess að sljóvga fórnarlambið, t.d. með því að lauma því í drykki. Því þótti ástæða til þess að kanna þessi mál ofan í kjölinn og leita upplýsinga frá lögreglu, neyðarmóttöku Landspítala og frá Rannsóknastofu Háskólans í lyfjafræði, auk þess sem leitað var í erlendum fræðigreinum um efnið."

Það er auðvitað bara frábært ef þetta reynist rétt. 

Það eru því miður, ekki allir þolendur nauðgana sem leita sér aðstoðar á neyðarmóttöku.  Er líklegt að konur sem hafa orðið fyrir nauðgun og eru með algjört minnistap, leiti aðstoðar?

Það þætti mér fróðlegt að vita.

Landlæknir sér ekki ástæðu til að taka Flunitrazepam af markaði.

 

Nú er ég blönk.


mbl.is Flunitrazepam hefur aldrei fundist í fórnarlömbum nauðgana hérlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég lifði af - Nananabúbú!!

Ég er á lífi, dramadrottningin sjálf.  Ég stóð mig eins og hetja, segir húsbandið, sem hélt í hendurnar á mér meðan læknirinn þrælaði 14 feta sprautunni sem var 90 cm í þvermál (ok, ýki smá) í beinið á mér og dró út merginn.

Að fara í mergsýnatöku er lífsreynsla. 

Áhugasamir hafi samband.

Nú bíð ég í viku eftir niðurstöðum og á meðan ætla ég að hafa gaman.

Lalalala

Úje


Varúð - Stress er hættulegt!

Í dag er ég arfastressuð, enda að bíða eftir að komast í mergsýnatökuna.  Til að stytta mér stundir og komast hjá því að flippa út á biðinni, hef ég tekið mér ýmislegt fyrir hendur.  Þar var þar sem vandamálin byrjuðu.

Ég ákvað að baka.  Niðurstaða: Ég setti hrærivél á fullt en hafði gleymt vökvanum.  Eldhús ásamt bakara hulið hvítum salla.

Ég hálsbraut mig nánast á ryksugusnúrunni, þar sem húsbandið var að ryksuga í rólegheitum.  Ástæða: Síminn hringdi og ég varð að ná honum strax.  Vegna álags var ég löngu búin að gleyma tækniundrinu númerabirti.

Týndi Bördí, sem er á heimilinu í lausagöngu (flugi).  Vissi ekki að ég hefði týnt fugli fyrr en hann skilaði sér sjálfur.  Hann lagðist til svefns á bak við bækur í bókahillunni og gaf sig fram þegar hann var orðinn úrkula vonar um að matmóðir hans saknaði hans.  Fugl heldur annars að hann sé örn, liggur á bókastafla, flesta daga og horfir yfir ríki sitt.  Mergjaður karakter, Bördí Jennýjarson.

Nú er ég að ná mér niður.  Það er bannað að keyra undir áhrifum áfengis.  Það ætti líka að vera bannað að ráðast í verkefni eins og notkun rafmagnstækja undir álagi, að viðlögðum sektum og hræravélasvipti.

Úje


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2987760

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband