Leita í fréttum mbl.is

Mergjuð sjúkrasaga

 1

Þar sem ég er á annað borð farin að blogga um sjúkdóma og mergsýnatökur, þá er best að missa sig algjörlega í sjúkdómatalinu og ræða um hægðir og þvag.  Nei, ég er að grínast.  En ég lenti í "skemmtilegri" lífsreynslu fyrir tveimur árum úti á Spáni, þegar ég var flutt fársjúk á sjúkrahús, þar sem ég eyddi sumarfríinu, nánast öllu og það var lífsreynslaW00t.  Sólin skein og útsýnið úr sjúkrahúsglugganum var nokkuð fallegt.  Ólívulundir og svoleiðis.

Hvað um það, ég ætla ekki að fara tíunda ævintýri mín á þessu sjúkrahúsi, enda vart til frásagnar um þau þar sem ég var veik á meðan ég dvaldi þar (merkilegt hvað ég er öðruvísi en annað fólk, bara veik á spítala, hm..).  Það sem hinsvegar var eftirtektarvert og minnistætt eru læknar þessa eðla spítala.

Þá daga sem ég var á röltinu, fór ég niður í kaffiteríuna og fékk mér sígó.  Þar sátu læknarnir, hver um annan reykjandi og með bjór.  Á miðjum degi.  Þar í hóp var læknir sem fór með mig í CT-skann og hann þekkti mig og kom vaðandi að borðinu mínu og bað mig á sinni takmörkuðu ensku, um sígó, hvort ég gæti lánað sér eina.  Svo var hann svo uppveðraður yfir þessum hálfa pakka sem ég rétti að honum, að hann vildi endilega gefa mér bjór í staðinn, Cervesa Grande, ekkert fingurbjargarglas.

Þar sem ég lá þarna vegna bólgu í brisi, tilkomnu vegna drykkju, þá finnst mér þetta smá stílbrot svona eftir á að hyggja, en ég sagði nei takk, því jafnvel harðsvíruðum alkanum mér, fannst full langt gengið að vera sjúklingur á spítala, þambandi bjór, með lækninum sem átti að bjarga lífi mínu, svo ég taki nú smá Lúkas á málið.

Ef þið eigið eftir að lenda á sjúkrahúsi á Spáni (Mallorca), þá get ég lofað að þar er standandi lifnaður, nánast allan sólarhringinn og læknarnir eru vel mildir, með sígópakkann í brjóstvasanum.

Þorgrímur Þráinsson, hættu að skrifa um samskipti kynjanna, sem þú hefur ekki hundsvit á og drífðu þig til Spánar.  Þar bíða verðug verkefni.

Bráðum ætla ég að blogga um fjöldasönginn á sjúkraherbergjunum.  Það er saga út af fyrir sig.

Bætmí.

Úje


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Kannski best að sleppa því að verða veikur á Spáni.......eða bara að fara ekkert til Spánar......það er hvort sem er alltof mikil sól þar ...

Sunna Dóra Möller, 3.10.2007 kl. 12:24

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þessi saga minnir mig á Dani.

Edda Agnarsdóttir, 3.10.2007 kl. 12:29

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

sjúkrasaga já...takk Jenný mín, var nefnilega rétt í þessu að kveðja hana mömmu....

Heiða Þórðar, 3.10.2007 kl. 12:32

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Jenny, jenny dreams are ten a penn lalalalala  það er svo gaman að geta lesið ritsnilld þína daglega á ný.  Ég ætla EKKI að verða veik á Spáni svo ég bara fer ekki oftar þangað :):) hef reyndar ekki farið í 31 ár, heil mannsævi það. Það er rétt hjá þér með Þorgrím, ég held hann hafi ekki vit á samskiptum kynjanna, enda var hann bara að skrifa bók fyrir karlmenn svo þeir gætu skilið konuna hans betur, þannig var fréttin manstu???

Ásdís Sigurðardóttir, 3.10.2007 kl. 12:37

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já Ásdís skiptir ekki máli hvað hann ætlaði að skrifa um, það var allavega hallærislegt

Heiða:  Ég segi helst ekki sjúkrasögur og tala ekki um veikindi (nema alkóhólisma eftir að hann varð skemmtilegur) og ég skil þig að þú sért komin með nóg.  Lalalala

Edda:  Danir eru bindindismenn við hliðina á þessum kollegum sínum.

Sunna Dóra:  Heima er einfaldlega best. Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.10.2007 kl. 12:39

6 Smámynd: krossgata

Ekki gæti ég hugsað mér að verða veik annars staðar en á Íslandi....   sem betur fer sloppið hingað til með það.

krossgata, 3.10.2007 kl. 12:59

7 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 2985788

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.