Leita í fréttum mbl.is

Innilokun!

Enginn manneskja vill láta loka sig inni.  Það er okkur eiginlegt að reyna að brjóta af okkur fjötrana þegar við lendum í þeim aðstæðum að vera svipt frelsinu.  Annars væru fangelsi varla læst, er það? 

Ég lét mér detta í hug þegar ég las nýlega um nýja AA-deild á vegum fangelsanna, þar sem talsmaður fanga sagði að föngum væri treyst t.d. til að fara á fundi í bænum, að það væri sennilega tímaspursmál hvenær það hlypi strok í einhvern. 

Nú eru tveir á flótta, eftir að hafa stungið af eftir AA-fund.  Ég vona að þetta séu ekki hættulegir menn og að þeir finnist fljótlega.

Svo er líka vonandi að þetta skemmi ekki fundarfrjálsræðið hjá hinum sem reynst hafa traustsins verðir.

Ætli það sé útópía að hægt sé að gefa föngum þetta frelsi?

Ædóntnó.


mbl.is Leitað árangurslaust að strokuföngum í alla nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ef að okkur er eiginlegt að brjóta af okkur fjötrana.......er það þá ekki útópískt að veita þeim frelsi sem að eru í fjötrum.....gefur augaleið að menn muni misnota það þegar slakað er á fjötrunum ef að fyrsta forsendan er rétt...........bara spuklera....

Annars segi ég eins og þú að það er slæmt að þeir sem standa sig og þurfa á þessum fundum að halda þurfa að gjalda fyrir bort þessara tveggja...!

Sunna Dóra Möller, 3.10.2007 kl. 11:10

2 Smámynd: krossgata

Það er alloft þannig að meginþorrinn geldur fyrir fáu svörtu sauðina.  Allir unglingar eru dæmdir fyrir hegðun nokkurra vandræðaseggja.

En fá allir fangar sem eru í AA-meðferð fundaferðaleyfi, sama hvar þeir eru staddir á refsitímanum?  Mér finnst ekki að fangi sem ekki er kominn það langt í refsivist að hann sé ekki farinn að fara í stutt leyfi eða aðlögun að samfélaginu eigi að fá fundaleyfi til að sækja AA-fundi.  Í þeim tilfellum finnst mér að koma eigi með AA-fundi inn í fangelsið.

krossgata, 3.10.2007 kl. 11:21

3 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Þeir fá nú þegar helgarfrí sem samrýmist ekki mínum hugmyndum um fangelsisvist. Er það nokkur furða að það sé eftirsótt að sitja inni á Íslandi.

Ingi Geir Hreinsson, 3.10.2007 kl. 11:34

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

það þarf ekki nema tvo vitleysinga til að eyðileggja fyrir hinum. Mér finnst annars sjálfsagt að fangar fái að fara á fundi útí bæ. Ég erekki að tala um virka fíkla eða eitthvað álíka. Það mætti alveg vera partur af prógramminu í aðlögun út í þjóðfélagið. En auðvitað yrði að meta ástand hvers og eins...fleira slíkt mætti gera til að "betrunarvist", væri í raun til betrunar.

Ekki finnst ykkur núverandi ástand gott í fangelsismálum? Ekki get ég séð að beturnarvist t.d. Lalla J...eða Steingrímar Njáls..hafi verið þeim lexía og til góða...hvað þá samfélaginu.

Heiða Þórðar, 3.10.2007 kl. 11:44

5 identicon

Fangar fá ekki helgarfrí-hefur aldrei verið. Hins vegar hafa fangar sem setið hafa inni X mikið af dómi sínum (t.d. 16 ára dómur og hefur setið inni í 4 ár) möguleika á að sækja um dagsleyfi einu sinni í mánuði. Dagsleyfið er frá 8 að morgni til 22:30 að kvöldi. Það fá heldur ekki allir fangar AA fundarferðaleyfi-að minni vitund er aðeins um einn að ræða.

Berglind (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 2985878

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.