Leita í fréttum mbl.is

Fréttatilkynning frá Svandísi Svavarsdóttur!

Fréttatilkynning frá Svandísi Svavarsdóttur, borgarfulltrúa og fulltrúa VG í stjórn Orkuveitunnar:

Sátt um hvað?

Ljóst er að sáttaniðurstaða Sjáfstæðismanna er sátt um áframhaldandi völd í Ráðhúsinu í Reykjavík. Hún er ekki sátt um vinnubrögð, ekki sátt um heiðarleika, ekki sátt um skilning á lýðræði og ekki sátt um samráð. Hún er sátt um að selja fyrirtækið hið fyrsta án þess að lykilspurningum hafi verið svarað. Jafnframt er hún sátt um að viðhalda völdum Framsóknarflokksins í borginni.

Hvað er Reykjavik Energy Invest? Hvað á þetta fyrirtæki? Enn hefur ekki verið lagður fram listi yfir eignir þess. Á að einkavæða hlut fyrirtækisins í Hitaveitu Suðurnesja? Á að einkavæða sérþekkingu Orkuveitu Reykjavíkur? Á að einkavæða fyrirtækið á grundvelli verðmats Hannesar og Bjarna? Hverjir munu kaupa aðrir en þeir sem þegar hafa eignast umtalsverðan hlut í fyrirtækinu? Var samruni fyrirtækjanna löglegur yfir höfuð? Þessum spurningum hefur ekki verið svarað.

Ljóst er að borgarstjóri hefur telft mjög alvarlega af sér í þessu máli. Hann hefur farið á bak við borgarbúa, samflokksmenn sína innan og utan borgarstjórnar sem og aðra kjörna fulltrúa í borgarstjórn. Hann hefur farið á svig við lög og tekið þátt í ósiðlegu atferli sem ofbýður fólki um allt land. Fólk vill ekki slíka stjórnendur. Borgarbúar treysta ekki slíkum borgarstjóra þótt borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins virðist greinilega ekki gera sömu kröfur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fríða Eyland

Hún er Góð

Fríða Eyland, 8.10.2007 kl. 18:30

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Svandís er rödd fólksins og hún er bara alger kjarnakona. Fleiri Svandísir!!!! Dís og gyðja fólksins sem er búið að fá nóg!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.10.2007 kl. 18:39

3 Smámynd: krossgata

Það verður allt gert til að dreifa athygli fólks.  Vatn og orka verður seld í hendur einkaaðila og innan tíðar þurfum við að borga fyrir kalda vatnið líka og stanslaust mun bæði vatn og orka hækka, eftir því sem þarf að hlaða undir verðbréfabraskarana bílum, flugvélum og sumarbústaðalóðum á tunglinu.  Markaðslögmál hef ég aldrei séð virka á Íslandi - aukin samkeppni, hagkvæmni, betra verð minn rass. 

En Svandís er góð og virðist vera ein af fáum með viti.  Það er bara þannig að fólk eins og hún er hunsað og spurningum þeirra er ekki svarað.

krossgata, 8.10.2007 kl. 18:54

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sammála...hún er frábær!!

Sunna Dóra Möller, 8.10.2007 kl. 18:56

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er að hlusta á Illuga og Katrínu núna, þetta er svo loðið og teygjanlegt allt saman, eins og gott kynlíf.  Libra - Zodak 

Ásdís Sigurðardóttir, 8.10.2007 kl. 19:04

6 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Illugi var góður áðan - Kata svona la la.  Þetta eru flókin mál og lykilspurningar sem erfitt er að svara. 

Svandís var góð í Íslandi í dag áðan.  Hún ræddi um málið án þess að detta í gildru persónulegs skítkasts eins og hún hefur stundað undanfarna daga.  Kona að hennar kaliberi á ekki að þurfa að nota svoleiðis aðferðir við að koma máli sínu á framfæri.  Það er fyrir neðan hennar virðingu.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 8.10.2007 kl. 19:28

7 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Þess má geta að hvorki Haukur né Björn Ingi ætluðu að kaupa hlut í fyrirtækinu og græddu því ekkert á þessu máli.  Þvert á móti var sérstaklega tekið fram að þeir ætluðu ekki að gera það enda hefði það verið óeðlilegt. 

Sá eini sem hagnast á öllu þessu máli verður líklega Júlíus Vífill - enda var það ekki hann sem hóf það innan Sjálfstæðisflokksins - ætli það sé tilviljun? 

Ljóst er að Orkuveitan á morgun verður ekki sama Orkuveitan og hún var í gær þar sem búið er að banna henni að taka þátt í öðrum verkefnum en að sjá um veitustarfsemi í Reykjavík og nágrenni.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 8.10.2007 kl. 19:32

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hér í bretlandi er talað um orkustríði stóra...orkan er mesta gullið í dag og við látum ræna henni af okkur sofandi.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.10.2007 kl. 19:53

9 identicon

Nú brýtur sjálfstæðismaður af sér í obinberu starfi, þá skal framsóknarmaður rekinn .

Númi (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 20:30

10 Smámynd: Magnús Paul Korntop

BURT MEÐ BORGARSTJÓRANN OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN.

Magnús Paul Korntop, 9.10.2007 kl. 01:53

11 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Kíkið á þetta. Og skrifið undir.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 9.10.2007 kl. 07:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2985755

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband