Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Hneyksli

NERÐIR SÍÐASTIR Í RÖÐINNI

1

Auðvitað eru nerðirnir síðastir í röðinni.  Hér og þar má sjá/heyra hjáróma raddir þeirra hrópa í fyrirsögnunum "KLUKK".  Halló, klukkið er liðið undir lok.  Við vorum að því fyrir fleiri dögum síðan.  Tíminn líður hérna á netinu og nú erum við að byrja á "Í grænni lautu".

Þetta er eins og að bjóða gleðileg jól í febrúar og vera jólalegur í framan um leið.

Bítsmíðispípúljúnó.


GLATAÐ TÆKIFÆRI

1

Ég hafði ekki hugmynd um að Búskur forseti hafi farið frá völdum á meðan hann fór í krabbameinsskoðun í dag.

Ef ég hefði vitað að hann væri ekki forseti Bandaríkjanna lengur, þótt ekki hafi það verið langur tími, hefði ég svo sannarlega gert mér dagamun.

Fruuuuuuuusssssss!

ÆMBEVILDERDANDBÍTREID!


mbl.is Bush hefur tekið aftur við völdum eftir læknisskoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEYÐARLÍNUR EÐA "HEITIR SÍMAR"

1

Eru til umræðu nú þegar fjöldahystería ríkir um heim allan vegna útgáfu Harry Potter bókarinnar og þar með afdrifum söguhetjanna í þeirri merku bók.  Það er sum sé talið, a.m.k. í Bretlandi, að mikið álag verði á viðkomandi "hotlines" af því fólk muni fara í sorg og aðskilnaðarerfiðleika eftir lesturinn.

Mér hefur fundist þetta pínu fyndið, pínu yfirdrifið, pínu hallærislegt og pínu aumingjalegt.

Svona var það víst líka þegar hinn væmni drengjakór "Take That" hætti samsullinu.

HVERS VEGNA VAR EKKI BOÐIÐ UPP Á SVONA ÞJÓNUSTU ÞEGAR BÍTLARNIR HÆTTU???

Þá væri maður kannski í betri málum í dag en raun ber vitni.

Bítsmí.


EKKERT KYNLÍF EN BEINT Á TOPPINN

1

Noh það munar ekki um það.  Ellý verður að fara að vara sig.  Einhversstaðar í heiminum, nánar tiltekið í Kína bloggar kínverska leikkonan og leikstjórinn Xu Jinglei og er heimsins mest lesni bloggari.  Það hefur vakið sérstaka athygli að konunni hefur tekist að fanga athygli lesenda án þess að hún bloggi um kynlíf eða slúður.

Ellý nú verður þú að fara að söðla um.  Það eru nokkur sæti enn á toppinn.  Drífa sig.  Hvernig væri að blogga um venjulegt fólk?  Að tala, borða, vinna, sofa og lifa.

Súmí.


mbl.is Vinsælust án kynlífs og kjaftasagna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞEIR SKELLIHLÆGJA FÉLAGARNIR..

..og ríkissjóður borgar brúsann.  Kva!  Það er líka alveg rosalegur áhugi á því hjá batteríinu öllu saman að slá á klámvæðinguna. 

Hvað er lokað rými, hvað er opið rými?  Þetta er alveg svakalega flókið. 

Og þeir hlægja og hlægja karlarnir enda full ástæða til.  Þeir eru í góðum málum.

Það þýðir ekki að segja "súðefokkers" að þessu sinni, það hefur nefnilega engan tilgang.

Fokk.


mbl.is Eigandi Goldfinger og dansari á staðnum sýknuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÆTLI ÞEIR SOFI RÓTT..

1

..þessir böðlar sem taka fólk af lífi, miskunnarlaust í Flórída?  Sjö mánaða fríi frá dauðarefsingum er lokið en á meðan hafa engir fangar verið teknir af lífi í kjölfar þess að það mistókst að myrða einn með banvænni sprautu.  Það þurfti að sprauta hann aftur og dauðastríðið var 34 mínútur.  Þetta eru ekki manneskjur sem þetta gera og sjá ekkert athugavert við það einu sinni að taka fólk af lífi í nafni laganna.  Rétt eins og það sé minna ódæði að drepa með ríkið á bak við sig heldur en á eigin vegum.

Hvað með læknana sem taka þátt í aftökunum?  Gengur þetta ekki þvert á læknaeiðinn? ARG

Í raun ætti engin þjóð með sjálfsvirðingu að halda sambandi við lönd eða fylki sem enn eru í barbaríinu.

súðemoðerfokkers!


mbl.is Aftökustoppi lokið í Flórída
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENDILEGA EKKI SETJA INN ATHUGASEMDIR..

..við færsluna um hana Bríeti.  Það er ekki athugasemdavert að ein af okkar fremstu kvenréttindakonum á síðustu öld, (sem var sögulegt tímabil í kvennabaráttuinni, aðallega vegna stórra sigra en líka ósigra auðvitað) eigi að fá um sig minnisvarða. Það er auðvitað á hverjum degi sem kvenna er minnst fyrir störf sín vegna framlags í mannréttindamálum (eða öðrum málum yfirleitt).  Styttur og minnisvarðar borgarinnar eru,  eins og allir vita,  í jöfnu hlutfalli á milli kynja.

Ég er persónulega hissa að hennar skuli þó verða minnast á UNDAN öllum jakkafötunum sem ENN eru á lífi, eins og Davíð Oddsyni, forsetanum og fleiri guttum.

Mér finnst það merkilegt fagnaðarefni. 

Arg


HVAÐA PERRI FANN UPP ÞENNAN?

1

Sumir frasar,  málshættir eða kannski orðtök eru beinlínis ógeðsleg.  Þessi sem hér er nefndur er alltaf að verða á vegi mínum nú orðið og virðist vera í tísku, svei mér þá.  Á tímabíli gargaði frasinn á mig af bakhlið mjólkurfernunnar við morgunverðarborðið.

Hvað um það.  Sá sem bjó til  þennan frasa hefur bakað sér óvild mína sem nær út yfir gröf og dauða.  Ég þekki engan rassalyktarunnanda en kannski gengur fólk um og fitjar upp á nefið þegar endalykt og annar viðbjóður á í hlut, bara til að sýnast normal.  Kannski liggur þetta sama fólk út um allt inni á baðherbergjum landsins og lyktar í ljúfri sælu.

Nei nú æli ég....

Hér kemur viðkomandi hroðbjóður:

Sæt er lykt úr sjálfs rassi.

Ég legg til að þessi verði afmáður úr íslensku máli.


BRILLJANT HUGMYNDIR SEM TÝNAST..

1

..áður en þær komast á blað skella sér stundum í frjálsu falli ofan í hausinn á mér þegar minnst varir, og ég lamast af aðdáun.  Aðdáun á mínum eðalheila og smá vegna þess að ég veit að ég hef rekið mig í einhverjar "hugsanir" þarna fyrir ofan mig, sem hafa sloppið frá eigendum sínum og eru þar á sveimi. 

Nú ég fékk eina svona geníal hugmynd áðan.  Ég var að dóla í bloggheimum, lesa sauðsvartan almúgann (ég er að sjálfsögðu að grínast, myndi aldrei hugsa svona ljótt. Jeræt), þegar ég fékk þessa hugmynd.  Nú get ég ekki afritað mínar hugmyndir til geymslu þar til ég næ að koma þeim á blað, í fast form svo að segja en þar sem ég hef ofurtrú á minni mínu til langs og skamms þá hélt ég yfirreiðinni áfram eins og ekkert hefði í skorist.

Ég er búin að gleyma hugmyndinni og blogga því um hugmynd sem fór út í alheiminn og einhver manneskja verður slegin í höfuðið með henni í Kína, Timbúktú eða á Grænhöfðaeyjum, mjög bráðlega.  Ég held að hugmyndin gæti hafa verið annaðhvort eftirtalinna atriða:

1. Að kaupa skóverslun.  Það yrði ódýrara til lengdar, í stað öflugra skókaupa hjá vandalausum. Það myndi vera s.k. sjálfsþurftarbúskapur.

2. Að byrja með sjónvarpsþátt sem ráðgefandi aðili. Hjónabandsvandræði, skilnaðir, lóðahreinsun, sláturgerð (æl) tarotspár, notkunarleiðbeiningar með hallamælum, kartöflurækt, bílaviðgerðir og þetta er bara lítið brot af hæfileikum mínum sem ég myndi deila með þjóðinni. 

Ef einhver ykkar fær flotta hugmynd í kvöld, þá er hún mín og skilið henni samstundis.  Éáana.

Jeræt og úje


OF MÖRG TÆKI OG TÓL...

1

..fylgja nútímanum.  Ég er í vandræðum með þessi tvö símtól heimilissímans.  Ég er sífellt að skilja þá eftir út um allt, gleymi að hlaða, báða í einu og er stöðugt lendandi í tómu tjóni út af þessu.  Þetta ætti auðvitað ekki að vera vandamál, en mér tekst afburðavel að klúðra öllu sem heitir tæki og tól.  Það má kannski virða mér það til vorkunnar að ég ólst upp á síðustu öld þar sem t.d. var einn sími á heimili (ef fólk var svo heppið og varð ekki að láta sér nægja s.k. millisamband) en heima hjá mér var einhver framúrstefna í gangi en þar var hægt að stinga símanum í samband í hverju herbergi.

Ég þurfti að leita dauðaleit að símtóli í morgun þegar síminn hringdi.  Hann hringdi út og hvorugt tækið fannst.  Ekki þótt ég reyndi að ganga á á hljóðið. Að lokum fann ég annað, á baðbrúninni (ég næ mér ekki) og hinn fannst úti á svölum við hliðina á grillinu og þeir voru báðir nánast rafmagnslausir. 

Ég er að hugsa um að fá mér síma sem ekki er hægt að vaða um allt með.  Best væri að hafa hann múr og naglfastan í vegg.  Svona eins og gömlu sveitasímarnir.  Ég held bara, svei mér þá, að ég höndli alveg afturhvarf til fortíðar en ég er ekki svo viss um þetta með framtíðartæknina, a.m.k. ekki hvað varðar síma.

Súmí.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2987932

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.