Leita í fréttum mbl.is

OF MÖRG TÆKI OG TÓL...

1

..fylgja nútímanum.  Ég er í vandræðum með þessi tvö símtól heimilissímans.  Ég er sífellt að skilja þá eftir út um allt, gleymi að hlaða, báða í einu og er stöðugt lendandi í tómu tjóni út af þessu.  Þetta ætti auðvitað ekki að vera vandamál, en mér tekst afburðavel að klúðra öllu sem heitir tæki og tól.  Það má kannski virða mér það til vorkunnar að ég ólst upp á síðustu öld þar sem t.d. var einn sími á heimili (ef fólk var svo heppið og varð ekki að láta sér nægja s.k. millisamband) en heima hjá mér var einhver framúrstefna í gangi en þar var hægt að stinga símanum í samband í hverju herbergi.

Ég þurfti að leita dauðaleit að símtóli í morgun þegar síminn hringdi.  Hann hringdi út og hvorugt tækið fannst.  Ekki þótt ég reyndi að ganga á á hljóðið. Að lokum fann ég annað, á baðbrúninni (ég næ mér ekki) og hinn fannst úti á svölum við hliðina á grillinu og þeir voru báðir nánast rafmagnslausir. 

Ég er að hugsa um að fá mér síma sem ekki er hægt að vaða um allt með.  Best væri að hafa hann múr og naglfastan í vegg.  Svona eins og gömlu sveitasímarnir.  Ég held bara, svei mér þá, að ég höndli alveg afturhvarf til fortíðar en ég er ekki svo viss um þetta með framtíðartæknina, a.m.k. ekki hvað varðar síma.

Súmí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég var með svona þráðlausan og gafst upp. Heimsljósið brokkaði með hann á einkennilegustu staði. Já klóið og inn í ísskáp. Svo fór rafmagnið og heimsljós eitt heima og varð skíthræddur. Þá komumst við að því að þráðlausa græjan virkaði ekki í rafmagnsleysi og þá mátti foreldrið skipta um síma..

Ragnheiður , 18.7.2007 kl. 15:14

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Iss ég er með 2 slíka síma og er alltaf að tína þeim,

Kristín Katla Árnadóttir, 18.7.2007 kl. 16:15

3 Smámynd: Kolgrima

Mér varð það á að svara í fjarstýringu heima hjá vinkonu minni - fjarstýringar líta nefnilega ekki alltaf út eins og fjarstýringar! Komm on, fjórir gemsar og fimm stórdularfullar fjarstýringar á einu borði og allt í einu heyrðist ring. Ég greip náttúrulega bara það sem mér fannst líklegast  en síminn var auðvitað týndur.

Kolgrima, 18.7.2007 kl. 16:21

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ef heimasímtólið á mínu heimili týnist þá byrja ég á að leita inn í sænginni hjá Gelgjunni. Finnst ótrúlega oft þar. Dont ask me why

Jóna Á. Gísladóttir, 18.7.2007 kl. 16:32

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þessir þráðlausu eru ALDREI á sínum stað hehehe... en ég vildi samt ekki vara á hans, því það er bara svo þægilegt, er með annan múr- og naglfastan sem ég GET hlaupið í ef ég finn hinn alls ekki.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.7.2007 kl. 16:55

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

hehe kannast við þetta vandamál

Huld S. Ringsted, 18.7.2007 kl. 16:58

7 Smámynd: Ragnheiður

Kolgríma yndislegust...hehehe. Það er svipað ástand á stofuborðinu mínu...allt í fjarstýringum og þar á meðan ein af Wiiii tölvunni sem lítur ekki út fyrir að vera fjarstýring, eitthvað allt annað bara

Ragnheiður , 18.7.2007 kl. 17:07

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Frú Jenný!

Á yðar ágæta stórheimili hélt ég að til væri svona "Þarfahlutur" sem sæi um svona smáleiðindaamstur eins og síma? Slíkir og bráðnauðsynlegir "þjónar" eru oftast í líki karlfausks!

Magnús Geir Guðmundsson, 18.7.2007 kl. 17:16

9 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Ég keypti nýjan síma fyrir tveimur árum þar sem saman voru í raun tvö tæki. Annað er hið stóra fína með símsvara og þvíumlíku (skil ekki hvernig ég gat verið án símsvara). Sá sími er alltaf á sínum stað, fastur á veginn með tól sem tengt er við símann. Hitt tækið sem kom með er batteríssími sem ég get valsað með um alla stofu. Þetta er alveg súper. Annars hef ég þá tilhneigingu að láta þráðlausa símann alltaf á sama stað þannig að það kemur ekki oft fyrir að ég tíni honum.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 18.7.2007 kl. 17:16

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna: Hvernig heldurðu að gelgjan verði þegar hún verður GELGJA! OMG

Kristín: Greinilega með allt á þurru.  Ertu í meyjarmerkinu eða hvað?

Magnús Geir: "Þarfahluturinn bregður sér til vinnu af og til.  ARG

Kolgríma, Hross og allir hinir: Ég ætla ekki út í það að fara að tala um mistök í sambandi við að svara í fjarstýringar o.þ.u.l.  Híhí, þið ættuð bara að vita

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.7.2007 kl. 17:22

11 Smámynd: Ragnheiður

Ég skora á þig Jenný...upplýstu nú allt dramað fyrir okkur

Ragnheiður , 18.7.2007 kl. 17:40

12 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Er "alræmdur heimilistækjamorðingi" á mínu heimili!  Hef síðustu 10 árin murkað lífið úr öllum mínum heimilistækjum, nema þvottavélinni, en hún framdi "harakiri" því karlinn minn var að "nota hana", þegar hún dó!  Er nýbúin að myrða heimilsímann, og gemsanum mínum drekkti ég með Egilssodavatni, 1/2 lítra, upp í hlíðum Esju núna í júlí.  Á nú tvo þráðlausa síma, svona bara til að tryggja að "einn" finnist, þegar einhver þarf að bjalla.  Eru "báðir" týndir samt, í 99% tilfella!  Gemsann nýja geymi ég svo í "óræðum geimum" handtösku minnar, og hann sést og finnst aðeins við hátíðleg tækifæri, á fullu tungli í austanátt!

Sigríður Sigurðardóttir, 18.7.2007 kl. 20:00

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

HAHAHA Sigríður, við ættum að stofna sjálfsstyrkingarhóp.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.7.2007 kl. 20:26

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég á eftir að upplýsa nánar um málið, þegar ég hef taugar í það.  Muhahahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.7.2007 kl. 20:26

15 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Líst vel á það!  Betra samt að boða mig á fyrsta fund í gegnum bloggið....sleppa því að bjalla!  Bévítans tólin aldrei "á sínum stað"!

Sigríður Sigurðardóttir, 18.7.2007 kl. 21:09

16 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Tvær stuttar og ein löng er málið...

Brynja Hjaltadóttir, 19.7.2007 kl. 00:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2985764

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband