Leita í fréttum mbl.is

ÆTLI ÞEIR SOFI RÓTT..

1

..þessir böðlar sem taka fólk af lífi, miskunnarlaust í Flórída?  Sjö mánaða fríi frá dauðarefsingum er lokið en á meðan hafa engir fangar verið teknir af lífi í kjölfar þess að það mistókst að myrða einn með banvænni sprautu.  Það þurfti að sprauta hann aftur og dauðastríðið var 34 mínútur.  Þetta eru ekki manneskjur sem þetta gera og sjá ekkert athugavert við það einu sinni að taka fólk af lífi í nafni laganna.  Rétt eins og það sé minna ódæði að drepa með ríkið á bak við sig heldur en á eigin vegum.

Hvað með læknana sem taka þátt í aftökunum?  Gengur þetta ekki þvert á læknaeiðinn? ARG

Í raun ætti engin þjóð með sjálfsvirðingu að halda sambandi við lönd eða fylki sem enn eru í barbaríinu.

súðemoðerfokkers!


mbl.is Aftökustoppi lokið í Flórída
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það er viðbjóður að þetta skuli viðgangast í svona þróuðu landi eins og Bandaríkjunum. Viðbjóður dregur til sín meiri viðbjóð.. Slæmt Karma fyrir eina þjóð.. Vonandi að þetta verði lagt af sem fyrst.. Það er bara slæmt hvað þeir fá lítinn þrýsting frá öðrum löndum.. Pólitíkin er svo tvöföld í roðinu. Dæmisagan um Jón og Séra Jón er langlíf..

Björg F (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 14:36

2 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Marg oft hefur verið lagt til að dauðarefsngum verði aflétt í Bandaríkjunum enn því miður hefur það aldrei náð fram að ganga. Auðvitað verða alltaf slys og marg oft hefur það komið fram að aftöka hefur misheppnast. Enn einhvern vegin er manni alveg sama hvað maðurinn hafi gert af sér til að fá dauðadóm það á enginn skilið að upplifa dauðastund sína svona.

Einmitt þetta á að verða til þess að dauðarefsingum verði hætt.

Lúther

S. Lúther Gestsson, 19.7.2007 kl. 14:52

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Rétt hjá ykkur báðum.  Í huga mér kemur spurningin upp um hvort ríki sem svona fer með þegna sína og trúir á afbökunina á "auga fyrir auga, tönn fyrir tönn (sem ég held að sé nú bara dæmi um karmalögmálið ekkert annað) sé svo þróað þegar allt kemur til alls.

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.7.2007 kl. 15:00

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég velti því einmitt fyrir mér hvernig þetta samrýmist eiði lækna. Ég var einu sinni viðstödd aftöku í Kaliforníu og þá kom skýrt fram að nafn þessara læknar, eða böðla, eru aldrei gefin upp. Svo varla eru þeir stoltir af djobbinu...

Bandaríkin eru eina vestræna ríkið sem enn stundar þennan fjára. Og trúir því, þrátt fyrir yfirfull fangelsi, að þetta hafi einhvern fælingarmátt.

Á síðustu árum, eftir að DNA greining fór að ryðja sér til rúms, hefur margoft tekist að sýna fram á að saklausir menn sitji á dauðadeildum bandarískra fangelsa. Og samt halda þeir þessu til streitu! Ömurlegur blettur á bandarísku samfélagi. 

Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.7.2007 kl. 15:14

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

alveg merkilegt að dauðarefsing skuli ennþávera við líði í vestrænu landi árið 2007, hélt að mannskepnan væri orðin siðmenntaðri en það

Huld S. Ringsted, 19.7.2007 kl. 15:24

6 Smámynd: Ragnheiður

þetta er gríðarlega viðbjóðsleg refsiaðferð. Ég minni á blogg mitt um málið nýlega þar sem klárlega saklaus kona var tekin af lífi...frestirnir runnu út áður en löffinn hennar gat sannfært yfirvöld um að skoða málið betur. Oft eru þessum glæponum skipaðir lögmenn frá hinu opinbera...lögmenn sem virðast hreint ekki nenna að vinna vinnuna sína. Mál þessarar konu var þannig, ekki kölluð til vitni og löffinn bara sat í salnum og beið þess að komast heim í steikina hjá konunni sinni.

Ég er nú ekki grátgjörn og bara heilmikill harðjaxl en ég táraðist þegar konan var tekin af lífi. Það kom sem innslag síðast í þáttinn....dauðarefsing á ekki að þekkjast.

Ragnheiður , 19.7.2007 kl. 15:47

7 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Sammála þessu, við eigum ekki að drepa fólk.

Ester Sveinbjarnardóttir, 19.7.2007 kl. 16:26

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ragnhildur ertu ekki að grínast með mig?  Viðstödd aftöku? OMG bloggaðu um það kona. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.7.2007 kl. 23:57

9 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Jamm, stundum skrítið djobb, blaðamannsdjobbið. Skrifaði heila grein í Mogga um þetta einu sinni, en get sosum alveg rifjað eitthvað af þessu upp. Spurning hvort það sé við hæfi á svona fallegum sumardögum.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 20.7.2007 kl. 09:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2985839

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.