Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Hneyksli

HVAÐ ER ÞETTA EIGINLEGA..

1

..með byssur og tíu-ellefu?  Ég var að blogga um það um daginn þegar vopnaða ránið var framið í einni þessara verslana, hvað það væri eiginlega með rán og tíu-ellefu. 

Maðurinn sem skaut af startbyssunni var handtekinn vegna gruns um vopnaburð.  Sko GRUNS.  Hann faldi startbyssuna og þrjár leikfangabyssur í runna áður en hann var handtekinn en vísaði löggunni síðan á góssið.

Aumingja tíu-ellefu greyin, hvað gerðu þeir í fyrra lífi til að eiga þetta skilið?

Bítsmí.


mbl.is Skaut af startbyssu við verslun í miðbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÉG ER LAUS, ÉG ER LAUS

Það vantar söngkonu í Nylon-flokkinn.  Emelía er hætt (who the fuck is Emilía?).  Ég get ekki sungið, hata tyggjókúlumúsík en er flott í að mæma og hrista mjaðmirnar.

Einar get ég fengið vinnu, er doldið við aldur sko en aldrei of seint að byrja.

Újejejejejeje-


mbl.is Emilía hættir í Nylon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í DAG...

... hef ég gert þetta markverðast..

1.  Skellt hurð svo fast að hún datt nærri því af hjörunum og ég upplifði svakalegt kikk yfir því hversu dúndrandi vel hún skelltist.

2. Bakað bananabrauð (sko eftir hurðarskellinn)

3. Grenjað úr sjálfsvorkun (sko eftir hurðarskellinn)

4. Brosað í gegnum tárin (sko ditto)

9. Lesið blogg eins og brjálæðingur (ditto)

10. Farið í göngutúr (dit..)

11.  Gert helling fyrir hurðarskell en ekkert af því skiptir máli núna enda var það ekki allt fagurt.

Ég,  með geislabaug í englabúningi.


MIKIÐ SKELFING ER ÉG FEGIN..

1

..að hér skuli fólk ekki líflátið af dómstóli götunnar.  Bara svona nærri því.

Ætli mannorðsmorð sé hin nútíma aftökuaðferð?

Ég, hugsi-


mbl.is Hundurinn Lúkas á lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STUNDUM SKAMMAST ÉG MÍN FYRIR ÞJÓÐERNI MITT

1

Alþjóðlegar sumarbúðir standa nú yfir í Hjallaskóla í Kópavogi. Þar dvelja börn frá 12 mismunandi löndum, frá ólíkum menningarheimum og ólíkum aðstæðum.  Í sumarbúðunum er unnið að því að auka víðsýni og umburðarlyndi krakkanna.

Flott framtak.  Ég hef hins vegar engar áhyggjur af börnum þegar kemur að umburðarlyndi.  Börn eru yfirleitt gædd þeim eiginleika í ríkum mæli.  Ég hef hins vegar miklar áhyggjur af fullorðnu fólki hvað þetta varðar og þá alveg sérstaklega skort á umburðarlyndi gagnvart fólki frá öðrum löndum, sem kemur hingað t.d. til að vinna og vekur oft vægast sagt neikvæðar kenndir í hinum eðalborna Íslending.

Í gærkvöldi var ég að vafra um netið og rakst á pistil hér á Moggabloggi sem gerði það að verkum að mér brá í brún.  Þar er kona að tjá sig um útlendinga, hún er ekki útlendingahatari, vill hún meina,  en vill að þeir lykti betur, séu ekki svona eða hinsegin og þá sé hún til í að leyfa þeim að vera (lesið sjálf (www.iwanna.blog.is) .  Enn verri eru svo athugasemdirnar sem hún vær við færslunni. Þar sér maður að kynþáttahatur er ansi útbreitt fenomen á Íslandi.  Ó við Íslendingar erum svo vel að okkur, svo menntuð, svo umburðarlynd, svo fordómalaus, ó já bara að við þurfum ekki að hafa fyrir því að praktisera allan þennan þroska í daglegu lífi okkar.

Ég sting upp á svona sumarbúðum fyrir fullorðna.  Það væri flott að byrja á þeim sem eru að ala upp börn svo þeir skvetti ekki sjúklegum og mannfyrirlitlegum skoðunum sínum yfir á saklausa afkomendur sína.

Ég í fjósgallanum með skófluna tilbúin að byrja að moka.

 


mbl.is Víðsýni og umburðarlyndi aukið í sumarbúðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞIÐ MEGIÐ FARA STRÁKAR..

1

..hvenær sem þið viljið segir forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki.  Ég er sammála kalli, pakkið saman og drífið ykkur, það eru allir að bíða eftir að þið náið því að þið erum komnir langt fram yfir eðlilegan heimsóknartíma.

Annars voruð þið aldrei neitt sérstaklega velkomnir að ég held.

Drífa sig.

Komasho!


mbl.is „Bandaríski herinn getur farið þegar hann vill“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BARA SMÁ PARTÝ EÐA ÞANNIG

 

Rosalega hefði ég ekki viljað vera í sporum fólksins sem hefur brugðið sér af bæ í gærkvöldi og á meðan var 150 manna unglingapartý í gangi heima hjá þeim.  150 manna.  Allt vitlaust auðvitað og löggan send á svæðið.  Þetta var í fjölbýlishúsi.  Að tala um að skemmta sér rækilega!

Mikið rosalega finn ég til með þessu fólki sem brá sér að heiman.

Jesús minn!


mbl.is 150 manna unglingapartý leyst upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FORBOÐIÐ

1

Rosalega finnst mér gleðilegt að Starbucks kaffihúsið hafi neyðst til að loka í Peking, eftir kröftug mótmæli. Sjá:

"Kaffihúsið Starbucks neyddist til þess að loka í Peking eftir kröftug mótmæli. Bandaríska kaffihúsakeðjan opnaði fyrst í Forboðnu borg Peking fyrir sjö árum síðan, en hefur löngum verið talin móðgun við kínverska menningu."

Að hafa þessa keðju, sem eflaust er ágæt fyrir sinn hatt, í hinni forboðnu borg finnst mér svo mikið stílbrot og nákvæmlega jafnmikið út úr kortinu og stilla MacDonalds upp í fordyri Þjóðleikhússins.  Eitthvað verður að vera heilagt gagnvart kapítalismanum sem öllu tröllríður.  Reyndar bauðst kaffihúsakeðjunni að starfa áfram ef þeir kölluðu starfsemina öðru nafni en það tóku þeir ekki í mál

Mér finnst einhvernvegin að í forboðnu borginni eigi að vera kínversk tehús og matsölustaðir.  Ekkert annað takk fyrir.  Það er hægt að gúffa í sig hamborgurum og kaffi annarsstaðar "for crying out loud".

Úje


mbl.is Starbucks lokar í Forboðnu borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SUMARSTARFSMAÐURINN LEIKUR ENN LAUSUM HALA

2

 ..eða hvað finnst ykkur um þessa fyrirsögn?  "BARA MATRÉTTIR FRÁ EES-RÍKJUM Á BOÐSTÓLNUM?"  Nýyrða smíðin heldur áfram.  Halló, hvað varð um máltíðir?

Mogginn hefur alltaf verið ofarlega á vinsældarlistanum hjá mér, alveg frá því ég var stelpa, t.d. vegna þess að Mogginn var útvörður vandaðs málfars og svo auðvitað vegna minningargreinanna (okokok er að fíflast með minningargreinarnar).  Það var hægt að nota blaðið eins og stafsetningarorðabók.

Setjið Sumarliða á námskeið og ég meina það.

Ekki seinna en núna.


mbl.is Bara matréttir frá EES-ríkjum á boðstólum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DEKKJAMAÐURINN

1

Hvað verður nú um Michelin manninn ef Michelin fyrirtækið lendir í tómu tjóni vegna dekksins sem sprakk í Noregi á ferð?

Ég ætla rétt að vona að þetta reddist.  Mér er umhugað um Michelin vininn enda er hann alveg eins og Bjartur  frændi í laginu.

Þess vegna þykir mér vænt um kvikindið.

Bítsmí.


mbl.is Michelin-dekk rannsökuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2987932

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband