Færsluflokkur: Hneyksli
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
ÉG HEF VERIÐ ILLA SVIKIN..
..af Vífilfelli, varðandi áróður þeirra um heilsusamlega og sykurlausa kókdrykki. Ég er kókisti, hef verið það frá unglingsaldri, með smá hléum auðvitað. Ég þekki mitt kók. Ég drakk litlar kók, í grænleitum flöskum og með glærum stöfum. Það var nefnilega stór munur á bragði eftir útliti flaskna í denn. Margir hafa sagt það kjaftæði en ég veit betur. Kókið varð að vera í gólfkæli, svona opnanlegum ofnafrá (eins og frystikista) og vera slefköld. Það voru dásamlegir nautnatímar unglingsáranna. Ekki var verra að fá eina Síríuslengju með lakkrísborða eða rauðum Ópal með. Namminamm.
En um leið og æskan er öll, þá verður manni dagsljóst, að sumt er óhollt, alveg einstaklega óhollt og jafnvel baneitrað. Ég komst að því að margoft hef ég sennilega verið í lífshættu, skv. nýjustu rannsóknum og alltaf án þess að hafa hugmynd um það. Það er sennilega þess vegna sem ég lifði af allar stórhætturnar. Eins og hunangsflugan sem flýgur þrátt fyrir að það sé vísindalega sannað að hún geti það ekki. Flugan hefur nefnilega ekki hugmynd um það.
Nú er Kók- Diet-, Light- og Zero ekki hótinu betra eða heilsusamlegra en hið baneitraða, venjulega kók. Bara ef ég hefði vitað þetta. Þá hefði ég velt mér upp úr óheilsusamlegu alvörukólki.
Ég í sjoppuna, kaupi eina slefkalda og slafra henni í mig á staðnum. Kaupi glerið.
Úje...
![]() |
Sykurlausir gosdrykkir hafa sömu áhrif á heilsu fólks og sykraðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
EINU SINNI LAS ÉG LJÓÐ..
..eftir nútíma hippaskáld, sennilega á árinu 1967. Skáldið var íslenskt, en því miður hef ég með árunum gleymt bæði nafni skáldsins og ljóðinu, nær öllu.
Samt man ég þema ljóðsins og mér koma þessar línur sem ég man alltaf í hug, þegar ég sé myndir í blöðum og sjónvarpi af þotuliðinu. Fólkinu sem ráfar um á markaðstorgi hégómans og virðist fátt annað gera en að hafa áhyggjur af kjólum.
Ég sá þessa "frétt" hér á Mogganum áðan og ljóðið gleymda eftir skáldið góða kom sterkt inn við lesturinn.
Línurnar koma hér:
MONA LIZA, BIG-TIME MONA LIZA
THE FRONT SIDE ONLY
Úje, ég auglýsi eftir ljóðinu öllu.
![]() |
Beckham-hjónin vígð inn í Hollywood með formlegum hætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Breytt s.d. kl. 02:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
NÚ VÆRI MÉR SKEMMT..
..ef það væri sannleikskorn í bölvaðri stjörnuspánni minni (Steinunn Ólína, ekki orð).
"Steingeit:Ef þú myndir aðeins lækka í sjálfum þér, geturðu betur skilið það sem gerist í kringum þig. Og líka að einhver er alltaf að hugsa um þig."
Ég hef varla sagt orð, upphátt í allan dag. Ég hef reyndar sagt heilmikið á blogginu í dag en það er fremur lágvært mal sem engan getur stuðað. Ég þarf að reyna að skilja betur umhverfi mitt segir Sumarliði, ég myndi nú ekki vera að segja öðrum hvað þeir eiga að gera ef ég væri hann því eins og allir vita fær hann ekki endurráðningu næsta sumar hjá Mogganum.
Sumarliði er defenately fullur!
Hver getur verið að hugsa um mig ALLTAF?
Ég get ekki ímyndað mér það.
ÆGIFÖPP
Hneyksli | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 23. júlí 2007
FRAMHALDSAGAN ÓGURLEGA..
..heldur áfram. Á maður að þora að hafa álit á nýjustu þróun í "hávamálinu"? Hm..
Er ekki sniðugt að gera eins og SVFR stingur upp á og halda kúrsa fyrir alla útlendinga um lax- og silungsveiðar á landinu?
Svo má kynna fyrir þeim kvótakerfið.
Það má kenna þeim um sláturgerð (hugsið ykkur þeir gætu farið að fokka upp íslenskri sláturgerð)
Svo þegar búið er að kynna þeim fjallgöngur á íslenskum fjöllum þannig að sómi sé að, þá.....
má kenna þeim íslensku.
Ég er farin til fjalla.
![]() |
Framkvæmdastjóri Alþjóðahúss svarar bréfi formanns SVFR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 23. júlí 2007
ÞAÐ ER AÐ ÆRA ÓSTÖÐUGAN....
VÓFF..
..að vera að linka á svona fréttir, þrátt fyrir að þessi sé afskaplega gleðileg. Á ekki að halda kertavöku í tilefni dagsins? Segi svona.
Rosalega sem fjölskylda Lúkasar er orðin feimin eitthvað. Ekkert viðtal í fréttunum eða neitt.
Kannski búið að segja allt sem segja þarf?
Demedifænó, demedifæker!
vóff, vóff.. bobsí-bobbs
![]() |
Lúkas kominn heim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 23. júlí 2007
HVÍTIR KARLAR Á MIÐJUM ALDRI..
...með sterk fjárráð, að því er virðist, hafa nokkurskonar eignarhald á íslenskum veiðiám, í krafti peninga. A.m.k. þeim sem akkur er í. Þannig er það bara hversu ósáttur sem maður kann að vera með það. Þeir eru fúlir yfir átroðningi útlendinga í árnar og ég skil það vel. Veiðiþjófnaður er bannaður með lögum. Í löngu bréfi sem fylgir viðhangandi frétt, fer Bjarni Júlíusson, formaður SVFR mikinn. Honum er stórlega misboðið vegna málflutnings Einars Skúlasonar, framkvæmdastjóra Alþjóðahúss, vegna viðbragða SVFR við tilraunum til veiðiþjófnaðar í ánum.
Lagabrot eru ólíðandi og það ber að fara hina réttu leið þegar slíkt kemur upp.
Er málflutningur formanns og stjórnar SVFR til þess fallinn að leysa eitthvað? Ég held ekki. Málflutningurinn felur í sér árásir á ákveðin þjóðarbrot og það kallast rasismi. Alveg sama hvernig fólk vill snúa út úr þeirri staðreynd máls. Mér finnst það félagsmönnum ekki til framdráttar.
Ætli allur heimurinn viti að á Íslandi er veiði í laxveiðiám fyrir forréttindafólk, þ.e. fólk sem á nægja fjármuni? Ég er ekki svo viss. Skilti væri sniðug byrjun til að laga ástnadið, þótt SVFR finnist það út úr kortinu að setja svona sjálfsagðan hlut á skilti, að veiðar séu bannaðar. Bjarna Júlíussyni finnst það í verkahring Alþjóðahúss að fræða "skjólstæðinga" sína.
Að tala um tvær, þrjár eða fleiri þjóðir í einu landi.
Fruuuuuusss
![]() |
Stjórn SVFR furðar sig á ummælum framkvæmdastjóra Alþjóðahússins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 22. júlí 2007
SORGLEGT EN SATT..
..að það er allt fullt af fíflum úti í umferðinni, sem setja almenning í stórhættu, ógna bæði lífi og limum. Þeir eru ekki allir ungir. Þessi ökumaður, karl á fertugsaldri var tekinn á tæplega 200 km. hraða á Reykjanesbrautinni í dag.
Hann var sviptur á staðnum til bráðabirgða! Til bráðabirgða, halló? Er ekki mælirinn fullur þegar fólk keyrir svona hratt?
Ég hefði haldið það. Burt með skírteinið.
Súmí.
![]() |
Tekinn á tæplega 200 km hraða á Reykjanesbrautinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 22. júlí 2007
ÉG VAR ALVEG VISS
..um að fréttin væri um Búska forseta Bandaríkjanna, og þurfti að lesa hana tvisvar til að ná því að hún væri um Yves Leterme, sem þykir líklegur sem næsti forsætisráðherra Belga. Hann kunni ekki textann við þjóðsönginn og vissi ekki af hverju Belgar fögnuðu þennan dag.
Það er nú kannski óþarfi að vera með svona kröfur á fólk. Búski hefur t.d. sýnt að það þarf ekki einhvern svaka heila til að verða forseti í einu af valdamestu ríkjum veraldar. Það þarf bara að hafa páfagauksminni og geta lært allan andskotann utanbókar.
Yves getur það örgla líka.
Kröfur, kröfur, kröfur.
![]() |
Kunni ekki textann og þekkti ekki söguna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Sunnudagur, 22. júlí 2007
SPEGILL.. FRAMHALD
Nú, nú, eftir ævintýri morgunsins með speglinum, var ég að vonum ansi þreytt og fór og lagði mig. Ég sofnaði þungum svefni.
Mig dreymdi risastór skæri í kanínubúning og bleikum converse-skóm sem hlógu geðveikislega og eltu mig um allt.
Nema hvað?
Hneyksli | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 22. júlí 2007
SPEGILLINN TALAR
Mér hefur verið ráðlagt að brosa í spegilinn á morgnanna, jafnvel bjóða mér góðan daginn og svoleiðis, þið skiljið. Þetta geri ég yfirleitt á hverjum morgni, þ.e. brosi flóttalega til sjálfrar mín, svona frosnu brosi en er alveg í rusli vegna þess að ég er svo full af einhverjum kjánahrolli.
Í morgun vaknaði ég fyrir allar aldir. Ég fór beint í morgunverkin, þvoði mér í framan og burstaði tennur og dreif mig svo í brosstandið með hálfum huga, eftir að hafa tvítjékkað á svalalæsingunni, útidyrahurðinni og fjórlæst baðherberginu.
Mér brá þegar ég horfði í spegilinn. Það var ekki af undrun og aðdáun á sjálfri mér þótt ótrúlegt megi virðast. Spegilmyndin horfði á mig úrillum augun og sagði:
SP: Ekki flott á okkur hárið nú frekar en endranær. Eitthvað heyrt talað um hárgreiðslustofur?
Ég: HA?
SP: Þetta ástand er nú ekki til að brosa yfir, sérðu gráu hárin hérna fremst, t.d. hér (hönd á spegilmynd beinir frekjufingri að örfínum gráum geislum við topp). Hvernig eigum vér að brosa þegar ástandið er svona?
Ég: (Enn í áfalli) Haaa?
SP: Vér nennum ekki þessum brosleik fyrr en eftirfarandi ábendingar hafa verið lagaðar:
a) hár klippt
b) hár litað og strípað
c) augabrúnir plokkaðar
d) Lýtaaðgerð framin á augnumgjörð
Þangað til verður beitt dagsektum.
Æmstillsjeiking!
Hneyksli | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 2987930
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr