Færsluflokkur: Bloggar
Miðvikudagur, 26. september 2007
Morðingjar!
Ég tek Lúkasinn á þetta, ég sver það. Ég verð svo reið þegar ég les um yfirvegaðan og einbeittan morðvilja ákveðinna ríkja í USA. Yfirvöld í Texas myrtu mann í nótt með banvænni sprautu og þeir voru ekki á því að fresta aftökunni, þrátt fyrir ákvörðun Hæstaréttar Bandaríkjanna, að rannsaka hvort aftökur með banvænni sprautu brjóti gegn stjórnarskrá.
"Þegar bannvænni sprautu er beitt við dauðarefsingar eru þrjár tegundir lyfja gefnar. Eitt sem róar fangann, annað sem lamar hann og það þriðja stöðvar starfsemi hjartans. Hins vegar eru ekki til neinar formlegar reglur um hversu mikið magn af hverju lyfi er notað og oft eru það ekki heilbrigðissérfræðingar sem sjá um efnasamsetninguna. Rannsóknir á aftökum hafa sýnt að í einhverjum tilvikum er dauðdaginn hægur og afar kvalafullur, samkvæmt frétt AP fréttastofunnar."
Samkvæmt ofangreindu, geta "rétttrúaðir" böðlar ríkisins, föndrað með lyfjasamsetninguna og látið fólk deyja kvalafullum dauðdaga.
Mér er fyrirmunað að skilja, hvers vegna, upplýst fólk er fylgjandi dauðarefsingu. Það stangast á við alla góða siðfræði. Ef einhver gæti útskýrt fyrir mér, hvaðan leyfið til að taka líf annarar manneskju kemur, þá þigg ég gjarnan þær upplýsingar. Þ.e. ef þær koma ekki beint úr karlabókinni Biblíu.
Margreifi De Sade hvað?
![]() |
Aftaka í Texas |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (46)
Miðvikudagur, 26. september 2007
Hamur!
Ég er í ham, veðurham. Mikið skelfing líður mér vel í svona veðri. Ég hef komið mér fyrir við tölvuna, innvafin í eiturgrænt flísteppi úr IKEA sem Jenný Una Eriksdóttir, færð mér á dögunum. Ég sit hérna með tebolla, nikótínnefúða (er að byrja að trappa mig niður) og les blogg og annan fróðleik á netinu. Úti hamast veðrið og ég er barnalega hamingjusöm yfir því.
Samt vona ég að veðrið valdi ekki óþægindum fyrir fólk. Hm.. ekki eðlilegt hvað vel hefur tekist til með uppeldið á mér. En vinafólk okkar er á leiðinni til Tenerif og það er búið að fresta brottför fram á kvöld, vegna væntanlegs veðurs. Þorrí krakkar.
Var að velta fyrir mér megrunarkúrum, eftir að hafa lesið frétt í Mogga, um mann sem úðaði í sig bökuðum baunum í kílóavís og uppskar mikið þyngdartap. Þar sem ég hef marga fjöruna sopið í megrunardeildinni, þá er ég afskaplega glöð yfir því að hafa ekki heyrt af þessari aðferð þegar ég stundaði hamfaramegranir af miklum móð hérna í denn. Ég hefði stokkið á þetta, ég er dedd á því og bara tilhugsunin um bakaða BAUN veldur mér ógleði, hvað þá heldur viðkomandi kvikindi í stampavís. Ég hefði þó sett mörkin við sláturmegrun. Hefði heldur látist úr offitu en að láta þann bölvaða viðbjóð ofan í mig.
Mig rámar í hvítvínsmegrun, rámar í er rétta orðið, því ég fór í hana, og mér er sagt að hún hafi borið árangur í mínu tilfelli. Ég er ekki til frásagnar um það. Merkilegur andskoti hvað áfengi klæðir mig illa.
Jæja elskurnar, nú ríf ég mig upp af stólnum, hendi teppinu og geysist í hreingerningarhaminn, þvottahúshaminn og bökunarhaminn. Var einhver að segja að ég væri manisk? Hélt ekki?
Síjúgæs!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 26. september 2007
Hjáróma afsökunarbeiðni!
Mér var ekki skemmt yfir síðbúinni og hálfvolgri afsökunarbeiðni samgönguráðherra, fyrir nokkrum dögum og ég bloggaði um það. Kristján L. Möller réðst að starfsheiðri Einars Hermannssonar í sumar, þegar hann gerði hann ábyrgan fyrir Grímseyjarferjuklúðrinu.
Nú kemur fram að lögmaður Einars hafi hótað samgönguráðherra málsókn, vegna ummæla hans, rúmri viku áður en ráðherra baðst svo opinberlega afsökunar á ummælunum. Með semingi þó.
Í ljósi þessa er ég ekki hissa þó mér hafi fundist "afsökunarbeiðni" Kristjáns hjáróma.
Getur samgönguráðherra á sig blómum bætt?
Engin ágætis byrjun á ráðherradómi þarna.
Ogsvei!
![]() |
Afsökunarbeiðni í skugga málsóknar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Þriðjudagur, 25. september 2007
Algjört törnoff.
Ég er stundum með alveg glataðan húmor. Mér finnst til dæmis alveg rosalega fyndið að Harvard háskóli í samvinnu við fleiri æðri menntastofnanir, skuli hafa verið að rannsaka hvort dimmraddaðir menn eignist fleiri börn en þeir mjóróma. Ég tel mig hafa nokkuð öflugt hugmyndaflug á góðum degi, en þetta hefði mér aldrei dottið í hug að einhverjum fýsti að vita.
Hvað um það. Þeir dimmrödduðu eignast fleiri börn, en börn mjóróma manna eru alveg jafn heilsuhraust. Ástæðan fyrir barnaláni strigabassanna er talin vera sú að þeir eigi auðveldara með að ná sér í konu. Þessar upplýsingar hefðum við stelpurnar getað boðið upp á, án þess að það kostaði krónu. Skrækir náungar eru algjört törnoff. Ég sá einu sinni einn öflugt flottan náunga úti í London og þegar hann gekk að mér, kiknaði ég í hnjáliðunum, missti glasið og sígarettuna á gólfið (ýkt, mínusið eftir þörfum) og hélt að þarna væri draumaprinsinn kominn ljóslifandi. Maðurinn horfði djúpt í augu mér, sagði eitthvað gáfulegt, sem ég er ekki til frásagnar um, því ég greip um eyrun vegna hátíðnihljóðsins sem kom úr barka hans. Hann var geldingur, ég sverða.
Það rann upp fyrir mér ljós, þegar ég las þessa frétt og nú skil ég hvers vegna SUMIR (www.jonaa.blog.is) eru glaðir með Bjögga Halldórs. Röddin í honum er á stöðugri niðurleið, í þulardjobbinu á Stöð 2. Samkvæmt umræddri rannsókn, þarf Björgin örugglega á lífvörðum að halda ef svo heldur fram sem horfir. Íslensk kvenþjóð á eftir að tapa sönsum ef karlinn fer niður um áttund til viðbótar.
Á sjó!
![]() |
Dimmraddaðir menn eignast fleiri börn en þeir mjóróma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Þriðjudagur, 25. september 2007
And the Nobel goes to..
..æi what´s his name?
Ég er svo standandi hlessa á því að Alþingismenn skrifi undir tilnefningu til friðarverðlauna Nóbels, án þess að þekkja haus né sporð á þeim sem tilnefndur er.
Maður gæti farið að safna tilnefningum fyrir allskonar dúdda, bara sjálfum sér til skemmtunar.
Við Gurrí (www.gurrihar.blog.is) erum voða hrifnar af Marteini frænda heitnum, sem er nýbúinn að kaupa sér íbúð í Breiðholti, en komst samt ekki í fréttirnar en hann gerði það um svipað leyti og Litli-Bónus keypti New-York íbúðirnar og ÞAÐ komst í fréttirnar. Marteinn frændi er vel að verðlaununum kominn en hann hefur verið að efla samskipti íbúa í neðra-Breiðholti undanfarnar vikur.
Já, það eru margir kallaðar en fáir útvaldir þegar að friðarverðlaunum Nóbels kemur.
Það væri svolítið sniðugt að vita deili á fólki sem maður tilnefnir.
Bætmí!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 25. september 2007
Danskir dagar hjá mér..
..í mínu "eigins" eldhúsi. Ég lét plata mig út í hakkeböff með lauk, spældu eggi, sósu og kartöflum. Mikil nostalgia skapaðist.
Afleiðingar:
3 pönnur á eldavél, 2 pottar, fullur vaskur, full ruslatunna og fullir magar.
Já, já, á morgun verða brottflognir fuglar, teiknaðar kartöflur og naglasósa.
Ég er nú hrædd um það.
Verði mér að góðu.
Jamm.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Þriðjudagur, 25. september 2007
Skilorðsbundinn
Enn einn skilorðsbundinn dómur fyrir ofbeldi, hefur fallið og nú gegn fjórum lögreglumönnum. Tveimur á Grenivík og tveimur í Stykkishólmi.
Þessi rauf skilorð eins og annar ofbeldismaðurinn í dómnum sem leit dagsins ljós í gær.
Ég einsetti mér að blogga um skilorðsbundna ofbeldisdóma og mér sýnist á öllu að ég fái nóg að gera.
Ójá.
![]() |
Sex mánaða skilorðsbundinn dómur fyrir ofbeldi gagnvart lögreglu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 25. september 2007
Flott og nauðsynlegt framtak.
"Veitum þeim vernd" er yfirskrift norræns átaks sem ætlað er að vekja athygli á stöðu hælisleitenda á Norðurlöndum. Þetta er hvatning til stjórnvalda á Norðurlöndunum til að taka á móti fólki sem býr við ofbeldi og stríð.
Ég persónulega, tel að við Íslendingar getum gert öllu betur en við gerum nú. Fram að þessu höfum við ekki verið hálfdrættingar í þessum málum, miðað við nágrannaþjóðirnar.
Í fréttatilkynningunni stendur:
Fólk sem flýr innanlandsátök, vargöld og gróf mannréttindabrot þarfnast aðstoðar alþjóðasamfélagsins. Í dag er staðan sú að þetta fólk fær ekki þá vernd sem það sækist eftir. Stundum er vístað til þess að ofbeldið sé ekki nægjanlega grimmilegt til að teljast til ofsókna eða þá að fólki tekst ekki að sýna fram á að ofbeldið hafi beinst að þeim persónulega. Það er hlutverk flóttamannastofnunarinnar að aðstoða flóttafólk og við vonum heilshugar að það fólk sem flýr ofsóknir og vargöld fái þá vernd sem það þarfnast, og ber, á Norðurlöndum segir Erica Feller, Aðstoðarflóttamannafulltrúi Sameinuðu þjóðanna.
Þetta tek ég heilshugar undir. Það er kominn tími til að við hysjum upp um okkur, varðandi móttöku á fólki, sem hefur þurft að flýja skelfilegar aðstæður í heimalöndunum.
Ég vek athygli á "linknum" hérna fyrir neðan og hvet ykkur gott fólk til að fara inn á hann og skrifa undir. Munum samtakamáttinn.
Og komasho!
![]() |
Athygli vakin á stöðu hælisleitenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 25. september 2007
Það er dáðst að okkur víða um heim!
Ég dáist að drykkjuþoli Íslendinga.
Ég dáðist lengi að mínu eigin drykkjuþoli eða alveg þangað til að ég fór í meðferð, þá hafði stemmarinn fyrir því alveg horfið og síðan hefur mér ekki stokkið bros í málaflokknum.
Það eru ekki bara við sjálf sem dáumst að okkur í drykkjudeildinni - ónei- Pablo Francisco gerir það líka.
Who the f..k is Pablo Francisco?
Hann ætlar allavega á Goldfinger.
Landkynning er alltaf góð sagði einhver, en..
það var áður en Flugleiðir auglýstu "Dirty weekend ferðirnar".
Hádújúlækæsland?
Ójá.
![]() |
Dáist að drykkjuþoli Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 25. september 2007
Að sleppa vel
Héraðsdómur Austurlands, dæmdi tvo menn í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Annar fékk 45 daga, hinn 3 mánuði.
Þeir slógu hann hnefahögg í höfuðið báðir, hentu í gólfið og veittust að honum þar og veittu honum ýmsa áverka.
Þeir munu ganga lausir. Sá sem fékk "þyngri" refsinguna, braut reyndar skilorð en kva! Það þarf meira til en þetta lítilræði til að dæma menn til fangelsisvistar.
Hver er forgangurinn, spyr ég enn einu sinni.
Súmí.
![]() |
Skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.9.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr