Leita í fréttum mbl.is

Algjört törnoff.

1

Ég er stundum með alveg glataðan húmor.  Mér finnst til dæmis alveg rosalega fyndið að Harvard háskóli í samvinnu við fleiri æðri menntastofnanir, skuli hafa verið að rannsaka hvort dimmraddaðir menn eignist fleiri börn en þeir mjóróma.  Ég tel mig hafa nokkuð öflugt hugmyndaflug á góðum degi, en þetta hefði mér aldrei dottið í hug að einhverjum fýsti að vita.

Hvað um það.  Þeir dimmrödduðu eignast fleiri börn, en börn mjóróma manna eru alveg jafn heilsuhraust.  Ástæðan fyrir barnaláni strigabassanna er talin vera sú að þeir eigi auðveldara með að ná sér í konu.  Þessar upplýsingar hefðum við stelpurnar getað boðið upp á, án þess að það kostaði krónu.  Skrækir náungar eru algjört törnoff.  Ég sá einu sinni einn öflugt flottan náunga úti í London og þegar hann gekk að mér, kiknaði ég í hnjáliðunum, missti glasið og sígarettuna á gólfið (ýkt, mínusið eftir þörfum) og hélt að þarna væri draumaprinsinn kominn ljóslifandi.  Maðurinn horfði djúpt í augu mér, sagði eitthvað gáfulegt, sem ég er ekki til frásagnar um, því ég greip um eyrun vegna hátíðnihljóðsins sem kom úr barka hans.  Hann var geldingur, ég sverða.

Það rann upp fyrir mér ljós, þegar ég las þessa frétt og nú skil ég hvers vegna SUMIR (www.jonaa.blog.is) eru glaðir með Bjögga Halldórs.  Röddin í honum er á stöðugri niðurleið, í þulardjobbinu á Stöð 2.  Samkvæmt umræddri rannsókn, þarf Björgin örugglega á lífvörðum að halda ef svo heldur fram sem horfir.  Íslensk kvenþjóð á eftir að tapa sönsum ef karlinn fer niður um áttund til viðbótar.

Á sjó!


mbl.is Dimmraddaðir menn eignast fleiri börn en þeir mjóróma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Dimmraddaðir karlmenn eru alveg æði........!

Sunna Dóra Möller, 25.9.2007 kl. 22:52

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

átti þetta að vera undir rós ... þetta sumir? Datt eiginlega um sjálft sig um leið og þú linkaðir inn á bloggið mitt asninn þinn addna

Jóna Á. Gísladóttir, 25.9.2007 kl. 22:53

3 Smámynd: Þröstur Unnar

- a ekkert í þessum pistli, trúi því öllu. Á sjö börn með sjö konum......muhhahahaha.

Þröstur Unnar, 25.9.2007 kl. 22:54

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Við Einar lágum í hlátri yfir því hvað þetta var brilljant með sumir og linkinn beint fyrir aftan.  Sýndi honum sérstaklega áður en ég setti færslu í loftið.  Ég er KRÚTT

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.9.2007 kl. 22:56

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jón Arnar: Sumir eru nú í því að gera sig dimmraðari en þeir eru júnó

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.9.2007 kl. 22:57

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Bjöggi er eins og 45 snúninga plata sett á 33 ... Þeir sem ekki skilja þetta geta verið úti. (Úps)

Það kom líka út úr öðrum rannsóknum að sköllóttir menn hafa miklu meira testó þannig að nú verðum við bara að finna sköllótta, dimmraddaða menn til að fjölga okkur með ... hvað næst?  

Guðríður Haraldsdóttir, 25.9.2007 kl. 23:02

7 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Þú ert að djóka, er verið að rannsaka ÞETTA? Ég virði frumkvæði og mátt vísindanna, en ...

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 25.9.2007 kl. 23:03

8 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

stelpur mínar, þið megið sko eiga Bó í friði fyrir mér... :o

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 25.9.2007 kl. 23:04

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

en.. ég botna þetta fyrir þig Anna mín.. en fyrr má nú aldeilis fyrr vera.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.9.2007 kl. 23:05

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehehe gott að þið Einar skemmtið ykkur á minn kostnað. Þá finnst mér ég svo mikilvæg. Kannski misskilningur en stundum er gott að vaða í villu og svima um eigið ágæti muuuhaaaaaaaa

Jóna Á. Gísladóttir, 25.9.2007 kl. 23:16

11 Smámynd: Þröstur Unnar

Hver eru Villa og Svimi?

Þröstur Unnar, 25.9.2007 kl. 23:20

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert líka krútt Jónsí mín.  Þrölli, það er mitt að vita en þitt að komast að.  Muahhahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.9.2007 kl. 23:32

13 identicon

já... David Beckham hangir uppi í ansi mörgum herbergjum... en hann missir allan sjarma greyið þegar hann opnar munninn... :)

Halldóra F Sigurgeirsdóttir (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 06:54

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Auðvitað Halldóra, hvernig gat ég gleymt David Beckham, Hr. Skræk!!  Hann er jú víti til varnaðar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.9.2007 kl. 06:58

15 Smámynd: Ester Júlía

Ég elska testosteron..grrrrrrrr..... og dimmraddaða karlmenn.  Algjört turn-on ef þetta tvennt fer saman.  Mjóróma karlmenn eru hinsvegar ekki að virka ..ja nema þeir séu flottir og haldi kjafti.

Ester Júlía, 26.9.2007 kl. 08:31

16 Smámynd: Aðalheiður Haraldsdóttir

Ég las líka einu sinni um bandaríska rannsókn sem sýndi að bandarískir lögreglu- og slökkviliðsmenn eignuðust mun fleiri stelpur en stráka.  Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að ,,macho" menn (örugglega dimmraddaðir!) eignast frekar stelpur en hinir vöðvaminni og mjóraddaðri til að viðhalda jafnvægi náttúrunnar!  Ég og minn maður eigum sko þrjár stelpur....

En eins og þú segir í upphafi þá er auðvitað fáránlegt að virðulegar menntastofnanir skuli eyða tíma og fjármunum í svona rannsóknir.  væri ekki nær að reyna að finna lækningu við krabbameini og alzheimer í staðinn???

Aðalheiður Haraldsdóttir, 26.9.2007 kl. 08:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband