Leita í fréttum mbl.is

Að sleppa vel

Héraðsdómur Austurlands, dæmdi tvo menn í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás.  Annar fékk 45 daga, hinn 3 mánuði.

Þeir slógu hann hnefahögg í höfuðið báðir, hentu í gólfið og veittust að honum þar og veittu honum ýmsa áverka.

Þeir munu ganga lausir.  Sá sem fékk "þyngri" refsinguna, braut reyndar skilorð en kva!  Það þarf meira til en þetta lítilræði til að dæma menn til fangelsisvistar.

Hver er forgangurinn, spyr ég enn einu sinni.

Súmí.


mbl.is Skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

Skilorð upp á 45 daga eða 3 mánuði telur ekki í ofbeldismálum.  Breytir nákvæmlega engu.  Þetta er bara klapp á kollinn og skilaboð um að haga sér vel næstu 45 daga eða 3 mánuði.  Sjálfur hef ég fengið svona skilorð.   Þess vegna í lengri tíma.  Svoleiðis dæmi eru bara brosleg (eða dapurleg eftir því hvernig á það er litið).   

Jens Guð, 25.9.2007 kl. 00:26

2 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Mér finnst alltaf jafn skrítið að sjá að ofbeldisbrot fái svona væga dóma, en auðgunarbrot mikið þyngri. Það er skömm að þessu og eins og að þetta sé bara í lagi að "berja mann og annan" þegar menn skemmta sér. Bara hluti af menningunni, yppa öxlum og dæma eins vægt "í nafni skilnings" fyrir gerendunum. Þolendur mega eiga við afleiðingarnar ævilangt þessvegna, öllum er sama sem valdið hafa. Mér finnst skrýtið að líkamlegar meiðingar, líkamleg sár og andleg vega ekki neitt á vogarskálar réttvísinnar, skipta því ekki miklu máli.


Bjarndís Helena Mitchell, 25.9.2007 kl. 01:29

3 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 08:22

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er alveg furðulegur andskoti.  Ætli dómarar séu úr einhverju öðru efni en við hin ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.9.2007 kl. 08:30

5 identicon

Voðalegt væl er þetta...ef allir væru settir inn fyrir eitthvað svona smámál þá væri örugglega búið að loka ykkur öll inni oftar en einu sinni...

Valur Pálsson (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband