Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Lífstíll

ÁTTA ÁRA EIN Í SUNDI, 12 ÁRA AÐ HEIMAN?

1

Kva.. stundum á ég ekki orð, það er þó sjaldan.  Átta ára gömul geta börn sem farið ein í sund.  Er í lagi með okkur?  Sendir einhver börn á þessum aldri börn án fylgdar fullorðinna á sundstaðina?? Það hlýtur að vera eitthvað að mér.  Ég er bara gapandi..

Súmí!


mbl.is Börn undir 8 ára verða að vera í fylgd með ábyrgðarmanni í sundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JÓHANNA ÞÓ!!

 

Eins og ég dáist að þér og virði þá ferðu með mig niður fyrir frostmark núna.  Ætlarðu að segja mér að engin jafnhæf kona sé til innan Samfylkingar til að verða aðstoðarmaður þinn?  Nú detta mér allar...

Þá er búið að dusta rykið af Hrannari..

Segi ekki meir


mbl.is Hrannar Björn aðstoðarmaður Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENN EINN PLEBBAFRASI...

 

..fyrir ykkur innipúkana á meðan við Jenny höldum á vit ævintýranna í sandkassanum.

Hvað finnst ykkur um "Tilgangurinn helgar meðalið"?  Ég man ekki eftir að þessi sé nokkurn tímann notaður nema til að réttlæta asnalegar og vondar gjörðir.  Einhver?

Rosalega er mikið af hallærislegum frösum í gangi! OMG


NÆTURSAMTAL

1

Í nótt kl. 04,00 átti sér stað eftirfarandi samtal milli ömmunnar og Jenny:

Amma, nóttin búin, Jenny farrrra frrrram.

Amman: Nei Jenny mín, nóttin er ennþá út ástin mín, við skulum lúlla meira.

Jenny: Nei amma, nóttin allleg búin, sólin er úti, Jenny leika aðeins, pínu-pínu lítið.

(Jenny bætir smá í taktiíkina, það er mikið í húfi)  Jenny á J, Einarrrr á ERRRR, amma á A, mamma á M og pabbi á P.  Pabbi lant burrrt að spila trrrommuna.

Amma: Jenny mín nú skulum við sofa þangað til nóttin er farin

Jenny: Nóttin farin heim til mömmusín og pabbasín, Jenny svöng (þetta síðasta sagt með áhersluþunga)

Amma: Nú fær Jenny að drekka og svo lúllum við meira (aðframkomin úr syfju, sko amman)

Jenny: Nóttin farin heim til mömmusín og pabbasín.  Líka skýin og djúsin og náttfötin.  Allir farra, sólin komin út að leika.

Hm.. við héldum áfram að debattera um nótt og dag og hverjum hefði verið vísað heim í foreldrahús og hverjir væru komnir út að leika.  Þessu hélt fram þar til lítil stúlka datt út af og svaf værrrrum svefni þar til kl. 07,00 í morgun. 

Góðan daginn elskurnar, er þetta ekki dásamlegur dagur?? Það þykir mér.

Get ekki still mig um að skella hér inn mynd af litlu tónlistarkonunni frá í vetur.  Þessi heitir einfaldlega "stairway to heaven" Úje nema hvað.

1


MINN MAÐUR HM VS. ÞJÓÐKIRKJAN

 

Flott mál að Hjörtur Magni teljist ekki hafa brotið siðareglur presta með ummælum sínum í sjónvarpsþættinum Kompási og víðar.

"Prestarnir sem kærðu töldu m.a. að Hjörtur Magni hefði brotið siðareglur, sem varða skyldur við starfssystkin og vandvirkni í störfum. Meðal þess, sem prestarnir vísuðu til í kæru sinni, voru ummæli Hjartar Magna í Kompási, en þar sagði hann, að hver sú trúarstofnun, sem teldi sig hafa höndlað sannleikann yrði um leið stórhættuleg ef ekki bara djöfulleg. Ennfremur sagði hann að ef trúarstofnunin breyttist ekki, heldur færi að láta fólk dýrka sig í stað Guðs, þá væri hún jafnframt að brjóta fyrsta boðorðið sem segir: þú skalt ekki aðra Guði hafa".

Ég sem sagði mig úr þjóðkirkjunni eftir að Prestastefna neitaði að taka samkynhneigða meðlimi sína góða og gilda til giftinga eins og annað fólk, gleðst yfir því að þessi tímaskekkja sem þjóðkirkjan er, skuli ekki geta sent fólk í skammarkrókinn sem leyfir sér að gagnrýna hana.

Ég er annars ekki kirkjumanneskja og mín trú er meira fyrir víðáttur en kumbalda og ég stend föst á því að það sé ekki til ein leið, einn sannleikur og einn vegur, þrátt fyrir að sumir telji sig með pappíra frá almættinu upp á staðlaða aðferðarfræði  um ferðina að hliðum himnaríkis. Ég held að Guð sé ekki að fíla skort á umburðarlyndi margra þjóðkirkjunnar þjóna.

sveiattann.


mbl.is Hjörtur Magni telst ekki hafa brotið siðareglur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÉG HEF GERT SAMNING...

1

..við hana Jenny Unu Errriksdóttur og við urðum sammála um að senda "Emma meiðir sig" í tímabundna útlegð, þar sem amman var að flippa á viðkomandi bók, og í staðinn sammæltumst við um að taka "Emma eignast litlabróður" inn í staðinn þar sem það er aktuellt málefni í fjölskyldunni og við munum halda henni á leslistanum amk fram á haust.

Þetta bað hún Jenny mig að segja ykkur gott fólk áður en hún fór að sofa.

Lofjúgæs!


HALLÓ!

 

.. er ekki í lagi heima hjá þessum náunga?  Með 11 ára dreng undir stýri og forráðamaður (foreldri væntanlega) viðkomandi.  Sumir ættu ekki bara að missa bílprófið.  Þarf annars nokkuð forræðispróf á börn?  Neh.. svo létt verk og löðurmannlegt.

ARG


mbl.is 11 ára drengur undir stýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MESTA RÖKLEYSA "EVER"

 

..er frasinn: "Það er undantekningin sem sannar regluna".  Hafið þið pælt í þessum?  Rosalegur stórisannleikur eitthvað.  Hvernig getur frávik sannað reglu svona almennt og yfirleitt?  Djísús.


ÉG ER EKKI FRÁ ÞVÍ...

1

...að þessi herferð komi til með að gera sig.  Ég hef alltaf haft þá kenningu að karlar sem þurfa að keyra eins og asnar, stofna lífi og "limum" sjálfra sín og annara í hættu, séu haldnir einverjum peniskomplexum.  Það mun svo koma í ljós hvort það er rétt hjá mér.

Flott framtak.


mbl.is Forvarnarauglýsing fyrir neðan belti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞESSI KEMUR ÚT Á MÉR TÁRUNUM

 

Svona fólk á aðdáun mína alla.  Þessi maður  eflir trú mína á mannkyninu um þó nokkra þyngdarflokka.  Við mættum taka svona verklag til fyrirmyndar.

Deginum er reddað.


mbl.is Lét öll laun sín renna til góðgerðarmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.9.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2988590

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband