Leita í fréttum mbl.is

HALLÓ!

 

.. er ekki í lagi heima hjá þessum náunga?  Með 11 ára dreng undir stýri og forráðamaður (foreldri væntanlega) viðkomandi.  Sumir ættu ekki bara að missa bílprófið.  Þarf annars nokkuð forræðispróf á börn?  Neh.. svo létt verk og löðurmannlegt.

ARG


mbl.is 11 ára drengur undir stýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Já, ég er sammála þér! Ég hef ekkert umburðalyndi fyrir fólki sem að gerir svona! Þetta setur líf barnsins í hættu! Barn hefur ekki vald á því að stjórna bifreið, jafnvel þó að það sé undir "handleiðslu"........!

Sunna Dóra Möller, 26.6.2007 kl. 21:37

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Úbbs, ég fékk að keyra bíl með pabba þegar ég var lítil, reyndar sat ég í fanginu á honum og hann stýrði pedulunum ég fékk bara að halda í stýrið og svo fór þessi akstur alltaf fram á gamla veginum sunnan við Húsavík, þar sem engin umferð var, en að sjálfsögðu er þetta slæm iðja sem maður þó veit um að hefur viðgengist árum saman til sveita og bæja, annaðhvort á túnum eða gömlum aflögðum vegum. Er ekki að mæla þessu bót, bara segja frá.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.6.2007 kl. 21:48

3 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Sorglegt þegar foreldrar telja sig þess umkomna að beygja og sveigja þær reglur sem gilda í samfélaginu. Það er ástæða fyrir því að bílprófsaldurinn er 17 ár en ekki 11 ár.

Björg K. Sigurðardóttir, 26.6.2007 kl. 21:50

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég veit að þetta tíðkaðist til sveita hér áður fyrr Ásdís, í öllu öruggara umhverfi en nú er og fólk þá alls ómeðvitað um hætturnar sem urðu svo seinna tíma vandamál.  Þett er hins vegar ekkert annað en tómt glapræði og óafsakanlegt. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 22:03

5 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég ætla ekki að réttlæta þetta, en það er margt verra en þetta þeir voru þó úti á sandi og ekkert í fréttinni sem benti til að fólk hafi verið þarna svo hættan var svo sem ekki mikil, mér finnst verra að sjá ja svona lagað í umferðinni og eða með lítil börn eða gæludýr í fanginu við akstur, innanum annað fólk ss. í umferðinni.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 26.6.2007 kl. 22:05

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Eitt slæmt réttlætir ekki annað Högni.  Það er óábyrgt að láta börn undir stýri, það er óábyrgt að láta börn sitja óbundin í bíl, það er óábyrgt að keyra fullur með börnin í bílnum, óábyrgt að keyra of hratt þar sem börn eru.  Allt þetta er í raun óábyrgt án barna líka en hér eru þau til umræðu.  Ég treysti mér ekki til að skella stigsgjöfum á það hvað af þessu sé mögulega  mest óábyrgt.  Sama hugsunarleysið til staðar í öllum tilfellum og ekki minnsti munur á kúk eða skít.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 22:13

7 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Að leggja það að jöfnu að aka full(ur) með börnin í bílnum og að lofa ellefu ára gutta að prófa bíl niðrá söndum er svo vitlaust að það á bara ekki heima í sömu málsgreininni. Það er hvort tveggja lögbrot að myrða mann og að aka á 31 þar sem 30 er hámarkshraði en hver leggur það tvennt að jöfnu?

Þorsteinn Gunnarsson, 26.6.2007 kl. 22:58

8 Smámynd: Karl Ólafsson

Nú þekkir maður náttúrulega ekki allar aðstæður í þessu máli, en segjum sem svo að þessi akstur hafi átt sér stað á einkajörð, er þá eitthvað ólöglegt við þetta? Það var alla vega svo í gamla daga (áttunda áratugnum) að þetta viðgekkst átölulaust við slíkar aðstæður.

Nú er líka algengt að menn taki börn sín með sér til utanvega aksturs á agnarsmáum torfæruhjólum og veit ég ekki betur en að það teljist löglegt (ef gætt er að aðstæðum hvað varðar landskemmdir og þess háttar að sjálfsögðu).

Tek undir með þeim mörgu sem hér hafa skrifað athugasemdir að einmitt svona byrjaði maður sinn ökuferil fyrir margt löngu. Frændur mínir í sveitinni sáu mér fyrir svona þjálfun. Sjálfur hef ég séð mínum drengjum fyrir svona þjálfun líka, þegar aðstæður hafa boðið upp á það. Svona var bara gert í sveitinni í þá daga og ég sé ekki af hverju það ætti ekki að vera svo í dag líka. Við fáum bara betri ökumann í umferðina þegar þar að kemur.

Við þurfum ekki alltaf að hlaupa til og hneykslast á samborgurum okkar þó lögregla sjái stundum ástæðu til að grípa inn í eitthvað sem gert er í góðri trú. Mig langar hins vegar til að frétta meira af afdrifum þessa máls, þ.e. hvort maðurinn á virkilega yfir höfði sér einhverja ákæru.

Karl Ólafsson, 26.6.2007 kl. 23:47

9 Smámynd: Ragnheiður

Þegar ég eignaðist krakkana þá þurfti ég ekki námskeið. Þegar ég eignaðist hundana þá þurfti ég námskeið.

Ragnheiður , 26.6.2007 kl. 23:51

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hneykstast alltaf þegar fólk telur sig geta ákvarðað hvað er börnum fyrir bestu út frá hentistefnusjónarmiðum sínum.  Til hvers eru lög til verndar börnum?  Eigum við ekki bara að setja reglur hvert og eitt prívat og persónulega "as we go along".  Það er rosa rómó að hafa lært á bíl úti í sveit og ladídadída en í dag, núna, now, þá ert þetta bannað og það með réttu.  Er það flókið?

Já hundanámskeið Hrosshildur Djóns, það er öðruvísi með þá.  Börn eru tertubiti.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.6.2007 kl. 00:03

11 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Í gamla daga voru líka bílbelti fyrir aumingja og þau voru nær aldrei staðsett í aftursætum. Finnst okkur slíkt ekki fjarstæða í dag?

Hemmm... man eftir að pabbi lét mig einhvern tímann stýra traktor á svipuðum slóðum (þó innan landareignar og hann sat undir mér). Ég keyrði útaf . Hef lítið keyrt síðan og glætan að ég leyfði mínum börnum slíkt glapræði fyrr en nauðsynlegt er!!!

Laufey Ólafsdóttir, 27.6.2007 kl. 00:29

12 identicon

Akkúrat. Ég var 17 ára að verða 18 þegar ég átti mitt fyrsta barn. Ekki fylgdu honum neinar leiðbeiningar en þegar ég fékk mér fyrsta hundinn  var ég "skikkuð" á námskeið með hann. Eitthvað skakkt þarna.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband