Leita í fréttum mbl.is

ÁTTA ÁRA EIN Í SUNDI, 12 ÁRA AÐ HEIMAN?

1

Kva.. stundum á ég ekki orð, það er þó sjaldan.  Átta ára gömul geta börn sem farið ein í sund.  Er í lagi með okkur?  Sendir einhver börn á þessum aldri börn án fylgdar fullorðinna á sundstaðina?? Það hlýtur að vera eitthvað að mér.  Ég er bara gapandi..

Súmí!


mbl.is Börn undir 8 ára verða að vera í fylgd með ábyrgðarmanni í sundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ekki hún ég.  Við höfum alltaf farið með börnunum í sund.  Núna þegar stubburinn er orðin tíu ára og flugsyndur leyfum við honum að fara með vinum sínum í sund.  Hann er þrælvanur, því við höfum farið oft með hann í sund, ásamt öðrum barnabörnum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.6.2007 kl. 12:00

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Gelgjan byrjaði að fara ein í sund (þ.e. með vinkonum) þegar hún varð 10 ára. Samt er ég aldrei alveg róleg yfir því. Brýni fyrir stelpunum að passa upp á hver aðra.

Jóna Á. Gísladóttir, 27.6.2007 kl. 12:04

3 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Foreldrar hljóta nú að vega þetta og meta og senda vonandi ekki börnin sín ein í sund telji þeir að grísirnir séu ekki færir um það...

Ég var til að mynda farin að keppa í sundi 8 ára gömul... en eldri sonur minn fór ekki einn fyrr en um 10 ára aldurinn... þ.e. þegar ég treysti honum til þess

Aðalheiður Ámundadóttir, 27.6.2007 kl. 12:14

4 identicon

Treystum við foreldrar sundlaugarvörðunum svona fullkomnlega fyrir 8 ára gömlum börnum okkar??? Sonur minn er 8 ára og ég hef ekki enn helypt honum einum í sund, en ég veit það kemur að því að hann heimti að fara einn. Þá á ég líka eftir að vera á tánnum allan tíman.

Kiðlingur (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 12:17

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég treysti sjáflfum mér og mínum best fyrir afkomendunum.  Auðvitað getur þetta verið matsatriði og tímarnir voru öðruvísi þegar ég var krakki.  Ég hins vegar tek ekki sénsa og er fegin því að dætur mínar hafa tekið mig til fyrirmyndar í þeim efnum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.6.2007 kl. 12:20

6 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Fólk þyrfti að taka próf í foreldrafræðum áður en það fær leyfi til að eignast börn. Og hana nú.

Brynja Hjaltadóttir, 27.6.2007 kl. 15:59

7 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Onei, stelpurnar mínar fara sko EKKI einar í sund 8 ára ef ég fæ að ráða! Og ég fæ auðvitað að ráða  

Ég hef líka ákveðið að þær verði hvergi nærri útihátíð og bara helst ekki á landinu um verslunarmannahelgi fyrr en þær verða svona 25-30 ára. Ofverndun? Kannski..... það verður bara að hafa það!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 27.6.2007 kl. 16:04

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jabb og svo verða þær í skokkum og rúllukragabolum (eða þannig) fram yfir fermingu.  Hafið þið séð smátelpufötin í Hagkaup sem eru hm.. vægast sagt ekki í anda saklausra smátelpna?  Jenny Una Errriksdóttirrrr verður almennilega klædd fram yfir mentnaskóla og amman ræður töluverðu og foreldrarnir samþykkir.  OMG erfitt líf.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.6.2007 kl. 16:44

9 Smámynd: mongoqueen

Ekki hleypi ég mínum einum í sund 8 ára!!!!

Ég er nú stressuð um hann í sundi þrátt fyrir að ég sé með honum í sundi og hann er orðinn vel syndur....og ég er ekki einu sinni róleg meðan hann er í skólasundi!!!

Jenný mikið er ég sammála þér með smátelpufötin í Hagkaup.....svona lítil gleðikonuföt eins og ég kalla þau

mongoqueen, 27.6.2007 kl. 20:22

10 identicon

Fötin í Hagkaup, já... Ég öskraði næstum því upphátt einu sinni þegar ég sá brjóstahaldarasett með púðum og spöngum og alles. Size: 6-7 years. Sick, sick, sick.
En hvað varðar "aldurstakmarkið" í laugarnar, þá þurfti ég nú að vera orðin 10 ára til að fara ein í Laugardalslaugina i denn. Hvers vegna í andsk.... er búið að lækka aldurinn, þegar hérumbil allar laugar eru komnar með rennibrautir og vesen sem er lítið mál að slasa sig í?
Ég skil ekki svona.

Maja Solla (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2985789

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband