Leita í fréttum mbl.is

ÉG HEF GERT SAMNING...

1

..við hana Jenny Unu Errriksdóttur og við urðum sammála um að senda "Emma meiðir sig" í tímabundna útlegð, þar sem amman var að flippa á viðkomandi bók, og í staðinn sammæltumst við um að taka "Emma eignast litlabróður" inn í staðinn þar sem það er aktuellt málefni í fjölskyldunni og við munum halda henni á leslistanum amk fram á haust.

Þetta bað hún Jenny mig að segja ykkur gott fólk áður en hún fór að sofa.

Lofjúgæs!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Yndisleg mynd

Þröstur Unnar, 26.6.2007 kl. 22:25

2 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

ég var einmitt kölluð 'Alla öfugsnúna' þegar ég var lítil, í höfuðið á henni Emmu

Aðalheiður Ámundadóttir, 26.6.2007 kl. 22:39

3 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Mínar eru líka í Emmi bókunum...... og finnst líka alltaf gaman að kíkja í "Eggið hennar mömmu!"

Og rella svo og biðja um fleiri börn........nó vei

Eva Þorsteinsdóttir, 26.6.2007 kl. 22:42

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Man vel eftir henni Emmu, hún var góð. Mikið er Jenni yndislegt barn.  Heppin amma þú ert,  þó dauðleg sé. Sorry, ætlaði ekki að særa þig sæta spæta.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.6.2007 kl. 22:54

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jenfo. Er þetta mynd af ömmuskottinu? Þvílík fegurð. Þetta líkist eiginlega meira teikningu, eða einu af þessum fjöldaframleiddu málverkjum sem maður átti upp á vegg sem krakki. Muniði? Franski strákurinn með langa snittubrauðið í bréfpoka... Muniði ekki?

Jóna Á. Gísladóttir, 26.6.2007 kl. 23:34

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég var að djóka Ásdís mín, híhí.  Jabb Jóna mín þetta er hennar hátign sjálf í lúlluheimum.  Man eftir þeim með snittubrauðið ójá.  Those were the days.  Eva hvern fjárann munar þig um eitt barn enn fyrir börnin þín?  Ömurlega óliðleg ertu. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 23:36

7 identicon

Emma öfugsnúna gagnaðist best í uppeldinu hjá mér.  Svo snerum við bara öllu við, ég sagði: Ninna má EKKI fara að sofa og þessi engill tók strax við sér og kallaði stuttu seinna: Mamma ég er komin upp í rúm

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 23:39

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mikið er þetta dásamlegt barn sem þú átt (eiga ömmur ekki barnabörnin sín?) og ekki er kötturinn síðri! Man eftir rosalega skemmtilegri bók sem erfðaprinsinn átti og ég las aftur og aftur fyrir hann. Hét Fíll ... eitthvað og kenndi drengnum húmor. ALlt var öfugsnúið í henni, ferlega fyndin bók sem nú er í bókasafni Ævintýralandsins á Hellu. Yngstu snúllurnar þar geta hlegið yfir henni.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.6.2007 kl. 23:50

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er eimitt að taka þessa sálfræði á Jennsluna núna bara ekki of mikið af því börn eru svo saklaus og yndisleg.  Ég segi Jenny má ekki fara í bað og samstundis rífur sú stutta sig úr og hendist inn á baðherbergi og kallar: Jú víst Jenny fara bað.

Oh ég fer í krúttkast.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 23:50

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Tékkaðu á hvað hún heitir Gurrí næst þegar þú ferð.  Vil svona húmorbók (ekki það að barnabörnin hafi ekki húmor).  Heitir örgla húmórfíllinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 23:51

11 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Dásamleg mynd. Svona svaf hún Rósa mín líka alltaf hjá mér, og stundum alveg ofaná mér.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 27.6.2007 kl. 00:30

12 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Dásamleg mynd og dásamlegt barn!!! Minnir mig á mynd sem ég á af Törunni. Ég skal skella henni inn við tækifæri

Ég átti flestallar Emmu og Tumabækurnar þegar ég var lítil og að sjálfsögðu dró mamma þær fram þegar Maya var lítil. Ég byrjaði svo að glugga í þær aftur fyrir stuttu vegna Töru og rak þá augun í að Maya hafði dundað sér við að lagfæra eina Tumabókina með smá lit. Nú er þetta semsagt eina eintakið af "Tumi tekur til" þar sem Tumi er blökkudrengur og tekur sig ansi vel út. Góð leið til að jafna út kynþáttakvótann og ég er stolt af barninu fyrir að hafa tekið málið í sínar hendur. Aktivisminn er arfgengur.

Laufey Ólafsdóttir, 27.6.2007 kl. 00:44

13 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég var komin með bullandi móral þegar ég hafði látið Emmu detta hundrað sinnum úr þessu blessaða tré! Þá var bókin lögð til hliðar. En mikið óskaplega höfðu systur mikinn áhuga á þessum meiðslum!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 27.6.2007 kl. 10:41

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ragnhildur segðu:  Jenny botnar hverja blaðsíðu með tam. "Emma hlær hátt og NJALLT" og "sveiflar fótunum til og FRRRRÁ"

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.6.2007 kl. 11:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2985885

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband