Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Hneyksli

FYRRVERANDI Í SÖMU BORG..

 

..og á sama tíma.  Tom Cruise og Nicole Kidman verða bæði í Berlín við kvikmyndatökur í september n.k. og það telst greinilega til tíðinda.

Einu sinni fannst mér Tom Cruise flottur, eins og t.d. í barmyndinni (man ekki hvað hún heitir) þar sem þeir dönsuðu um allt með flöskurnar innan við barborðið.  Eftir að hafa heyrt um hann og Vísindakirkjuna fór sjarminn að renna af manninum og nú er hann bara lítill plebbi, sem hoppar í sófum og starir með aðdáun upp á eiginkonuna hana Kötu Holmes.

Með Nicole gegnir öðru máli.  Konan er afspyrnu góð leikkona.  Það er varla sú bíómynd sem hún hefur haft hlutverk í sem ekki verður eftirminnileg, bara vegna þess að hún er þar.  Myndin um Channel hefði reyndar mátt missa sig, en allir eiga sína slæmu daga.  Ég vona svo sannarlega að Nicole sé ekki í Vísindakirkjunni.

Annars er ótrúlegt að fylgjast með hvað telst fréttnæmt í slúðurheimum í dag.  Að þessi fyrrverandi hjón skuli vera í sömu borg á sama tíma og að það skuli komast í blöðin segir mér bara eitt.

Fræga fólkið verður að fara að haga sér illa.  Það er gúrkutíð í slúðrinu þessa dagana.

Mímí.


mbl.is Tom Cruise og Nicole Kidman við tökur í Berlín í haust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BLYGÐUNARSEMISBROT-HA??

Það er stórskemmtilegt að vakna á svona fallegum föstudagsmorgni.  Teygja úr sér, fá sér sígó (frussssss) og drekka kaffið sitt.  Ég hló með sjálfri mér þegar ég las þessa frétt um strípalingana 3 í N1-fánunum, hlaupandi um allt upp í Mosó.

Ég er hins vegar að drepast úr forvitni.

Hvar skildu þeir fötin sín eftir?

Pæliði í eftirleiknum.  Alsberir í leigara og með timburmenn dauðans.

Ég,

glotti kvikindslega.

Bætmí


mbl.is Strípalingar handteknir í Mosfellsbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í BEINU FRAMHALDI SPYR ÉG..

 

..hafa ekki fullu geimfararnir, sem nefndir eru í færslunni hér fyrir neðan, komist í tölvubúnaðinn?

Mér kæmi það ekki á óvart.  Mennirnir dauðadrukknir á leiðinni út í geim.

Læfökks!


mbl.is Skemmdaverk unnin á tölvubúnaði NASA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKERÍ - SKERÍ

1

Það eru litlir menn, grænir á lit samt kínverskir, í sænskum þjóðbúningum út um allt í kringum mig.  Þeir fylgja mér hvert fótspor, halda að ég sjái þá ekki og þeir njósna stöðugt um mig.  Þeir taka upp símtölin mín, eru með kamerur hér í öllum hornum og það eru míkrafónar í gólfinu.  Þeir ætla að ná mér og færa mig til dómara.  Ég veit ekki alveg fyrir hvað en ég er viss um að ég verð dæmd fyrir landráð eða eitthvað.  Þeir eru inni í tölvunni, þeir fokka upp blogginu mínu og þeir setja inn athugasemdir í mínu nafni.  Ég er algjörlega ófær um að stoppa þessa menn.

Þegar ég sef þá hvísla þeir að mér allskonar ófögnuði til að gera mig hrædda þannig að ég hlýði þeim á endanum.

Þeir eru farnir að skrifa stjörnuspá Steingeitarinnar á Mogganum til að ná enn betur til mín.

Í dag segja þeir (uss ekki tala hátt, microphones you know):

"Steingeit: Þeir munu reyna að segja þér að þú hafir bara eitt tækifæri, en þau eru endalaus. Reyndu þitt besta, og lærðu af því fyrir næsta skipti."

Ég er svvvvvooooooooo hrædd.

Emægonnadæ?


AUGNHÁRASVINDL

1

Auglýsingin um maskarann frá L´Oreal, þar sem Penélope Cruz auglýsir maskarann sem lengir augnhárin til stjarnanna er sögð vera villandi, þar sem Cruz skartar gerviaugnhárum.

Hehe, Ég var löngu búin að sjá það.  Mér fannst það ekki tiltökumál þar sem allur snyrtivörubransinn er feik frá upphafi til enda og gerður út á hégómagirnd okkar kvenna, og við borgum og borgum.  Þess vegna brosti ég með sjálfri mér þegar Cruz dinglaði  fölsku bráhárunum.

Ég er sjálf með augnahár upp í heila og það þýðir ekki að plata atvinnumann í greinni.

Súmí.


mbl.is Gerviaugnhár Penélope Cruz óviðundandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

..OG ALLIR HATA FEMINISTA

 

Stöð 2 er að toppa sig þessa dagana.  Fyrr má nú vera gúrkan.  Þeir sem horfðu áðan,  hafa væntalega séð "fréttina", þ.e. viðtalið við Íslensk-Kanadiska klámmanninn sem lét hvað hæst þegar klámráðstefnan var blásin af á dögunum.  Einhvern veginn sló sá maður mig ekki sem mjög áreiðanlegur heimildarmaður, en Stöð 2 étur vitleysuna hráa upp úr honum í símaviðtali. Hann og nokkri aðrir ferðuðust hingað hvort sem var, af því þeir voru búnir að kaupa miðann til Íslands og fá fríð í vinnunni.

Enhvernveginn svona hljómað frásögn Hr. Hjörleifssonar (held ég muni nafnið rétt):

Allir þekktu okkur af nöfnunum þegar við vorum að skemmta okkur í bænum.  Við rákumst ÓVART inn í lokað partý hjá feministum og þær voru mjög ókurteisar, yfirheyrðu okkur og voru ekki mjög aðlaðandi. ALLIR sem við töluðum við á djamminu sögðust hata feminista. Borgarstjórinn er örugglega geðveikur að koma með yfirlýsingu eins og þessa, þegar hann lýsti andstöðu sinn við klámráðstefnuna, nema að hann hafi eitthvað vont á samviskunni!

Svo heilsteiptur karakter eitthvað.

Stöð 2 - getalæf!


HÉLT AÐ ÞAÐ HEFÐI KOMIST UPP UM MIG..

 

.. þegar ég sá þessa frétt.  Var með áhyggjur af því að mín síðustu fyllerí hefðu komist í blöðin.  Hefði verið hallærislegt að fá bakreikning í fjölmiðlum, þegar maður er edrú og í góðum málum í bráðum ár.

Fattaði strax og ég sá kókflöskureikninginn að þetta gat ekki hafa verið ég.

Sjúkkitt.

Sóklínandsóber!


mbl.is Keypti drykki á barnum fyrir 13 milljónir kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MEYJURNAR Í LÍFI MÍNU..

 

..eru nokkrar.  Þær eiga það sameiginlegt að vera yndislega smámunasamar.  Dúa vinkona mín, raðar súpum og sósum eftir stafrófsröð í eldhúskápinn.  Notar litaspjald þegar hún raðar í fataskápana (ásamt, málbandi, halla- og dýptarmæli, auðvitað) og þegar það er glas í vaskinum, lengur en það tekur að þvo það upp, er hún á barmi taugaáfalls.  Meyjur eru sagðar vera bestu bókhaldararnir.

Þrjár meyjur sem ég þekki, brjóta plastpokana sína saman, nákvæmlega svona:

43

Kannist þið við þetta krakkar?

Bítsmí.


AÐ VERA Í RUSLINU

 1

Ég veit ekki með ykkur en ég er stórbiluð oft á tíðum. 

Hafið þið farið með ruslið út á morgnanna um leið og þið farið að heiman?

Kannist þið þá við að hafa mætt með ruslið í vinnuna?

Eða setið með útroðinn poka af matarleifum á biðstofu læknis?

Orðið fyrir aðkasti í strætó vegna þess að það er farið að slá í dýralíkin og lyktin er ógurleg?

Ef ekki þá eruð þið ekkert í námunda við hina stórundarlegu mig.

Lofjúgæs!


TAFIR

1

Guð hvað það er gaman að vakna á svona fallegum degi, fá sér kaffi (eða þannig), lesa Moggann og sjá svona skemmtilegar fréttir. 

Tafir geta orðið í dag og frameftir kvöldi, á Bláfjallavegi og í Hvalfirði við Botnsá, en Saga film er að vinna við gerð bílaauglýsingar!

Vá, firring neysluþjóðfélagsins bara LIFNAR og stekkur á mann, blásaklausan í morgunsárið.

Næstu viku verður lokað í Hagkaup í Kringlunni, vegna gerðar á flókinni kexauglýsingu.

Mér er svo skemmt.

Úje

Veit að þetta eru ekki mjög fjölvarnir vegir kannski, þið sem sjáið ykkur knúinn til að bresta í vörn.  En mér er sama, vegur er vegur og fólk þarf að komast leiðar sinnar.  Er það ekki annars?


mbl.is Tafir gætu orðið vegna kvikmyndatöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2987929

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.