Leita í fréttum mbl.is

TAFIR

1

Guð hvað það er gaman að vakna á svona fallegum degi, fá sér kaffi (eða þannig), lesa Moggann og sjá svona skemmtilegar fréttir. 

Tafir geta orðið í dag og frameftir kvöldi, á Bláfjallavegi og í Hvalfirði við Botnsá, en Saga film er að vinna við gerð bílaauglýsingar!

Vá, firring neysluþjóðfélagsins bara LIFNAR og stekkur á mann, blásaklausan í morgunsárið.

Næstu viku verður lokað í Hagkaup í Kringlunni, vegna gerðar á flókinni kexauglýsingu.

Mér er svo skemmt.

Úje

Veit að þetta eru ekki mjög fjölvarnir vegir kannski, þið sem sjáið ykkur knúinn til að bresta í vörn.  En mér er sama, vegur er vegur og fólk þarf að komast leiðar sinnar.  Er það ekki annars?


mbl.is Tafir gætu orðið vegna kvikmyndatöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ekkert meira áríðandi en auglýsingagerð! Allt annað verður barasta að bíða á meðan. Er það ekki nokkuð ljóst? Flókin kexauglýsing! Þú gengur frá mér Jenný!

Laufey Ólafsdóttir, 25.7.2007 kl. 09:56

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Róleg. Vinnustaður Bretans

Jóna Á. Gísladóttir, 25.7.2007 kl. 09:57

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gaman aðessu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.7.2007 kl. 10:10

4 Smámynd: Garún

Ég er algjörlega sammála.  Ég vinn nú í þessum geira og búin að gera það í 16 ár.  Hef lent í því að gera flóknar kex auglýsingar.  En sú flóknasta sem ég hef unnið við var í næstum tvo sólahringa 18  tima dagar, við að taka upp still myndir af Toro súpupökkum.  Þá hélt ég að ég myndi missa vitið.  

Garún, 25.7.2007 kl. 10:15

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

vonandi er þetta bara í dag.

Kristín Katla Árnadóttir, 25.7.2007 kl. 10:18

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Garún ég dey.... úr hlátri.  Fannstu ekki til þín fyri djobbinu með súpupakkana.  Hahahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.7.2007 kl. 10:20

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hlakka svo til þegar gerð verður flókin kexauglýising

Hrönn Sigurðardóttir, 25.7.2007 kl. 10:37

8 identicon

En ég meina, það er sumar... 
Geta þeir ekki tekið upp um nótt eins og margir kvikmyndagerðarmenn gera?

Maja Solla (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 10:50

9 Smámynd: Garún

Jú Maja.  Því miður geta þeir líka unnið á nóttinni og gera það, frá morgni til morguns.  Maður er stundum komin með vatnshöfuð af þreytu við að búa til auglýsingar.   En svona bara til að kommenta aðeins þá er þessa dagana orðið rökkur um eitt leytið og næstum alveg dimmt um tvö leytið.  Byrjar svo að birta aftur um þrjú.  En í endaðan mai og júní er tekið upp alla sólahringinn.   Og já Jenna, mér fannst ég vera að breyta heiminum til batnaðar þegar ég vann við Toro auglýsinguna, ég hreinlega fann hvernig lífsmyndin breyttist.  

Garún, 25.7.2007 kl. 11:02

10 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Fyndið

Edda Agnarsdóttir, 25.7.2007 kl. 11:07

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahahahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.7.2007 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 2985890

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband