Leita í fréttum mbl.is

AÐ VERA Í RUSLINU

 1

Ég veit ekki með ykkur en ég er stórbiluð oft á tíðum. 

Hafið þið farið með ruslið út á morgnanna um leið og þið farið að heiman?

Kannist þið þá við að hafa mætt með ruslið í vinnuna?

Eða setið með útroðinn poka af matarleifum á biðstofu læknis?

Orðið fyrir aðkasti í strætó vegna þess að það er farið að slá í dýralíkin og lyktin er ógurleg?

Ef ekki þá eruð þið ekkert í námunda við hina stórundarlegu mig.

Lofjúgæs!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég hef að minnsta kosti labbað með ruslapoka út í bíl eins og ég væri með eikkað þarfaþing! En nú ætla ég á Louisiana safnið þeirra á Norður Sjálandi, er að fara út - þetta eru cirka 30 km frá Köben.

Edda Agnarsdóttir, 25.7.2007 kl. 11:11

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahaha. Ég hef nú aldrei afrekað að taka ruslapokana með mér í strætó en oft í bílinn. Tók meira að segja annarra manna ruslapoka með mér heim um daginn. Var greiðvikin við vinkonu mína og bauðst til að fara út með ruslið fyrir hana þegar ég var að fara frá henni. Sá ruslapoki endaði í ruslatunnunni heima hjá mér í hinum enda bæjarins.

Jóna Á. Gísladóttir, 25.7.2007 kl. 11:12

3 Smámynd: María Kristjánsdóttir

toppa þetta ekki- hef  farið lengst með það út í bíl þarsem það hefur þurft að bíða meðan var ég í vinnunni.

María Kristjánsdóttir, 25.7.2007 kl. 11:13

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mamma mín tók einu sinni náttkjólinn sinn með í vinnuna. Ætlaði að setja hann í þvottahúsið á leið út en var með hann á handleggnum og gekk pent með hann alla leið í vinnuna. Veit ekki hvað þeir hugsuðu sem mættu henni, nú, nú Solla bara með ballkjólinn úti fyrir 9, hvar skildi hún hafa sofið í nótt  ?

Ásdís Sigurðardóttir, 25.7.2007 kl. 11:25

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehehehe aldrei mætt með hann - en oft lagt af stað með ruslið.

Enda allur minn úrgangur dýrmætur

Hrönn Sigurðardóttir, 25.7.2007 kl. 11:40

6 identicon

Hhahahahah, rámar eitthvað í eitthvað svona, en ætla ekki að gefa það upp hvað það var.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 12:21

7 Smámynd: Elín Arnar

Jahá kannast sko við það! Það er rosa gott þegar maður fer óvart með ruslið í vinnuna að segja að ruslatunnan sé orðið full heima. Þá er ekkert eðlilegra en að henda ruslinu í gáminn í vinnunni.

Elín Arnar, 25.7.2007 kl. 12:33

8 Smámynd: Rebbý

Stelpur mínar   Ég veit að við höfum oft um margt að hugsa í einu, en ruslið fer aldrei annað hjá mér en í tunnuna við íbúðina mína.   Hjá mér er meira mál að muna eftir að kaupa inn eitthvað sem síðar verður að rusli og hvað þá að koma því líka heim úr búðinni.  

Rebbý, 25.7.2007 kl. 13:03

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það hefur stundum munað litlu ... heyrði einu sinni að þetta væri gáfumerki! (viðutan prófessors-heilkennið) Þú ert sem sagt rosagáfuð á meðan ég er næstum því rosagáfuð! Arg!

Guðríður Haraldsdóttir, 25.7.2007 kl. 13:20

10 Smámynd: Edda Jóhannsdóttir

Smá saga af syni mínum þegar hann var 13 ára og mesti töffarinn í skólanum. Hann notaði ekki skólatösku, glætan, allt í máðum plastpokum. Einu sinni var hann seinn fyrir og þreif plastpokann næst dyrunum. Í skólastofunni opnaði hann pokann og út ultu bleikir og fjólubláir pónýhestar systra hans. Bekkurinnn fékk hláturskast og töffarinn varð grænn í framan af skömm. Enn er hann stundum kallaður Palli Póný. Sjálf hef ég farið með ruslið áleiðis á strætóstoppistöð en áttað mig á elleftu stundu. Gáfumerki? Ekki spurning.

Edda Jóhannsdóttir, 25.7.2007 kl. 13:29

11 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Hef hent sundótinu í ruslið og labbað með ruslapokann áleiðis. Áttaði mig sem betur fer áður en ég kom í búningsklefann En eitthvað er maður kalkaður. Fór í sund áðan og í búningsklefanum tók ég handklæðið og setti það á öxlina á mér, síðan sundskýluna og shampóið. Fór síðan að leita að handklæðinu í töskunni og fór að bölva mér fyrir að hafa gleymt því Sá svo handklæðið á öxlinni

Kristján Kristjánsson, 25.7.2007 kl. 13:37

12 Smámynd: Ester Júlía

Nei - ekkert af þessu, en ég hef mætt með illa lyktandi ruslapoka í partý

Ester Júlía, 25.7.2007 kl. 13:37

13 Smámynd: Þröstur Unnar

Hendi stundum veskinu mínu og lyklunum í ruslið, með ruslinu. Það er fúllt að gramsa oní ruslatunnu kl 06:30 á morgnanna þegar frúin á móti er að hræra skyrið oní kallinn sinn við eldhúsgluggann.

Þröstur Unnar, 25.7.2007 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband