Leita í fréttum mbl.is

SKERÍ - SKERÍ

1

Það eru litlir menn, grænir á lit samt kínverskir, í sænskum þjóðbúningum út um allt í kringum mig.  Þeir fylgja mér hvert fótspor, halda að ég sjái þá ekki og þeir njósna stöðugt um mig.  Þeir taka upp símtölin mín, eru með kamerur hér í öllum hornum og það eru míkrafónar í gólfinu.  Þeir ætla að ná mér og færa mig til dómara.  Ég veit ekki alveg fyrir hvað en ég er viss um að ég verð dæmd fyrir landráð eða eitthvað.  Þeir eru inni í tölvunni, þeir fokka upp blogginu mínu og þeir setja inn athugasemdir í mínu nafni.  Ég er algjörlega ófær um að stoppa þessa menn.

Þegar ég sef þá hvísla þeir að mér allskonar ófögnuði til að gera mig hrædda þannig að ég hlýði þeim á endanum.

Þeir eru farnir að skrifa stjörnuspá Steingeitarinnar á Mogganum til að ná enn betur til mín.

Í dag segja þeir (uss ekki tala hátt, microphones you know):

"Steingeit: Þeir munu reyna að segja þér að þú hafir bara eitt tækifæri, en þau eru endalaus. Reyndu þitt besta, og lærðu af því fyrir næsta skipti."

Ég er svvvvvooooooooo hrædd.

Emægonnadæ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ó mæ.... þetta líst mér ekkert á. Af sveppunum kona... strax

Jóna Á. Gísladóttir, 26.7.2007 kl. 00:26

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Muhahahaha mæfrend.  Nú er kona í vondum málum.  ÞEIR FARA EKKI

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.7.2007 kl. 00:32

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 26.7.2007 kl. 00:35

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mér finnst þetta nú bara mjög góðlegir geimfarar sem eru að yfirtaka líf þitt Jenný mín. Kannski er tilgangurinn bara góður og þeir bara hér til að sýna þér eitthvað nýtt...ég meina betur sjá augu en auga. Hvað þá 3 augu.

Auðvitað deyrðu ekkert...jú ég meina auðvitað deyrðu einhverntímann en alls ekki strax. Fyrst ferðu á toppinn eins og alvöru steingeit. Svo slapparðu af og nýtur lífsins gæðum og gengur svo á dyr þegar þú ert tilbúin..with or without these lovelí green people

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 26.7.2007 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985718

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband