Færsluflokkur: Hneyksli
Fimmtudagur, 6. september 2007
BÖLVAÐ KARLREMBUSVÍN
Hafið þið tekið eftir því..
..að þegar giftir menn eru ekki að haga sér, svona yfirleitt í lífinu, þá halda karlrembusvínin því fram að það sé konunni þeirra að kenna?
Alex Ferguson er ekki sá karlmaður sem ég myndi kalla meðvitaðan um kvennapólitík, með virðingu fyrir konum eða frjálslegan í hugsun. Fyrir nú utan það að hann á það til að beita ofbeldi.
Fari hann og hans líkar í fúlan pytt!
Úje
![]() |
Alex Ferguson: Hjónabandið spillti Beckham |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Breytt s.d. kl. 19:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Fimmtudagur, 6. september 2007
ALLIR SÓTRAFTAR Á SJÓ DREGNIR
Sumt fólk er ótrúlega hugmyndaríkt í öflun lífsviðurværis. Ég man eftir lækni einum sem tók fólk á námskeið við að gera við bíla, laga sambönd og kynlíf, kaupa gluggatjöld, elda grænmeti og fleira sem fólk þarf að gera í lífinu. Reglulega heldur fólk, alls kyns námskeið, með enga kunnáttu í farteskinu aðra en eigin reynslu, þó að auðvitað dragi reynslan fólk drjúga leið.
Nú er ein Nælon daman að fara af stað með sjálfstyrkingarnámskeið fyrir stelpur á aldrinum 13 - 20 ára. Ég spái því að þær stúlkur sem flykkjast þangað verði allar í yngri kantinum. Það hlýtur að vera hreinn draumur að komast á námskeið hjá ædólinu, jafnvel þó námskeiðið fjallaði um ljósleiðaralagningu.
Það vantar að taka fram í auglýsingu... æi fyrirgefið "fréttinni" hvað þetta námskeið sem inniheldur eftirfarandi muni kosta:
"Á námskeiðinu verður farið í saumana á öllu er viðkemur framkomu, feimni, sjálfsáliti, líkamsburði, heilsu, förðun, sjálfsvörn, markmiðasetningu og fjármálum auk þess sem þátttakendum gefst kostur á að kynnast leikrænni tjáningu.!
Vó það er ekki verið að ráðast á garðinn sem hann er lægstur.
Ég hef ekki hugmynd um hvort þessi stúlka er fær til námskeiðahalds að þessu tagi, enda er það ekki málið hér. Ég dauðvorkenni foreldrum ungra stúlkna að þurfa að berjast við peningaplokk úr öllum áttum.
Ég myndi skrá mig ef ég væri ekki orðin of gömul. Það eru fjármálin og förðunin sem myndu draga mig þangað.
Úje
![]() |
Alma í Nylon heldur sjálfstyrkingarnámskeið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 5. september 2007
GRENJANDI NÖRD
..ef ég væri með lítið brotabrot af því sem Búskur forseti hefur á samviskunni, myndi ég eflaust gráta 24/7.
Maður sem lét lífláta fólk í Texas hægri vinstri og sýndi aldrei miskun, sendir hermenn í dauðann og á beina aðild að óteljandi morðum á saklausum borgurum í Írak, getur ekki verið grátandi dúllurass uppi við öxl Guðs.
Ef þessi maður er harmrænn tilfinningavöndull þá heiti ég Beef Wellington.
Cry me a river!
Úje
![]() |
George W. Bush: Ég tárast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Þriðjudagur, 4. september 2007
OF SEINN Í MATINN
Vúps, nýja auglýsingin frá Símanum fer fyrir brjóstið á fólki. Ég veit ekki hvað mér finnst.
Biskup segir auglýsinguna smekklausa.
Fyrir milljón á mánuði myndi ég segja að Geir Haarde væri sexý.
Ójá
![]() |
Biskup segir nýja auglýsingu Símans smekklausa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 4. september 2007
ÉG BIÐ MÉR VÆGÐAR!
Og í þetta skipti þýðir fyrirsögnin að ég öskra hátt og af alefli. Ef klósettauglýsingunum frá Harpers fer ekki að linna, sver ég að ég ber fjárans sjónvarpið út í rusl, og nota grænsápu til þrifa á náðhúsinu það sem eftir lifir ævi. Ég mun þar að auki, hvetja alla sem ég þekki og þeir eru ófáir, til að gera slíkt hið sama. Harpers verður sturtað niður í markaðsfræðilegum skilningi ef mitt fólk fær einhverju ráðið.
Að sitja í sakleysi sínu fyrir framan sjónvarpið, við að horfa á fréttir og fá tvær (segi og skrifa tvær) myndir af skítugu klósetti upp í opið ógeðið á mér (í litum), með nokkra sekúndna millibili, er hámark smekkleysisins. Ég veit ekki með fólk úti í bæ, en í minni familíu fá salernin ekki að safna á sig nokkrum lögum af úrgangi og mynda víðfeðman mosa- og sveppagróður áður en þau eru þrifin.
Vinsamlegast takið tillit til viðkvæmra áhorfenda. Sumir borða á meðan þeir horfa á fréttir.
I´m in deep shit!
Ójá
Laugardagur, 1. september 2007
EKKI LENGUR HÆGT HVAÐ???
.. það átti aldrei að vera hægt að fá áframtengingu í læsta síma. Síminn er svo ömurlegt fyrirtæki þegar kemur að því að þjónusta viðskiptavinina. Gerast mistök þá leyfa þeir sjálfum sér alltaf að njóta vafans.
Þegar ég sá þessa frétt þá þakkaði ég Guði fyrir eftirfarandi:
Að hafa skipt yfir í Hive ,þó það sé stundum smá vandamál með tengingu, símareikningurinn bætir það upp.
Að eiga dætur sem eru fluttar að heiman, því þær hefðu NOTAÐ þetta gat all verulega, held ég að ég geti fullyrt. Þvílíkar símadömur sem ég á. Það er varla hægt að ná Maysunni á mynd nema talandi í gemsann. Sara og Helga hafa róast.
Að símareikningar sem voru á við meðal álverksmiðju, heyra nú sögunni til.
Kæri Guð, tack så jätte, jätte mycket.
Hejdå!
![]() |
Ekki lengur hægt að fá áframtengingu á farsíma úr læstum símum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 31. ágúst 2007
PRINSESSUHARMAR
Ég vorkenni Harry og William, þó það nú væri, það er hryllilega sorglegt þegar ungt fólk missir foreldri. Ég vorkenni öllum sem um sárt eiga að binda vegna fráfalls ástvina. Bara svo það sé á hreinu. Þá er það frá og þarf ekki að ræða um það meira.
Ég hef óbeit á mónarkíi, meðfæddum status sem fæst fyrir að tilheyra ákveðnum fjölskyldum. Fólk sem ber höfuð og herðar yfir almúgann, ástundar sýndarveruleika og lifir eins og myndir á ævintýrabók, tilsýndar a.m.k. Svo er eitthvað allt annað upp á teningnum á bak við tjöldin.
Hvar varstu þegar Díana dó? Það er spurning dagsins. Ég man ekki hvar ég var en ég er með það á hreinu hvað ég var þegar Martin Luther King dó. Það hefur væntanlega verið tíðarandinn.
Það sem ég er að burðast við að skilja er hvers vegna mannslífin eru svona misdýrmæt? Heimurinn fer á límingunum reglulega vegna prinsessa og prinsa en svo göngum við um með eyrnatappa, múla og augnlappa þegar milljónir mannkyns eru að hrynja niður úr sjúkdómum, þrælkun, hungri og annarri neyð.
Áður en einhver prinsessudýrkandinn fríkar út þá veit ég að Díana var góð manneskja og gerði ýmislegt gott í stuttu lífi sínu. Ég vildi bara að einhver hefði bent henni á hverslags örlög gætu beðið hennar ef hún giftist inn í þessa forpokuðu og úrkynjuðu konungsfamílíu á Bretlandi.
God save the queen.
Úje
![]() |
Lát Díönu ólýsanlegt áfall segir Harry prins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 29. ágúst 2007
ÉG DRÓ FALLEGA MANNINN MEÐ KJÚSULEGA RASSINN Á ENDAÞARMINUM, INN Á KLÓSETT OG ÞAR HELTI ÉG YFIR HANN ÚR SPÝTUBAKKA BERKLAVEIKU ÖMMU MINNAR OG SVO RÚLLAÐI ÉG ÞARMINUM UPP Í EYRAÐ Á HONUM...
..og augu hans ljómuðu af gleði, sagði þessi blíða og tískumeðvitaða vinkona mín sem vinnur sem klósetthreinsari á sumrin af einskærri hugsjón og réttlætiskennd.
Ég hef það fyrir sið að veitast ekki að bloggum annarra, a.m.k. afar sjaldan. Mér finnst það ekki koma neinum við hvernig fólk bloggar, svo fremi að það meiði engan.
Ég er klígjugjörn og endaþarms- og horfærslur geta eyðilagt fyrir mér daginn, það segi ég satt. Ég benti Ellý á að setja varúð á bloggið sitt, en málið er að í fyrirsögnunum er allur hroðbjóðurinn. Nú eru færslurnar ekki lengur bláar, þær eru kúkabrúnar með horgrænu ívafi.
Hvernig líst ykkur á þessa fyrirsögn?
En svo er spurning hvort maður á ekki einhverja vinkonu sem fer í sleik við tengdamömmu sína og sefur hjá svila sínum og á jafnvel barn með þremenningi í föðurætt. Ég ætla að gá.
Ellý; þetta er ekki par jólalegt.
Kem að vörmu.
Úje
Hneyksli | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (54)
Föstudagur, 24. ágúst 2007
FIMMTÍU MILLUR..
..fyrir að hætta við rekstur. Vááá!
Ég læt mér nægja 100 þús. krónur fyrir að halda aftur af mér, við að fara út í framleiðslu á Mikadói.
Súmíplís.
Úje
![]() |
Háspenna hagnast á lóðasölu við Starhaga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 20. ágúst 2007
TEK ÞAÐ FRAM AÐ ÞAÐ VAR EKKI ÉG..
..sem gúffaði í mig öllu þessu kjöti sem var selt í júlí. Ég get svarið það og get komið með votta ef með þarf.
Ég er búin að grilla svona tíu sinnum á þessu sumri.
Það er einhver annar sem hefur úðað í sig um 15 þúsundum tonnum af kjöti í júlí. Vááá! Hver arða nánast, hefur farið á grillið.
Jóna Ágústa, ert það þú sem ert ábyrg á þessu kjötfjalli?
Nú er það fiskur fram að jólum.
Ég ætla ekki að reyna að framreikna afdrif alls þessa kjöts. Hafið er rosa stórt er það ekki?
I wonder!
Úje
![]() |
Segja nýliðinn júlí besta grillmánuð Íslandssögunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 2987927
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 40
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr