Færsluflokkur: Hneyksli
Mánudagur, 17. september 2007
Þegar skrattinn hittir ömmu sína!
Ég er svo illgjörn að ég get ekki annað en brosað að fólkinu sem daðraði hvort við annað á netinu og komust að því - of seint - að þau voru að dufla hvort við annað. Er hægt að fá betri lexíu í að haga sér?
Þegar ég var í námi í Svíþjóð, átti ein skólasystir mín í ástarsambandi við giftan mann. Við supum hveljur yfir sögunum sem hún sagði okkur, spenningurinn í lífi hennar var skelfilegur og ég fékk í magann þegar hún á mánudögum setti okkur vinkonurnar inn í atburði helgarinnar. Ekki misskilja mig, mér fannst spennan vond en sumum fannst hún góð, eins og gengur.
Svo kom vor. Vinkonan fór á kaffihús með elskhuganum. Þau stóðu á torgi Gustavs Adolf niðri í Gautaborg og hann kyssti hana bless. Þetta var fyrsti vordagurinn, sólin skein og fuglarnir sungu og ladídadída, allur sá væmnispakki (fyllið í eftir þörfum). Hún fór heim, hann eflaust líka.
Í GT daginn eftir var þessi yndislega vormynd á forsíðu blaðsins. Þau að kyssast á torginu og fyrirsögnin var: "Ástin og vorið blómstra í Gautaborg".
Kona elskhugans var ekki voða glöð með myndina af eiginmanninum og þau skildu. Vinkonan snarkólnaði þegar maðurinn var allt í einu á lausu. Hún snéri sér að næsta gifta manni.
Hún er enn að en hún forðast ljósmyndara eins og heitan eldinn.
Jag ringer på fredag!
Jajamensan!
![]() |
Daður á netinu endar með skilnaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 15. september 2007
Bloggarar hafa áhrif í umræðunni!
Ég var afskaplega glöð þegar ég sá þessa frétt í Mogganum í morgun. Þar er verið að skrifa um viðbrögð bloggara við mildun dóms yfir nauðgara. Þessum sem fór svo illa með konuna að ekki var hægt að gera á henni hefðbundna skoðun á kynfærum vegna áverka.
Það ver vitnað í hana Birnu Dís, bloggvinkonu mína (www.skralli.blog.is) , ásamt fleiri bloggurum.
Ég held að ég hafi bloggað um hvern einasta nauðgunardóm sem hefur fallið, síðan ég byrjaði að blogga. En í þetta skiptið sat ég hjá. Það þyrmdi svo yfir mig og ég varð svo reið að ég hugsaði með mér að í þetta skipti ætlaði ég að telja upp á tíu.
Það má vera að dómar í nauðgunarmálum séu farnir að þyngjast, en það er ekkert að þakka fyrir og að dómurinn skuli mildaður þrátt fyrir að Hæstiréttur hafi líka fundið manninn sekan um munnmök, er viðurstyggilegt og honum til skammar. Virðing mín gagnvart Hæstarétti er ekki að sliga mig, það verð ég að segja. Er þetta fólk sem skipar dóminn af þessum heimi?
Annars bendi ég á góða umfjöllun um málið hjá fleiri bloggurum:
Ég gleðst yfir því að bloggarar virðast hafa áhrif á umræðuna í þjóðfélaginu. Þrátt fyrir að við förum svakalega í taugarnar á sumum, sem telja sig eina bæra til að fjalla um þjóðfélagsmál.
Ójá!
![]() |
Bloggheimar loga vegna dóms yfir nauðgara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Breytt s.d. kl. 10:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Fimmtudagur, 13. september 2007
Pósturinn hefur endanlega gengið frá félagslífi mínu!
Ég er ónýt, miður mín, að andlegum niðurlotum komin og ég á eftir að eiga ömurlega helgi.
Ég er ekki búin að fá boðskortið frá Landsbankanum en það verður flogið kl. átta í fyrramálið til Ítalíu og þar með er þessi annars skemmtilega ferð til Ítalíu á vegum bankans fallin steindauð til jarðar.
Þó boðskortið frá Kaupþingi berist í fyrramálið í matinn annað kvöld, kemst ég ekki í strípur og klippingu fyrirvaralaust og ég á eftir að versla mér dress. Get ekki látið sjá mig í áramótadressinu sem ég var í í þyrlupallapartíinu í London á gamlaárskvöld.
Ég veit að þetta er ekki bönkunum að kenna. Er búin að skipta við alla íslensku bankana í áraraðir og hlýt að vera nokkuð góður viðskiptavinur í tímalengd talið (hóst).
Það er andskotans Íslandspóstur sem er að klúðra mínu félagslífi algjörlega.
Ég er ZERO happý!
Ég mun eyða helgini algjörlega niðurbrotin, heima í rúmi.
Dem, dem, dem!
Hneyksli | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Fimmtudagur, 13. september 2007
Er þetta lélegur brandari?
Síðast þegar ég vissi var 16 ára fangelsi lífstíðardómur á Íslandi. Hvernig getur maður sem dæmdur var fyrir manndráp að ásettu ráði fyrir níu árum, verið á áfangaheimili Verndar, eins og flottur maður?
Annar tvíburinn sem dæmdur var fyrir að drepa mann á hrottalegan hátt í Heiðmörk 1997, lét sig hverfa af áfangaheimilinu á sunnudag og er hans nú leitað.
Halló, er ekki í lagi?
Ég ætla rétt að vona að maðurinn sé ekki hættulegur umhverfinu.
Nú frussa ég af hneykslun.
![]() |
Strokufangi fundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 10. september 2007
TILLAGA AÐ LAUSN..
..á vanda skjólstæðinga kaffistofu Samhjálpar.
Er ekki hægt að slökkva á einum kæli til viðbótar? Fá Villa í verkið.
Það gagnast víst vel til að fá heimilislausa og aðra í erfiðum málum til að hverfa.
Nú ganga hátíðniverur um Austurstrætið og búið að sarga úr öllum helvítis brennivínsgenið.
Ójá.
![]() |
Aðstöðu komið upp til bráðabirgða í Gistiskýlinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Breytt s.d. kl. 09:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 9. september 2007
AÐ HRÆÐAST RAPPARA...
..er vandamál sem hrjáir marga. Ég er ekki vitund smeyk, ónei, þeir eru bara sumir svo rosalega pírípú og heitir út í samfélagið. Auðvitað skil ég það og veit að þessi tegund af takti er sprottin úr fátækrahverfum stórborganna. Eða er það ekki annars? Gurrí segja Jenný sinni gúkkulaði frá rappi.
Ég hallast að því samt að það sé ekki beint hægt að skilgreina rapp sem músík í hefðbundnum skilningi, mér finnst það meira svona rímnakveðskapur. Ég tek fram að mér finnst sumt rapp alveg þræl sniðugt, það er þegar textarnir rífa mann ekki á hol af hneykslan.
Foxy Brown fékk ársfangelsi í New York fyrir að brjóta gegn skilorði. Ég vildi ekki þurfa að fikta í hárinu eða andlitinu á þessari konu, en hún hlaut skilorðsbundin dóm í október sl. fyrir að hafa ráðist á tvo starfsmenn snyrtistofu í ágúst árið 2004.
Annars skil ég vel fólk sem á það til að reiðast á hárgreiðslu- og snyrtistofum, en það eru nokkrir klipparar sem hafa farið höndum um hárið á mér í gegnum tíðina sem hefðu haft ástæðu til að óttast væri ég ekki alfarið á móti ofbeldi. Því get ég lofað.
Ég heiti Jenný og ég á heima í blokk..
ég hlusta bara á þungarokk...
búmm-búmm-búmm-búmm ba
![]() |
Foxy Brown dæmd í árs fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 9. september 2007
ERILLINN - TAKA TVÖ
Aftur var "Erill" vinurinn, á ferðinni hjá löggunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Útköll 120 og 40 manns handteknir.
Fyrir utan ofbeldi og önnur alvarleg hegðunarvandamál fólks í miðbænum, var slatti tekin við að brjóta flöskur, míga utan í veggi og svoleiðis smotterí.
Ég bíð enn eftir skilgreiningu á orðinu "understatement". Það kemur nefnilega aftur og aftur upp í hugann þegar fjallað er um geggjunina í miðbænum um helgar.
Mér finnst eins og þetta ástand sé orðið nokkurskonar náttúrulögmál í hugum fólks. Að það sé ekki hægt að breyta þessu og taka upp betri siði.
Ekki frekar en við breytum veðrinu.
Ójá
![]() |
Um 120 útköll hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 8. september 2007
"VÍSBENDING" LÍTIÐ GLEÐIEFNI
Að rannsóknir sýni vísbendingu um að menn séu gáfaðri en apar, er ekki neitt sérstakt gleðiefni, að mínu mati.
Við rétt merjum apana, samkvæmt þessu. Vísbending lofar ekki góðu. Við erum þá tregir hálfvitar í vondum málum.
Hrmpff
Úje
![]() |
Vísbending um að menn séu gáfaðri en apar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 7. september 2007
KONA FRUMSÝND - ORÐALAG HVERS?
Nú er ég allt að því stúmm. Ég trúði ekki mínum eigin augum þegar ég las þessta frétt. Mikið rétt hún fjallar um að Clooney sé kominn með kærustu. Alveg er mér slétt sama um það og ekki orð um það meir.
En hvaðan kemur orðalagið "Clooney frumsýndi nýju kærustuna"?
Er það Mogginn sem er svona fullur kvenfyrirlitngar eða er það þýðandinn sem lét þetta fara svona frá sér athugasemdarlaust?
Nú myndi ég vilja fá svör.
Hér er bara tekið stórt stökk aftur til miðalda og það á einu föstudagseftirmiðdegi.
Arg hvað þetta er ósmekklegt.
No woman no cry.
Ójá
![]() |
Clooney frumsýndi nýju kærustuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 7. september 2007
ÉG ELSKA SVARTAN HÚMOR..
..en þarna er skotið yfir markið. Vó hvað þessi platósómi er dauður fyrir stjórnvöldum í Ástralíu og víðar (þ.e.a.s. sjónvarpsstöðin sem sviðsetti atriðið audda).
Þetta flokkast undir sjúklegan húmor.
En ég glotti smá.
Ég veit það,
ég er fífl.
Súmíandkikkmí
Úje
![]() |
Eftirherma bin Ladens komst inn fyrir öryggisgirðingu Bush |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hneyksli | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.6.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2987921
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr