Leita í fréttum mbl.is

Bloggarar hafa áhrif í umræðunni!

Ég var afskaplega glöð þegar ég sá þessa frétt í Mogganum í morgun.  Þar er verið að skrifa um viðbrögð bloggara við mildun dóms yfir nauðgara.  Þessum sem fór svo illa með konuna að ekki var hægt að gera á henni hefðbundna skoðun á kynfærum vegna áverka. 

Það ver vitnað í hana Birnu Dís, bloggvinkonu mína (www.skralli.blog.is) , ásamt fleiri bloggurum. 

Ég held að ég hafi bloggað um hvern einasta nauðgunardóm sem hefur fallið, síðan ég byrjaði að blogga.  En í þetta skiptið sat ég hjá.  Það þyrmdi svo yfir mig og ég varð svo reið að ég hugsaði með mér að í þetta skipti ætlaði ég að telja upp á tíu. 

Það má vera að dómar í nauðgunarmálum séu farnir að þyngjast, en það er ekkert að þakka fyrir og að dómurinn skuli mildaður þrátt fyrir að Hæstiréttur hafi líka fundið manninn sekan um munnmök, er viðurstyggilegt og honum til skammar.  Virðing mín gagnvart Hæstarétti er ekki að sliga mig, það verð ég að segja.  Er þetta fólk sem skipar dóminn af þessum heimi?

Annars bendi ég á góða umfjöllun um málið hjá fleiri bloggurum:

www.jonaa.blog.is

www.skessa.blog.is

Ég gleðst yfir því að bloggarar virðast hafa áhrif á umræðuna í þjóðfélaginu.  Þrátt fyrir að við  förum svakalega í taugarnar á sumum, sem telja sig eina bæra til að fjalla um þjóðfélagsmál.

Ójá!

 


mbl.is Bloggheimar loga vegna dóms yfir nauðgara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já ég gleðst yfir að bloggarar hafi áhrif í  svona málum það er mjög gott mál og öllum öðrum málum.

Kristín Katla Árnadóttir, 15.9.2007 kl. 10:29

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, ég gleðst líka yfir áhrifum bloggara á umræðuna í þjóðfélaginu. Þessi dómur er einstaklega fáránlegur og gefur ofbeldismönnum veiðileyfi. 

Guðríður Haraldsdóttir, 15.9.2007 kl. 10:44

3 Smámynd: halkatla

ég hef líka bloggað margoft um svona hallæris dóma, þessi var og , en núna er ég bara hætt að nenna því! það er stórkostlegt að umræðan hafi haft þessi áhrif, þeir sem tóku þátt í henni og létu hana skipta máli eiga heiður skilinn - og við líka Jenný fyrir að kommenta þó amk -

halkatla, 15.9.2007 kl. 11:06

4 identicon

Bloggið þitt var á forsíðu mbl.is og var það fyrsta sem ég las. Hentist svo frá tölvunni og á náttfötunum að sækja pappírsmoggann og hugsaði á leiðinni hvað gerði ég nú af mér? En svo var þetta ok. Dómurinn er fáránlegur og ótrúlegur. Algjört hneyksli. Gott að bloggarar geti haft áhrif.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 12:02

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Áfram stelpur, þetta er ánægjulegt og gott að skrif kvenna hefur áhrif.  Þetta eru svívirðilegir dómar, og alltaf eru þeir styttir í hæstarétti.  það er eitthvað að í dómskerfi okkar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.9.2007 kl. 12:04

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Nú fékk einn krimminn 13 mánaða skilorð fyrir að stela kjötlæri í Bónus. Að vísu var lærið úrbeinað sem að líkindum hefur þyngt dóminn að mun.

Viðfelldinn sómamaður sendi fyrrum eiginkonu reipi með hengingarhnút í jólagjöf! Síðan reyndi hann að drepa hana með því að keyra hana niður á bílnum sínum.

Dómarar komust að þeirri niðurstöðu að svona ættu menn líklega ekki að gera. Sú skýring var þó talin á athæfi mannsins að hann hafði lengi borið þungan hug til konunnar. Dómarar ákváðu að aðvara manninn vegna drápstilraunarinnar.(þó að náttúrlega hefði þetta átt sínar eðlilegu skýringar, nefnilega þær að hann hafði lengi borið þungan hug til konuvargsins) 

Niðurstaðan var að meta líf kellingarinnar á rúmlega hálft hangiketslæri frá KS kjötvörum.

Ekki kæmi mér á óvart þó maðurinn beri núna "þungan hug" til þessara dómara fyrir dónaskap og skilningsleysi.

Árni Gunnarsson, 15.9.2007 kl. 12:21

7 Smámynd: Árni Gunnarsson

Í fljótfærni nefndi ég hálft í staðinn fyrir þriðjung úr hangikjötslæri.

Árni Gunnarsson, 15.9.2007 kl. 12:24

8 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Já, fínt að það heyrist í okkur! Þessir dómar eru svo gersamlega út í hött.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 15.9.2007 kl. 12:32

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hvað heita þessir dómarar. Ég vildi gjarnan setja nöfnin þeira út um allt blogg í svörtum stöfum. Hafa svona skömmustudómaradag. Þessi vægðardour kemur ekki til af því að það sé ekki lagalega hægt að dæma manninn í lengra fangelsi. Þannig að þetta eru vinnubrögð fólks sem hefur ákveðna skoðun á hvað sé í lagi að gera við konur og hvað ekki.Mér finnst bara betra að vita hverjir hugsa svoleiðis.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.9.2007 kl. 12:55

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Árni: Ég gat ekki annað en brosað að þessu frábæra dæmi sem þú setur hér upp, þó auðvitað sé þetta tragikomiskt og því miður satt og rétt.  Það er mun alvarlegra mál að stela sér til matar en að nauðga eða ógna lífi konu.

Katrín: Gjörsvovel: Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason, Ingibjörg Benediktsdóttir, Markús Sigurbjörnsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.9.2007 kl. 13:39

11 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Óborgarleg færsla frá Árna þarna! 

Rosalega er ég til í svona svartan- skömmustu- hæstaréttar- dómara- bloggheima -dag  eins og Katrín stingur uppá!  

Marta B Helgadóttir, 15.9.2007 kl. 15:18

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Setti ég ekki inn athugasemd inn á þetta blogg? Eða var það einhvers staðar annars staðar?

Sigurður Þór Guðjónsson, 15.9.2007 kl. 17:42

13 Smámynd: Ragnheiður

Hann Árni er snillingur!! Kominn með nýja viðmiðun í dómum, hversu mörg kjetlæri fékkstu góurinn ?

Ég er ekki búin að lesa dómana, hvorki héraðs né hæstaréttar. Mér skilst að hæsti hafi aukið við sektina en lækkað refsinguna....

Ragnheiður , 15.9.2007 kl. 19:49

14 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Maðurinn er núna frjáls ferða sinna, hann er farinn úr landi. Er "í fríi erlendis" segir lögmaður hans!

Farbann sem hann var úrskurðaður í, rann út áður en Hæstiréttur staðfesti dóminn yfri honum. Lögmaður hans segir að hann sé "í fríi" erlendis.

Hvernig samfélagi búum við í, hvernig dómskerfi er það, þar sem fádæma hrottaskapur er ekki tekinn alvarlegar en svo að menn fá svo bara að skreppa í frí.

Þessi portúgali mun auðvitað aldrei koma til Íslands aftur og aldrei afplána dóminn.

Marta B Helgadóttir, 17.9.2007 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.