Leita í fréttum mbl.is

KONA FRUMSÝND - ORÐALAG HVERS?

v

Nú er ég allt að því stúmm.  Ég trúði ekki mínum eigin augum þegar ég las þessta frétt.  Mikið rétt hún fjallar um að Clooney sé kominn með kærustu.  Alveg er mér slétt sama um það og ekki orð um það meir.

En hvaðan kemur orðalagið "Clooney frumsýndi nýju kærustuna"?

Er það Mogginn sem er svona fullur kvenfyrirlitngar eða er það þýðandinn sem lét þetta fara svona frá sér athugasemdarlaust?

Nú myndi ég vilja fá svör.

Hér er bara tekið stórt stökk aftur til miðalda og það á einu föstudagseftirmiðdegi.

Arg hvað þetta er ósmekklegt.

No woman no cry.

Ójá


mbl.is Clooney frumsýndi nýju kærustuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

NEEEEEEEEEIIIIIIIIIII!!!!!!!!!!

Hann er minn!!!!!!!!!!!!! 

Díta (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 16:49

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég sagði nákvæmlega það sama þegar ég las fréttina, þvílík kvenfyrirlitning! mjög ósmekklegt.

Huld S. Ringsted, 7.9.2007 kl. 17:27

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Skil ekki Jenný. Má ekki sýna kærustuna sína?

Þröstur Unnar, 7.9.2007 kl. 17:40

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þröstur, af því mér er tiltölulega hlýtt til þín ætla ég ekki að blokkera þig úr kommentakerfinu mínu í þetta skiptið a.m.k.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.9.2007 kl. 17:48

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

það er soldið sonna verið að hlutgera þessa aumingjans konu þarna. Hún er orðin ''it''. 'Eg held að þeir hafi verið að spara pláss hjá mbl. Stytta texta. Ekki fundið neitt betra. Ég meina hvað hefði þetta verið á ensku; The Premier of Clooney's girlfriend.... æi veid'eggi.

Annars er ég að spá í hvort hann sé ekkert hræddur um að konan sé bara með stjörnur í augum og sjái ekki hann heldur bara kvikmyndaleikarann. Hún var barþjónn for crying out loud. Örugglega on a mission to become an actress. Clooney er bara stökkpallur. Ég verð að skrifa honum og vara hann við.

Ok ok Jenný mín ég er hætt. Veit hvað þú ert hrifin af svona selebbretíkjaftæti. hehe

Jóna Á. Gísladóttir, 7.9.2007 kl. 17:50

6 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Þegar rassinn á mér passar aftur í uppáhaldsgallabuxurnar mínar og ég er búin að ákveða hvað ég geri við hárið stutt/sítt/stutt/sítt.. þá verður frumsýning með flugeldum. 

Nánar auglýst síðar:)

Heiða B. Heiðars, 7.9.2007 kl. 18:00

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Ok ég þegi.

Þröstur Unnar, 7.9.2007 kl. 18:24

8 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Svo rödd okkar ógeðslegu karlrembusvínanna komi fram þá gat þetta verið verra:
Hleypti af stokkunum.
Afhjúpaði nýju kærustuna.
Klippti á borðann.
Tók upp úr kassanum.
Kom út úr skápnum með.... neeei kannski ekki þessi.

Frumsýning er nú bara hófstillt miðað við þetta. Plííííís ekki loka á mig í kommentakerfinu    

Ingi Geir Hreinsson, 7.9.2007 kl. 18:28

9 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Þetta hljómar ekki vel á neinu tungumáli!

Laufey Ólafsdóttir, 7.9.2007 kl. 18:28

10 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Hehe... nei, hlutgerving kvenna, eða karla, hljómar hvergi vel. Að "sýna" kærustu eða kærasta hef ég oft heyrt, og aldrei líkað. Hin kurteislega aðferð er að segja frá því að viðkomandi hafi verið kynnt/ur fyrir öðrum - ef það er tilfellið.

Líkingin, "premier", ef hún á annað borð virkar fyndið á ensku (fyrir þá sem sætta sig við hlutgervingu fólks á þenna máta), þá a.m.k. þýðist hún ekki vel á íslensku og verður pínulítið hlægileg. "Sást til hans" með kærustunni í fyrsta skipti ... hehehe ... mér finnst stundum þessar "celebrity"-fréttir vera í þeim stíl að það sé verið að góma fólk. Mér finnst það ósmekklegt.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 7.9.2007 kl. 18:47

11 identicon

Getur kona fengið boðsmiða í frumsýningarpartýið þegar Clooney - úpps - ég meina kærasta Clooney verður frumsýndur - úpps - ég meina frumsýnd???

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 19:07

12 Smámynd: halkatla

ji hefurðu ekki áhuga? helgarplönin mín fara einmitt í að pæla í þessu

halkatla, 7.9.2007 kl. 19:38

13 Smámynd: halkatla

ég gleymdi að segja að mér fannst þetta ósmekklegt líka,ég nennti ekki einu sinni að skoða fréttina því erlendar slúðursíður orða þetta mun betur og eru ekki svona kræfar

halkatla, 7.9.2007 kl. 19:39

14 Smámynd: halkatla

"Clooney útá lífinu með nýja dömu uppá arminn" hljómar það ekki vel?

halkatla, 7.9.2007 kl. 19:41

15 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

´Mér finnst þetta ósmekklegt ég segi eins og Anna Karen nennti ekki að lesa þetta.

Kristín Katla Árnadóttir, 7.9.2007 kl. 19:46

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heiða og hvern ætlarðu að frumsýna, gæja eða bossa? Muhahaha!

Ætli Clooney hafi ekki orðað þetta svona sjálfur.  Hann er alltaf SOV fyndinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.9.2007 kl. 20:44

17 Smámynd: krossgata

Það hefur komið fyrir að maður hefur heyrt orð eins og "kynna", "opinbera".  Ég sel það nú samt ekki dýrara en ég keypti það og blessuð hafðu mig ekki fyrir því.  Ég legg ekki meira á þig.

krossgata, 7.9.2007 kl. 21:20

18 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mér er svo slétt sama um Klúní eftir að ég komst að því fyrr í dag að karlar eru fleiri en konur á Íslandi. Það gefur mér von. 

Guðríður Haraldsdóttir, 8.9.2007 kl. 00:32

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, ég hjó eimitt eftir þessu með misræmið Gurrí

Krossgata góð.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.9.2007 kl. 00:50

20 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Á höfuðborgarsvæðinu eru samt fleiri konur - og munurinn mestur á Vestfjörðum og Austurlandi körlum í vil

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 8.9.2007 kl. 09:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 2985898

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband