Leita í fréttum mbl.is

Þegar skrattinn hittir ömmu sína!

 1

Ég er svo illgjörn að ég get ekki annað en brosað að fólkinu sem daðraði hvort við annað á netinu og komust að því - of seint - að þau voru að dufla hvort við annað.  Er hægt að fá betri lexíu í að haga sér?

Þegar ég var í námi í Svíþjóð, átti ein skólasystir mín í ástarsambandi við giftan mann.  Við supum hveljur yfir sögunum sem hún sagði okkur, spenningurinn í lífi hennar var skelfilegur og ég fékk í magann þegar hún á mánudögum setti okkur vinkonurnar inn í atburði helgarinnar.  Ekki misskilja mig, mér fannst spennan vond en sumum fannst hún góð, eins og gengur.

Svo kom vor.  Vinkonan fór á kaffihús með elskhuganum.  Þau stóðu á torgi Gustavs Adolf niðri í Gautaborg og hann kyssti hana bless.  Þetta var fyrsti vordagurinn, sólin skein og fuglarnir sungu og ladídadída, allur sá væmnispakki (fyllið í eftir þörfum).  Hún fór heim, hann eflaust líka.

Í GT daginn eftir var þessi yndislega vormynd á forsíðu blaðsins.  Þau að kyssast á torginu og fyrirsögnin var: "Ástin og vorið blómstra í Gautaborg". 

Kona elskhugans var ekki voða glöð með myndina af eiginmanninum og þau skildu.  Vinkonan snarkólnaði þegar maðurinn var allt í einu á lausu.  Hún snéri sér að næsta gifta manni.

Hún er enn að en hún forðast ljósmyndara eins og heitan eldinn.

Jag ringer på fredag!

Jajamensan!


mbl.is Daður á netinu endar með skilnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jajamensan ! þetta er svakalegt, en máltækið "svik komast upp um síðir" hefur sko löngum sannað að svo sé....Ég þekki svona dæmi og finnst þetta, og frekar sorglegar aðferð að ná sér í félaga þeas.stinga undan...Ekki virðing fyrir eignarrétti annara og tilfinnungum.....Ljótt bara

Flicka (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 17:10

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Mér finnst þetta eiginlega pínu gott á þau og eiginlega líka pínu fyndið......ég alla vega flissaði smá! Svona er margt skrýtið og óútreiknanlegt í henni tilveru !

Sunna Dóra Möller, 17.9.2007 kl. 17:12

3 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

LOL, bara fyndið og í raun gott á þau, er samt hálfpartinn að vona að þau finni samkenndina og ástina aftur hjá hvoru öðru og kveiki aftur í glæðunum á milli þeirra, ég meina það er augljóst að þau höfða til hvors annars....

Bjarndís Helena Mitchell, 17.9.2007 kl. 17:20

4 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

heheheh

en þetta lið þarna að fatta ekki að þetta er ídeal til að vinna úr sínum málum...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 17.9.2007 kl. 17:26

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ef til vill gott á þau, en hvað með eiginkonuna, sem situr eftir með sárt ennið ?  Í svona þríhyrningi er alltaf einhver sem fer illa út úr því.  Vonandi hefur hún náð sér í betri mann, sem er ekki eins svikull og laus í rásinni. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.9.2007 kl. 18:20

6 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ja, gerir ekki fjarlægðin fjöllin blá? Menn eru voða sjarmerandi í gegnum holt og hæðir en snarhætta að vera spennandi þegar þeir eru komnir í stofusófann! Öllu verri (og skemmtilegri) sagan um parið í Svíþjóð! En óheppilegt!

Laufey Ólafsdóttir, 17.9.2007 kl. 18:22

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég var nú illgjarnari en þú því ég skellihló  hló og hló,
við vorum akandi inn Aðaldalinn, engillinn að keyra og
það voru fréttir í útvarpinu og hann virtist ekki heyra neitt,
sagði svo hvað var að gerast, ég sagði honum það,
honum fannst þetta ekki fyndið.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.9.2007 kl. 18:27

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gott á þau ég hata hjónadjöfla.

Kristín Katla Árnadóttir, 17.9.2007 kl. 18:28

9 identicon

Ég hélt ég myndi kafna úr hlátri í kvikindisskap mínum þegar ég las þessa frétt. Ég dó líka nánast úr kvikindisskap þegar ég las söguna þína. Er ég kvikindi?  OK, ég er kvikindi, miðaldra kvikindi 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 18:29

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

og sá ses vi pa lördag...  lalala  hló í mér púkinn. 

Ásdís Sigurðardóttir, 17.9.2007 kl. 18:38

11 identicon

Flicka: Ég þekki svona dæmi og finnst þetta, og frekar sorglegar aðferð að ná sér í félaga þeas.stinga undan...Ekki virðing fyrir eignarrétti annara og tilfinnungum.....Ljótt bara.

Hvað með félagann sem er að halda framhjá? Konur virðast gleyma því að það er kærastinn sem er að halda framhjá þeim ekki konan sem er að "stinga undan" þeim.

Maggi (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 19:23

12 Smámynd: krossgata

Ég er ein af kvikindunum --- ég hló.    Mamma, sem alltaf er svo pen og lekker í orðum hefði sagt:  Þeim er rétt í rass rekið...

krossgata, 17.9.2007 kl. 19:32

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Úps, af hverju gerir fólk þetta? Arggggg!

Guðríður Haraldsdóttir, 17.9.2007 kl. 20:11

14 Smámynd: Þröstur Unnar

Eignarétti, Maggi IP tala?

Þröstur Unnar, 17.9.2007 kl. 21:59

15 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þessi bosnísku voru firringslega klikkuð geta ekki einu sinni notfært reynsluna í terapísku samhengi! ulla - eiga ekki skilið að lifa lífinu, bara gott á þau.

Gautaborgarhyskið er sjálfu sér samkvæmt, allt í ljósbláum setteringum og spennufíknin geislar með.

Edda Agnarsdóttir, 17.9.2007 kl. 22:02

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Haha, þið eruð alltaf jafn skemmtileg í athugasemdakerfinu mínu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2007 kl. 22:05

17 identicon

Ég er eitt af kvikindunum hehehehehehe

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 22:08

18 Smámynd: Jens Guð

  Ég man eftir sögu frá Bandaríkjunum þegar ircið var að ryðja sér til rúms.  Þar lentu feðgin í svipuðu dæmi og bosnísku hjónin.  Kallin laug því að hann væri töluvert yngri en hann var.  Eftir margra vikna spjall á netinu -  aðallega um kynlíf - ákváðu þau að hittast á hótelherbergi.  Þar kom sannleikurinn í ljós.

  Ég man ekki alveg hvernig sagan endaði.  Mig hálf rámar í að stelpan hafi klagað í mömmu sína og gott ef ekki urðu málaferli í kjölfar skilnaðar eða eitthvað álíka.   

Jens Guð, 17.9.2007 kl. 22:36

19 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

jakk. krípí saga þetta innlegg hjá Jens.

hvaða hvaða krakkar mínir. Það er fullt af fólki þarna úti sem er hundóánægð í samböndunum sínum en halda saman á fölskum forsendum. Við erum öll mannleg og getum hrasað. Það er líka fullt af fólki sem kemst að því eftir framhjáhald að það elskar makann sinn eftir allt saman og lifa happy ever after. Er samt engan veginn að mæla með framhjáhaldi.

Ég vona að þessi hjón sjái að sér og nýti sér þessar nýuppgötvuðu hliðar á hvort öðru. Haldi áfram að kynnast sálufélaga sínum en núna auglitis til auglitis. Mér finnst þetta reyndar gott dæmi um að fólk býr undir sama þaki en er ekki að tala saman. Þekkir ekki vonir og væntingar hvors annars. Þetta fólk fann út eftir krókaleiðum að þau eiga vel saman. ég vona að þau nýti sér það.

Jóna Á. Gísladóttir, 17.9.2007 kl. 22:44

20 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ji Jóna hvað ég er sammála þér.  Og reyndar ykkur sem finnst að þetta fólk ætti að nýta sér þennan bráðfyndna skell sem það hefur fengið til að laga sambandið. 

Í minni sögu er bara einn lúser, karlinn.  Kjéddlunarn eru báðar lausar við hann.  Hann sveik.  Ekki spurning.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2007 kl. 22:47

21 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég hlýt að vera að misskilja eitthvað. Ég sé engan þríhyrning. Voru þetta ekki bara hjón. Kona og maður sem eru gift en hittust upp á nýtt á netinu?

Jóna Á. Gísladóttir, 17.9.2007 kl. 23:18

22 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Jóna, fólk eru hér að tala í kross, um sitthvora söguna, netsöguna og svo sænska parið hjá Jennýju.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 18.9.2007 kl. 08:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2985786

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband